

Illa hefur gengið um nokkurt skeið að halda tröllvaxinni klukku við Austurvöll gangandi. Viðgerðir hér heima hafa ekki borið árangur og hún hefur því verið send í viðgerð til útlanda. Rekstrarstjóri hótels sem klukkan prýðir segir skipta miklu máli að fá hana í lag.
Ríkisstjórnin á Grænlandi tilkynnti fyrir helgi að frá og með laugardeginum síðastliðnum tilheyrir Grænland nýju tímabelti.
Sigurður Oddsson, Siggi Odds, er á meðal virtari hönnuða Íslendinga. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2008, fór að vinna hjá Jónsson og Lemacks’, vann sig upp þar og var loks á meðal þeirra sem leiddu ímyndar- og vörumerkjaþróunina þar.
Síminn hefur ákveðið að leggja klukkunni, sjálfvirkri þjónustu þar sem landsmenn gátu fengið að vita hvað klukkan væri. Eftir 86 ára þjónustu hefur klukkan hætta að svara í símann og játað sig sigraða gagnvart tæknibyltingunni.
Myrkrið víkur núna hratt með hækkandi sól og í dag hafði daginn lengt um 47 mínútur í Reykjavík frá vetrarsólstöðum og um eina klukkustund á Akureyri.
Erla Björnsdóttir, sálfræðingur, kveðst afar vonsvikin vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að klukkan á Íslandi verði óbreytt. Ákvörðunin sé tekin þvert á vilja meirihluta landsmanna og þvert á vilja meirihluta þeirra sem skiluðu umsögnum um málið.
Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár.
Forsætisráðherra segir að afar góð rök séu fyrir seinkun á klukkunni en einnig fyrir því að halda tímanum óbreyttum. Eftir samráð um málið ætlar hún að leggjast undir feld og tekur svo ákvörðun í málinu á vordögum.
Heilbrigðisráðherra segir það eindregna skoðun sína að seinka eigi klukkunni á Íslandi enda sé um stórt lýðheilsumál að ræða. Málið hefur endanlega verið afgreitt af heilbrigðisráðuneytinu og er nú í höndum forsætisráðherra að taka ákvörðun um næstu skref.
Tillaga um afnám klukkubreytinga í norrænum löndum er meðal þess sem liggur fyrir Norðurlandaráðsþingi sem hefst í dag. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, er meðal flutningsmanna tillögunnar en hún kveðst vongóð um að hún nái fram að ganga.
Hinar svokölluðu B-manneskjur, nátthrafnar sem fara seint að sofa, þurfa að þröngva sér inn í ramma A-manneskjunnar sem fer snemma að sofa og vaknar einnig snemma. Þar af leiðandi fær B-manneskjan styttri svefn en A-manneskjan, að sögn Erlu Björnsdóttur, doktors í sálfræði, sem hefur mikið rannsakað svefn.
Stuðningsfólk þess að seinka klukkunni á Íslandi er farið að lengja eftir því að stjórnvöld ákveði næstu skref í málinu. Nú þegar nærri sjö mánuðir síðan að hætta var að taka við umsögnum um málið er það enn í skoðun hjá forsætisráðuneytinu.
Jafnvel hið dagfarsprúðasta fólk getur umturnast ef það verður fyrir því að friði þeirra er raskað að kvöldlagi þegar svefntími er genginn í garð.
Frumvarp um að taka upp sumartíma allt árið liggur fyrir Bandaríkjaþingi. Með því yrði klukkunni flýtt um eina klukkustund á veturna frá því sem nú er.
Barnalæknir segir að lítið hafi verið gert úr göllum þess að seinka klukkunni í greinargerð starfshóps ráðherra, þar á meðal um neikvæð áhrif á hreyfingu ungmenna.
Frestur til að skila umsögnum um tillögur að breyttum staðartíma á Íslandi rennur út eftir rúma viku. Hingað til eru flestir á því að seinka skuli klukkunni. Sumir leggja til tilraunaverkefni á Vestfjörðum eða að flýta klukkunni.
Margt var um manninn á fundi í MH um svefnvenjur og klukkubreytingar.
Það hefur sjaldan verið talað eins mikið um svefn á Íslandi enda umræðan um breytingu á klukkunni hávær.
Meirihluti Íslendinga er hlynntur því að klukkunni verði seinkað um eina klukkustund í samræmi við hnattstöðu landsins.
Enn á ný er umræða um stillingu klukkunnar áberandi í fjölmiðlum. Forkólfar og sérfræðingar í svefnrannsóknum stíga fram og minna okkur á mikilvægi þess að fá nægan svefn.
Rúmlega 63 prósent Íslendinga vilja að klukkunni verði seinkað um eina klukkustund frá því sem nú er. Aðrir vilja óbreytta stöðu klukkunnar.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að hugsanlegar breytingar á klukkunni verði ekki afgreiddar á vorþingi.
Svefn er gríðarlega mikilvægur og okkur lífsnauð-synlegur. Mikil endurnýjun á sér stað í líkamanum á meðan svefn stendur yfir. Íslendingar virðast sofa minna en aðrar þjóðir og telja sérfræðingar að hægt sé að leiðrétta slíkt meðal annars með breytingu á klukkunni. Oft gætir misskilnings um málið.
Vegna legu landsins á hárri breiddargráðu eru fáar birtustundir í boði á Íslandi yfir háveturinn og mun þeim ekki fjölga með breytingu á stillingu klukkunnar.
Sennilega er okkur Íslendingum ýmislegt betur lagið en að fara eftir aðstæðum. Mætti nefna mörg dæmi þar um, en látum nægja þau endemi að við skulum stefna börnum okkar á hverjum virkum degi út í náttmyrkrið að vetrinum.
Golfsamband Íslands er enn á móti því að klukkunni sé breytt. Síðast þegar slíkar hugmyndir voru uppi mótmæltu kylfingar og Icelandair einna harðast.
Opnað var fyrir umsagnir í gær en klukkan níu í morgun voru þær orðnar tæplega 400 talsins.
Á þriðja hundruð umsagna hafa borist vegna klukkubreytingar en flestir virðast velja kost B, það er að klukkunni verði breytt.
Heilbrigðisráðherrann fyrrverandi fór yfir kostina þrjá í Reykjavík síðdegis.
Greinargerðin Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur hefur verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins.