
Kanada

Tíu látnir hið minnsta eftir bílslys í Kanada
Minnst tíu eru látnir eftir að vöruflutningabíll og ferðaþjónustubíll aldraðra skullu saman um 160 kílómetra vestur af Winnipeg í Manitoba-fylki í Kanada í kvöld.

Eldarnir í Kanada stærri en áður og kvikna mun fyrr
Gífurlega umfangsmiklir og margir gróður- og skógareldar hafa logað í Kanada í vor og í sumar. Eldarnir eru stærri og fyrr á ferðinni en áður. Þá hafa þeir logað víðsvegar um landið og tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín.

Milljónum Bandaríkjamanna ráðlagt að taka upp grímuna á ný
Milljónum manna í Norður-Ameríku hefur nú verið ráðlagt að notast við grímur, sömu gerðar og voru notaðar í kórónuveirufaraldrinum, vegna lélegra loftgæða.

Forsetahjónin kysstu dauðan fisk á Nýfundnalandi
Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, luku fjögurra daga ríkisheimsókn til Kanada í gær. Meðal verkefna ferðarinnar var að kyssa dauðan fisk sem er hefð til að vígja inn Nýfundnalendinga.

Aflýsir öllum tónleikum vegna taugasjúkdómsins
Kanadíska söngkonan Céline Dion hefur aflýst öllum tónleikum sínum vegna ólæknandi taugasjúkdóms sem hún er með. Um er að ræða sjálfsofnæmissjúkdóm sem kallast á ensku stiff person syndrome. Dion segist þó ekki ætla að gefast upp, hún hlakki til að koma fram aftur á ný.

Forsetahjónin á leið í opinbera heimsókn til fæðingarlands Elizu
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda í opinbera heimsókn til Kanada 29. maí og verða til 1. júní. Þau verða þar í boði landstjórans Mary Simon. Um er að ræða fyrstu ríkisheimsókn Íslands til Kanada frá árinu 2000, en meðal annars verður fundað með Justin Trudeau forsætisráðherra.

Kínverjar æfir út í G7 ríkin
Stjórnvöld í Kína ásaka G7 ríkin um samantekin ráð um að sverta orðspor Kína á heimsvísu og ráðast gegn hagsmunum landsins.

Selenskí á leið til Hiroshima
Árlegur leiðtogafundur G7 ríkjanna svokölluðu fer nú fram í japönsku borginni Hiroshima. Eins og á leiðtogafundi Evrópuráðsins hér á landi í vikunni er aðal umræðuefnið málefni Úkraínu.

The Weeknd fleygir listamannsnafninu
Kanadíska poppstjarnan The Weeknd hefur tekið upp sitt eigið nafn á samfélagsmiðlum, Abel Tesfaye, í stað síns heimsfræga nafns The Weeknd. Hann hefur áður rætt opinskátt um að vilja losna undan listamannsnafninu.

Gordon Lightfoot er fallinn frá
Kanadíski þjóðlagasöngvarinn Gordon Lightfoot er látinn, 84 ára að aldri.

Háskólaprófessor í lífstíðarfangelsi fjörutíu árum eftir sprenginguna
Hassan Diab, 69 ára gamall háskólaprófessor búsettur í Ottowa í Kanada, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir hryðjuverk. Hann var sakfelldur fyrir að hafa sprengt sprengju fyrir utan bænahús í París árið 1980 þar sem fjórir létust og 46 særðust.

Tók tveggja ára hlé og missti af hlutverkum í fimm stórmyndum
Kanadíska leikkonan Rachel McAdams ákvað að flytja aftur heim og taka sér tveggja ára hlé frá leiklistinni árið 2006. Á þessu tveggja ára tímabili var henni boðið hlutverk í fimm kvikmyndum sem enduðu á því að verða gríðarlega vinsælar.

Lögregla rannsakar gullrán á flugvelli í Kanada
Lögregluyfirvöld í Kanada hafa nú til rannsóknar gullþjófnað á Pearson-alþjóðaflugvellinum í Toronto. Samkvæmt erlendum miðlum hvarf gull og önnur verðmæti að andvirði 15 milljóna Bandaríkjadala á vellinum síðasta mánudag.

Nýja Airbus A321-þotan flugprófuð í fimbulkulda
Hin nýja langdræga Airbus A321XLR-þota gengst um þessar mundir undir viðamiklar flugprófanir og var hún á dögunum reynd í fimbulkulda. Prófanirnar fóru fram á Iqaluit-flugvellinum við Frobisher-flóa í Norður-Kanada þar sem Airbus segir að frostið hafi farið niður í allt að -40 gráður.

Gervigreind framleiddi lag með röddum Drake og The Weeknd
Gervigreind framleiddi á dögunum lag með röddum tónlistarmannanna Drake og The Weeknd. Drake sjálfur vera kominn með nóg af gervigreindinni en útgáfufyrirtæki þeirra beggja er sagt hafa óskað eftir því að lagið yrði fjarlægt af öllum streymisveitum.

Unglingur skaut tvo lögreglumenn til bana
Sextán ára drengur skaut tvo lögreglumenn til bana í Edmonton í Kanada í gær. Því næst skaut hann sjálfan sig einnig til bana.

Tekist á um dánarbú Leonards Cohen
Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles.

Ökumaðurinn talinn hafa ekið vegfarendur viljandi niður
Saksóknarar í Quebec í Kanada ákærðu karlmann á fertugsaldri fyrir háskaakstur eftir að hann ók pallbíl inn í hóp gangandi vegfarenda í gær. Tveir aldraðir karlmenn létu lífið en ökumaðurinn er talinn hafa ekið viljandi á fólkið.

Tveir látnir í Kanada eftir að ekið var á gangandi vegfarendur
Tveir menn eru látnir og níu særðir eftir að pallbíl var ekið á gangandi vegfarendur í bænum Amqui, norður af borginni Quebec, í Kanada. Lögregla hefur handtekið 38 ára ökumann bifreiðarinnar og verið er að rannsaka hvort hann ók viljandi á fólkið.

Fyrrverandi sambýlishvalur Keiko er dauður
Háhyrningurinn Kiska, sem deildi tanki með Keiko þegar þeir dvöldu hér á landi, er dauður, 47 ára að aldri. Hann var oft þekktur sem „Mest einmana hvalur í heimi“ en Kiska bjó ein frá því árið 2011 til hennar dauðdaga.

Sér eftir því að hafa nafngreint fyrrverandi kærustur
Rapparinn Drake segist sjá eftir því að hafa nafngreint fyrrverandi kærustur sínar í lögum sínum. Hann hafi aldrei gert það með neitt illt í huga en ein þeirra skammaði hann fyrir það.

Hristi sig og hornin hrundu af
Þjóðgarðsvörðurinn Derek Burgoyne náði myndbandi af því þegar elgur hristi sig og missti í leiðinni horn sín. Afar sjaldgæft er að sjá þegar hornin falla af elgum.

Cloé kölluð inn í kanadíska landsliðið en landsliðskonurnar hóta verkfalli
Hin íslensk-kanadíska Cloé Eyja Lacasse er í landsliðshópi Kanada á SheBelieves æfingamótinu.

Engin merki um geimverur að sögn Hvíta hússins
Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins tók það skýrt fram á fréttamannafundi í gær að ekkert bendi til þess að hlutirnir þrír sem skotnir voru niður yfir Bandaríkjunum og Kanada á dögunum tengist geimverum.

Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður
Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum.

Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum
Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum.

Fjórði fljúgandi hluturinn skotinn niður af Bandaríkjaher
Bandaríkjaher skaut fyrir skömmu niður enn annan fljúgandi hlutinn í mikilli hæð yfir stöðuvatninu Huron í Michican fylki í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Kanada. Um er að ræða fjórða hlutinn sem skotinn er niður í þessum mánuði í Norður-Ameríku.

Saka Kínverja um lygar sem vísa ásökunum á bug
Bandarísk yfirvöld halda að óþekktir hlutir sem skotnir voru á flugi yfir Norður-Ameríku í gær og á föstudag hafi verið einhvers konar blöðrur. Bandaríkjamenn saka Kínverja um lygar en vika er síðan Bandaríkjamenn skutu niður meintan njósnabelg Kínverja.

Skutu niður „óþekktan hlut“ yfir Kanada
Óþekktur hlutur var skotinn niður í kanadískri lofthelgi nú í kvöld. Vika er liðin frá því að Bandaríkjaher skaut niður loftbelg sem þeir töldu vera kínverskan njósnabelg.

Borgarstjóri Toronto segir af sér vegna framhjáhalds
John Tory, borgarstjóri kanadísku borgarinnar Toronto, hefur sagt af sér vegna framhjáhalds. Hann segist hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni með 31 árs gamalli samstarfskonu.