
Svíþjóð

Grunuð um að hafa banað tveimur börnum
Lögregla í Södertälje í Svíþjóð hefur handtekið karl og konu vegna gruns um að hafa banað tveimur börnum í gærkvöldi.

Talin ólíklegust til að komast áfram
Veðbankar telja framlag Íslands til Eurovision í ár, Scared of heights í flutningi Heru Bjarkar, aðeins eiga nítján prósent möguleika á að komast áfram í aðalkeppnina. Það eru minnstu líkur allra laga sem keppa á fyrra undankvöldinu.

Skotinn í höfuðið fyrir framan tólf ára son sinn
Sænskur maður var skotinn til bana fyrir framan tólf ára son sinn á miðvikudaginn. Feðgarnir voru þá að ganga í gegnum undirgöng og á leið í sund í bænum Skärholmen, úthverfi Stokkhólms, þegar hinn 39 ára gamli Mikael Kängan var skotinn af ungum mönnum.

Örvæntingaróp frá sautján ára dreng í felum
Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sautján ára dreng í gær en það fylgdi ekki sögunni að líklega stendur til að vísa honum af landi brott. Hann er í felum.

Þrjár stúlkur læstar inni og beittar ofbeldi
Þrjár týndar táningsstúlkur flúðu á dögunum úr húsi í Svíþjóð þar sem þeim hafði verið haldið um mánaða skeið. Lögreglan hefur lítið viljað segja um málið annað en að það sé til rannsóknar.

Fékk lifur úr pabba sínum sex mánaða gömul
„Ég hef svo margt jákvætt að segja um reynsluna og hef hingað til reynt að einblína á það en það fylgja alltaf neikvæðar tilfinningar sem þarf líka að fá að vinna úr,” segir Sigríður Björk Bragadóttir en dóttir hennar, Úlfey Minevera fæddist með sjaldgæfan lifrarsjúkdóm. Misheppnuð ígræðsla í Svíþjóð átti eftir að enda með því að faðir hennar, Finnbogi Hans Sævarsson, lagðist undir hnífinn og gaf dóttur sinni hluta af sinni lifur. Úlfey var á þessum tíma einungis sex mánaða og leiða má líkur að því að hún sé einn af yngstu lifrarþegunum hér á landi.

Síðasta vígi norrænna seðla fallið
Landsbanki Íslands hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur.

Skilin eftir nítján ár saman: Talaði meira við blaðamenn en eigin fjölskyldu
Kona sænska landsliðsmannsins Emil Forsberg, Shanga Forsberg, sakar eiginmann sinn um algjört afskiptaleysi og staðfestir að þau séu skilin eftir nítján ár saman.

Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum
Á haustmánuðum verður opnuð ný frjósemismiðstöð á Íslandi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Sunna – frjósemismiðstöð og verður rekin af hjónunum Þóri Harðarsyni, sérfræðingi í frjósemi og kennara við lífeðlisfræðideild Háskóla Íslands, og Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og kvensjúkdómalækni.

Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn
Á ísilögðum vegum í Norður Svíþjóð þarf að hafa sérstakan vara á. Hér hlaupa hreindýr og elgir um skógana og virða engar umferðarreglur. Það fékk ökumaður á Polestar 2 í reynsluakstri milli Lulea og Jokkmokk að reyna á dögunum þegar þrír elgir stukku yfir veginn.

Tignarleg arkitektaíbúð með vínherbergi í kjallara
Við Sturegatan á Östermalm svæðinu í Stokkhólmi má finna tignarlega 170 fermetra íbúð. Eignin býr yfir miklum sjarma og sögu sem ætti að falla vel í kramið hjá arkitektúrs- og hönnunarunnendum.

Ef sænska krónan er of lítil hvað er þá sú íslenska?
Nú hefur Stefan Ingves, fyrrverandi seðlabankastjóri Svíþjóðar til sautján ára sagt það opinberlega að Svíar eigi að taka upp evru og leggja sænsku krónunni. Ástæðan? Jú – hún er of smár gjaldmiðill til að þjóna sænskum hagsmunum. Hann bendir réttilega á að land með lítið og opið hagkerfi megi sín lítils þegar það býr í nábýli við evrusvæðið.

Norskir tvíburar flytja framlag Svíþjóðar
Norsku tvíburarnir Marcus og Martinus sigruðu undankeppni Svía í Eurovision, Melodifestivalen, í kvöld með laginu Unforgettable eða Ógleymanleg. Þeir flytja því framlag Svíþjóðar í Malmö í maí.

Svíar og Kanadamenn hefja greiðslur á ný
Svíar og Kanadamenn hafa ákveðið að halda áfram greiðslum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) eftir að hafa fryst þær í kjölfar ásakana um aðild starfsmanna samtakanna að hryðjuverkaárásum Hamasliða sjöunda október 2023.

Peningar ekki vandamál í næsta verkefni Björns Zoëga
Björn Zoëga verður framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu í apríl. Hann lætur senn af störfum sem forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð.

Stórbrotin íbúð í Stokkhólmi
Við Nybrogatan á Östermalm svæðinu í Stokkhólmi má finna glæsilega 143 fermetra íbúð. Það er eitthvað við sænsk heimili sem er meira heillandi en önnur. Loftlistar og rósettur, sjarmerandi litasamsetning og einstakur arkitektúr eru dæmi um það.

Svíþjóð formlega gengin í NATO
Svíþjóð fékk klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma formlega aðild að Atlantshafsbandalaginu, þegar forsætisráðherrann undirritaði plagg þess efnis. Svíþjóð er þannig þrítugasta og annað ríki bandalagsins. Svíar sóttu um inngöngu í bandalagið fyrir tveimur árum, vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Velkomnir Svíar
Með inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið í dag styrkist varnarsamstarf vestrænna þjóða miklu meir en mætti halda við fjölgun um eina aðildarþjóð, úr 31 í 32. Öryggi Eystrasaltsþjóðanna þriggja eykst verulega með formlegu varnarsamstarfi við tvær öflugar vinaþjóðir í norðri, Finna og Svía. Og nú eru Norrænu ríkin öll saman í varnarbandalagi.

Fimm sprengingar í Svíþjóð síðasta sólarhringinn
Tvær sprengingar urðu í Gautaborg í Svíþjóð í nótt og bætast þær við þær þrjár sem urðu í höfuðborginni Stokkhólmi í fyrrinótt og í gærkvöldi.

Fyrsta Abrams skriðdrekanum grandað nærri Avdívka
Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá þorpi í austurhluta Úkraínu, skammt vestur af borginni Avdívka, sem féll nýverið í hendur Rússa eftir gífurlega harða bardaga frá því í október. Þaðan hörfuðu hermenn til þorpsins Lastochkyne og hafa þeir nú hörfað lengra til vesturs.

Ungverska þingið samþykkir inngöngu Svía
Ungverska þingið hefur samþykkt lög sem heimila inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið, NATO, en Ungverjar eru síðastir til þess að samþykkja inngönguna.

Hyggst samþykkja NATO umsókn Svía í dag
Ungverska þingið hyggst taka til atkvæðagreiðslu umsókn Svía í Atlantshafsbandalagið (NATO) í dag. Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands segir umsóknina verða samþykkta. Ungverjaland er síðasta landið til að samþykkja umsóknina.

Emils- og Línu-tónskáldið Georg Riedel látið
Sænska tónskáldið og djasstónlistarmaðurinn Georg Riedel, sem þekktastur er fyrir að hafa samið tónlistina í þáttunum og myndunum um Línu langsokk og Emil í Kattholti, er látinn. Hann varð níræður að aldri.

Ísland í fimmta sæti í veðbönkum
Ísland er nú í fimmta sæti í veðbanka Eurovisionworld um það framlag hvaða lands muni sigra Eurovision í ár. Ísland tók nokkuð stökk eftir að valin voru þrjú lög í seinni undankeppni Söngvakeppninnar í gær. Það voru lög Bashar Murad, Siggu Ózk og Heru.

Rangfærslur um innflytjendur á Norðurlöndum hraktar
Í vaxandi umræðu um málefni innflytjenda á Íslandi draga sumir upp mynd af innflytjendum sem byrði á samfélaginu og ræða um áhyggjur af efnahagslegu álagi, menningarátökum og öryggisógnum.

Sænska poppstjarnan sem lifir venjulegu lífi í Garðabæ
Sænska hljómsveitin A*Teens, sem fór sigurför um heiminn upp úr aldamótum, kom nýverið saman á Melodifestivalen í Malmö í fyrsta sinn í tuttugu ár. Einn meðlimur sveitarinnar er búsettur á Íslandi með íslenskri konu sinni og börnum - og talar reiprennandi íslensku. Við hittum hann í Garðabænum í Íslandi í dag.

Greiddi ekki flug og gistingu eiginkonu sinnar
Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar láðist að greiða fyrir ferðalag eiginkonu sinnar Birgittu Kristersson í júlí í fyrra þegar hún ferðaðist með honum til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Það var ekki gert fyrr en sænskir miðlar spurðust fyrir um málið.

„Myndi klárlega sjá eftir því ef ég myndi hætta núna“
Undanfarin ár hafa reynst spretthlauparanum Guðbjörgu Jónu Bjarnadóttur krefjandi og erfið. Hún bar þó sigur úr býtum í 400 metra hlaupi á Meistaramóti Íslands um nýliðna helgi og hefur fengið byr undir báða vængi með góðri ákvörðun. Fyrir ekki svo löngu síðan var Guðbjörg nálægt því að gefa hlaupaferilinn upp á bátinn.

Með hústökumann í íbúðinni á Kanarí
Sænsk fjölskylda er ráðþrota eftir að maður braust inn í íbúð í þeirra eigu á Kanaríeyjunum síðastliðinn nóvember og gerðist þar hústökumaður. Fjölskyldan bíður úrskurðar spænskra dómstóla en maðurinn hefur meðal annars leigt íbúð þeirra út til annarra á Airbnb í millitíðinni.

Mætti með afskorna hendi á sænska endurvinnslustöð
Lögregla var kölluð til þegar glerkrukka sem skilin var eftir á endurvinnslustöð í borginni Skellefteå í Norður-Svíþjóð virtist innihalda mannshendi.