Fellibylurinn Harvey

Olíuiðnaðurinn vill almannafé til að verja sig fyrir áhrifum loftslagsbreytinga
Tillaga er um að reisa langa varnargarða til að verja olíuvinnslustöðvar í Texas fyrir auknum ágangi sjávar.

Tjón vegna náttúruhamfara í Bandaríkjunum hefur aldrei verið meira
Í heildina nam tjón af völdum náttúruhamfara í Bandaríkjunum rúmum 300 milljörðum dollara í fyrra.

Hamfaraflóð eins og í Texas mun líklegri vegna loftslagsbreytinga
Hlýnun jarðar þýðir að líkurnar á hamfaraflóðum líkum því sem fylgdi fellibylnum Harvey í sumar hafi þegar aukist og verði enn meiri þegar líður á öldina.

Hvíta húsið tekur orsakir loftslagsbreytinga ekki alvarlega
Ráðamenn vestanhafs þráskallast enn við að trúa vísindamönnum sem vara þá við að hnattræn hlýnun geti gefið fellibyljum aukinn kraft.

Frans páfi: Sagan mun dæma þá sem afneita loftslagsbreytingum
Mannkynið mun sökkva ef það skiptir ekki um stefnu hvað varðar loftslagsbreytingar, að sögn Frans páfa.

Viðbragðsaðilar í Texas stefna efnaframleiðanda
Lögreglumenn sem beindu fólki frá efnaverksmiðju sem skemmdist í fellibylnum Harvey köstuðu upp og náðu ekki andanum af völdum eitugufa sem bárust frá henni. Þeir hafa stefnt frönskum eiganda verksmiðjunnar.

Fimmta stigs fellibylur ógnar Ameríku
Fjölmargar eyjar í Kyrrahafi hafa lýst yfir neyðarástandi vegna fellibylsins Irmu. Stormurinn stefnir á Flórída en þar sem stutt er liðið frá því að Harvey hrelldi Bandaríkin gætu neyðarsjóðir klárast.

Umhverfisstofnun Trump réðst á blaðamann vegna fréttar um áhrif Harvey
Viðbrögð Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna við frétt um meint aðgerðaleysi hennar á menguðum svæðum í Texas eftir fellibylinn Harvey þykja sérstaklega rætin í garð nafngreinds blaðamanns AP-fréttastofunnar.

Irma ógnar Karíbaeyjum og Flórída
Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna varar við því að hitabeltisstormur skelli á í Flórída síðdegis á föstudag.

Deilt um hver eigi að borga reikninginn vegna Harvey
Ríkisstjóri Texas segir að kostnaðurinn við að lagfæra tjónið af völdum fellibylsins Harvey gæti náð 180 milljörðum Bandaríkjadala.

Faðmaði börn og hyllti neyðaraðstoð í Houston
Þetta er önnur heimsókn forsetahjónanna til Houston eftir að fellibylurinn gekk þar á land. Þau munu einnig koma við í Louisiana-ríki sem varð illa úti í hamförunum.

Krókódíll hreiðraði um sig í húsi á flóðasvæðunum
Talsvert hefur borið á tilkynningum um krókódíla á flóðasvæðunum í Texas.

Trump heimsækir hamfarasvæði á ný
Forsetinn mun taka stöðuna á hjálparstarfi bæði í Houston í Texas-ríki, sem fór einna verst út úr flóðum í kjölfar Harveys, og Louisiana-ríki.

7,8 milljarðar dala í neyðaraðstoð vegna Harvey
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent Bandaríkjaþingi beiðni um 7,8 milljarða bandaríkjadala í neyðaraðstoð svo hægt sé að hefja uppbyggingu í kjölfar eyðileggingar eftir fellibylinn Harvey í Texas og Louisiana

Eyðilegging og dauði blasir við eftir Harvey
Björgunarmenn fara nú um hverfi Houston, sem mörg eru enn að hluta til undir vatni, og leita að fórnarlömbum fellibylsins Harvey.

Trump styrkir hjálparsamtök um eina milljón Bandaríkjadala vegna Harvey
Fellibylurinn Harvey hefur valdið gríðarlegu tjóni í Texas-ríki í Bandaríkjunum síðustu vikuna.

Óttast stórhættulegan reyk frá efnaverksmiðju við Houston
Yfirmaður Almannavarna Bandaríkjanna óttast að reykur sem leggur frá efnaverksmiðju nærri Houston geti verið stórhættulegur.

Hafa auga með fleiri stormum við Mexíkóflóa
Hitabeltisstormurinn Irma gæti stefnt á land í Karíbahafi eða við Mexíkóflóa í byrjun næstu viku beint í kjölfar Harvey.

Sprengingar í efnaverksmiðjunni í Houston
Ertandi reykur berst frá sprengingum í efnaverksmiðju í útjaðri Houston. Lögreglumaður var fluttur á sjúkrahús eftir að hann andaði að sér eiturgufum.

Ómögulegt að koma í veg fyrir að efnaverksmiðja í Houston springi
Framkvæmdastjóri efnaverksmiðju í útjaðri Houston í Texas segir óumflýjanlegt að hún muni annað hvort springa eða brenna til grunna á næstu dögum.

Stórstjarna Houston Texans hefur safnað meira en fimm milljónum dollara
J.J. Watt, ein stærsta stjarna NFL-deildarinnar, hefur lagt sitt af mörkum í til að hjálpa þeim sem hafa orðið fyrir barðinu á fellibylnum Harvey.

Tala látinna komin í tuttugu í Bandaríkjunum
Vatnsyfirborðið hefur lækkað víða um Houston og er það í fyrsta sinn í nokkra daga.

Vísindamenn gagnrýndir fyrir að ræða þátt loftslagsbreytinga í Harvey
Talsmaður Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna þar sem margir loftslagssérfræðingar starfa gagnrýnir vísindamenn fyrir að tala um vísindi í tengslum við fellibylinn Harvey.

Harvey gengur aftur á land, nú í Lúisíana
Varað er við skyndiflóðum í Lúisíana af völdum hitabeltisstormsins Harvey og úrhelli er áfram spáð á austanverðri strönd Texas.

Útgöngubann í Houston en útlit fyrir betra veður
Spáð er að rigningunni sem hefur dunið á Houston-borg í Texas sloti með deginum. Allt að þriðjungur hennar er engu að síður enn á kafi í vatni.

Úr öskunni í eldmaurinn
Þúsundir árásargjarnra eldmaura fljóta saman á vatnselgnum sem lagt hefur heilu borgarhlutana í Texas í rúst.

Tala látinna í Texas fer hækkandi
Veðurstofa Bandaríkjanna greindi frá því í dag að úrkomumet vegna eins og sama fellibylsins hefði verið slegið á meginlandi Bandaríkjanna. Tvær veðurstofur hafa mælt yfir tólf hundruð millimetra úrkomu.

Sér fram á dýrustu uppbyggingu í sögu Bandaríkjanna
Til umræðu er innan raða þingmanna Repúblikanaflokksins að fjárhagsaðstoð vegna fellibylsins Harvey verði með þeim hætti að fé verði veitt í áföngum í stað þess að ein stór greiðsla verði innt af hendi. Þetta þýðir að nokkur töf geti orðið á veittri fjárhagsaðstoð.

Hver millímetri viðheldur hörmungunum
Íslenskur veðurfræðingur útskýrir hvað hefur gert Harvey að svo öflugum stormi. Ástandið muni ekki endilega skána þó að úrkoman minnki á næstu dögum.

Skelfilegar aðstæður í Houston: Veiddi fisk inni í stofu með berum höndum
Búist er við að um hálf milljón manna þurfi að sækja sér hjálp vegna fellibylsins Harvey sem kom að landi í Texas á föstudaginn og er nú skilgreindur sem hitabeltisstormur.