
Hinsegin

Skora á Íslendinga og utanríkisráðherra að fordæma ungversk stjórnvöld
Samtökin ‘78, Trans Ísland og Intersex Ísland skora á utanríkisráðherra Íslands að fordæma ný lög um kynskráningu í Ungverjalandi.

Eftirspurn eftir kynleiðréttingaraðgerðum hefur tífaldast á tíu árum
Eftirspurn eftir leiðréttingu á kyni hér á landi hefur tífaldast á 10 árum að sögn lýtalæknis sem sérhæfir sig í kynleiðréttingaraðgerðum. Hann segir marga sem greinast með kynáttunarvanda einnig vera á einhverfurófi eða með ADHD.

Heimsfaraldurinn eykur varnarleysi hinsegin fólks
Varnarleysi hinsegin fólks hefur aukist í heimsfaraldrinum. Ísland gerðist aðili að kjarnahópi ríkja Sameinuðu þjóðanna um málefni hinsegin fólks.

Samherji Söru vonar að hugrakkur hommi stígi stóra skrefið
Ein besta fótboltakona heims furðar sig á því af hverju samkynhneigðir fótboltakarlar séu í allt annarri stöðu en samkynhneigðar knattspyrnukonur.

Komu snilldarlega „út úr skápnum“ með hjálp TikTok
Nýtt trend hefur skapast á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem fólk notar frumlegar og skemmtilegar leiðir til að koma „út úr skápnum“ og opinbera kynhneigð sína.

Íþróttir eru fyrir alla
Á dögunum var sýndur í sjónvarpi Símans heimildaþáttur um íþróttaferil og ævi sundmannsins Inga Þórs Jónssonar, margfalds Íslandsmethafa og ólympíufara. Þetta er einstakt viðtal í íslensku samhengi, þar sem rætt er við fyrrum afreksmann í íþróttum um reynsluna af því að vera bæði fremstur á sínu sviði og hommi í felum.

Hinsegin dagar fara fram en verða aðlagaðir að breyttum aðstæðum
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, formaður Hinsegin daga, segir að hátíðin verði haldin í ár þrátt fyrir takmarkanir á fjölda þeirra sem munu mega koma saman vegna kórónuveirufaraldursins.

Tryggja á að transbörn geti stundað íþróttir til jafns við önnur börn
Ný stefna í íþróttamálum Reykjavíkur sem gildir til ársins 2030 var samþykkt í borgarstjórn í dag. Áætlunin hefur verið í vinnslu í rúmt ár og hafa borgaryfirvöld verið í nánu samstarfi við íþróttahreyfingar í borginni.

Slaka á reglum um blóðgjafir sam- og tvíkynhneigðra karla vegna ástandsins
Bandarísk yfirvöld kynntu í dag áform um að slaka á reglum um blóðgjafir til þess að koma til móts mögulegan blóðskort sem rekja má til faraldurs kórónuveirunnar.

Hinsegin samstaða á krefjandi tímum
Óvissutímar á borð við þá sem við lifum nú á hafa vitanlega áhrif á hinsegin fólk eins og annað fólk, en þó eru ákveðin sérkenni á okkar reynslu. Það er þess vegna afar mikilvægt að við höldum utan um hvert annað núna og hjálpumst að við að komast í gegnum þetta tímabil.

Afhentu undirskriftalista vegna transteymis BUGL
Trans Vinir, Trans Ísland og Samtökin 78 afhentu áðan heilbrigðisráðherra, forstjóra Landsspítalans og landlækni undirskriftalista vegna trans teymisins á BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítalans.

Fordómafullt fólk lætur út úr sér hluti sem það veit ekkert um
Í sjónvarpsþáttunum Trans börn á Stöð 2 er fylgst með fjórum íslenskum fjölskyldum sem eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu.

Spurði um stefnu Útlendingastofnunar í málefnum hinsegin fólks
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, telur að skýra þurfi stefnu og verkferla Útlendingastofnunar hvað varðar mál hinsegin fólks.

Kveið mest fyrir því að segja mömmu
Trans börn er vönduð ný heimildaþáttaröð í þremur hlutum þar sem fjórum íslenskum fjölskyldum er fylgt eftir yfir tveggja ára tímabil. Allar fjölskyldurnar eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu.

Reyndi að vera „karlalegur“ stangarstökkvari en er kona
Martin Eriksson var frjálsíþróttastjarna í Svíþjóð í kringum aldamótin en kæfði á sama tíma niður löngunina til að viðurkenna að Martin væri í raun kvenkyns.

Foreldrar trans-pilts óttast hrottafengið ofbeldi verði fjölskyldunni vísað úr landi
Vísa á íranskri fjölskyldu úr landi á mánudag sem flúði ofsóknir í heimalandi sínu. Sonur hjónanna er trans strákur sem hefur fest hér rætur. Óttast þau mjög öryggi sitt fari þau aftur til Íran þar sem þeim hefur verið hótað hrottafengnu ofbeldi.

Vonar að viðtölin opni umræðuna
Magnús Valgeirsson, faðir Alex Grétars sem sagði sögu sína í þættinum Trans börn síðasta sunnudag, segir að fjölskyldan hafi nær eingöngu fengið góð viðbrögð við þættinum.

Dwyane Wade styður dóttur sína sem er transstelpa
Næstelsta barn körfuboltamannsins fyrrverandi, Dwyanes Wade, er transstelpa.

Landspítalinn leitar að sérfræðingum í transteymið
Landspítalinn vinnur að umbótum transteymi barna- og unglingagerðdeildar spítalans í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið. Fram hefur komið að foreldrar transbarna eru í öngum sínum þar sem transteymið hefur verið lagt niður.

Trans börn
Eftir því sem umræðan um málefni trans fólks á Íslandi sem og víðar hefur opnast mun meir, hafa sífellt fleiri manneskjur haft tækifæri á því að stíga skrefið í að vera þau sjálf, þar á meðal börn og unglingar.

Treystu sér ekki til að ala transbarn sitt upp í Eyjum
Bæjarstjóranum þykir leitt að heyra en virðir ákvörðun hjónanna.

Trans börn í heild sinni: Alex Grétar og Gabríela María
Fyrsti þáttur af Trans börn er kominn í heild sinni inn á Vísi.

Svisslendingar samþykktu að gera mismunun gagnvart hinsegin fólki refsiverða
Kosið var um breytinguna í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag og studdu 63% kjósenda tillöguna en 37% kusu á móti.

Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sviss um að mismunun gagnvart hinsegin fólki verði refsiverð
Svisslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu í dag um um hvort setja eigi í hegningarlög að mismunun vegna kynhneigðar og kynvitundar verði refsiverð.

Þekkingarleysi í heilbrigðiskerfinu kemur niður á trans börnum
Ráðgjafi hjá Samtökunum 78 segir að trans börn verði oft kvíðnari eftir viðtöl í heilbrigðiskerfinu vegna þekkingarleysis heilbrigðisstarfsfólks. Það verði að setja peninga í málaflokkinn svo hægt sé að reka sérstakt transteymi á BUGL. Þjónustan sé gríðarlega mikilvæg fyrir börnin.

Vantar mannskap til að halda uppi transteymi
Transteymi BUGL hefur verið lagt niður vegna manneklu en samkvæmt lögum skal þverfaglegt teymi sinna börnunum. Hvorki fjármagn né starfsfólk fylgdi lagasetningunni. Móðir transdrengs segir heilbrigðisyfirvöld þurfa að hysja upp um sig.

Foreldrar transbarna í öngum sínum
Transteymi BUGL hefur verið lagt niður og þjónustan verður nú í boði á göngudeild. Mæður transbarna segja þetta lífshættulega ákvörðun og benda á að í lögum um kynrænt sjálfræði sé kveðið á um þverfaglegt transteymi.

Schofield kom öllum á óvart þegar hann kom út úr skápnum í morgun
Sjónvarpsmaðurinn breski Phillip Schofield sendi í morgun frá sér yfirlýsingu á Instagram- stories þar sem hann greinir frá því að hann sé samkynhneigður.

Gefur innsýn í líf fjögurra íslenskra trans barna
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir segir að allir geti lært eitthvað af þáttunum Trans börn sem hefja göngu sýna á Stöð 2 á sunnudag.

Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson nýr formaður Hinsegin daga
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson var í gær kjörinn nýr formaður Hinsegin daga í Reykjavík á aðalfundi félagsins. Hann tekur við hlutverkinu á miklum tímamótum en í ár er 20 ára afmæli gleðigöngunnar.