
Kynferðisofbeldi

Megas eftir sem áður á heiðurslaunum listamanna
Tónlistarmaðurinn Megas verður áfram á heiðurslaunum listamanna en til greina kom að hann yrði sviptur laununum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Ekki verður fleirum bætt á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun listamanna.

90 prósent farandverkakvenna nauðgað á leið sinni
UN Women staðhæfir að níu af hverjum tíu konum sem ferðast frá Norður-Afríku til Ítalíu segi að þeim hafi verið nauðgað á leiðinni.

Jólahugvekja
Hátíðirnar geta verið tími gleði, hláturs, eftirvæntingar og hefða sem vekja hjá okkur hugljúfar minningar með ástvinum okkar. Jólatónlist, jólatré, gjafir, spil, góður matur og dýrmætar samverustundir með fjölskyldu og vinum.

Peng Shuai segist mögulega hafa verið misskilin í nýju myndbandi
Kínverska tenniskonan Peng Shuai segist nú aldrei hafa sakað einn af valdamestu mönnum Kína um kynferðisofbeldi. Þetta segir hún í myndbandi sem dagblaðið Lianhe Zaobao, sem er í eigu kínverska ríkisins og gefið út í Singapúr, birti í morgun.

Mest lesnu viðhorfspistlarnir 2021: Kynferðisofbeldi, faraldurinn, fiskeldi og Gísli Marteinn
Mest lesnu viðhorfspistlar ársins varpa skýru ljósi á hvað var efst á baugi á árinu.

Maxwell neitaði að bera vitni
Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, vildi ekki bera vitni í dómsal í dag. Verjendur hennar luku vörnum sínum í dag en undanfarna daga hefur hann að mestu snúist um að grafa undan vitnisburði þeirra fjögurra kvenna sem hafa borið vitni gegn Maxwell.

Dómur þyngdur í Danmörku yfir íslenskum manni sem nauðgaði dóttur sinni
Eystri Landsréttur í Danmörku hefur þyngt dóm yfir íslenskum karlmanni, sem var sakfelldur fyrir að misnota og nauðga barnungri dóttur sinni ítrekað, um tvö ár. Kvað dómurinn það upp að manninum skyldi vísað úr landi að lokinni afplánun og fær hann aldrei að stíga fæti inn í Danmörku aftur.

Nauðgari undir fölsku flaggi fékk mildari dóm í Hæstarétti
Gabríel Varada Snæbjörnsson hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu á árunum 2015 til 2017. Gabríel hlaut fjögurra ára dóm í héraðsdómi og Landsrétti. Hæstiréttur mildaði dóminn um hálft ár en þyngdi lítillega bætur til brotaþola.

Steinunn Ólína segir viðbjóðsljóð Megasar Litla ljót ekki um Bergþóru
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur lýst því yfir að ljóðið Litla ljót, sem kemur við sögu í ásökunum Bergþóru Einarsdóttur á hendur Megasi og Gunnari Erni Jónssyni um kynferðislegt ofbeldi gegn henni, sé ekki um Bergljótu.

Alþingi í klípu vegna Megasarmála
Meðal dagskrárliða á fundi allsherjar- og menntamálanefndar (amen) í gær og aftur í dag eru heiðurslaun listamanna.

Fjölmörg börn á aldrinum ellefu til sextán ára þolendur í máli mannsins
Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni á sjötugsaldri sem grunaður er um fjölmörg blygðunarsemisbrot gegn börnum og barnaverndarlagabrot. Hann er meðal annars grunaður um að hafa reynt að mæla sér mót við ellefu ára gamalt barn eftir að hafa sent því klámfengin skilaboð.

Kynferðisbrotalaust Ísland?
Aldamótamarkmiðin um Fíkniefnalaust Ísland og Frið árið 2000 náðust ekki. Þrátt fyrir að kynferðisofbeldi sé mikill skaðvaldur í íslensku samfélagi hefur ekki verið ráðist í herferðina um kynferðisbrotalaust Ísland.

Á skilorði grunaður um að hafa nauðgað fjórtán ára stúlku
Karlmaður á fertugsaldri, sem er grunaður um að hafa frelsissvipt og nauðgað fjórtán ára stúlku um síðustu helgi, er á skilorði eftir að hafa verði dæmdur fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni árið 2020.

„Ég hef aldrei gefið neinum leyfi til þess að nauðga mér“
Ung trans kona sem brotið var á tvívegis á árinu segir ákveðna nauðgunarmenningu ríkja hér á landi með tilliti til trans kvenna. Hún segir að litið sé á þær sem einhvers konar blæti og að varpa þurfi ljósi á vandann. Opna þurfi umræðuna um málefni trans kvenna þar sem margt er ekki í lagi.

Er málið svo einfalt að gera þá kröfu að gerendur hætti sjálfir að beita ofbeldi?
Þetta er auðvitað réttmæt krafa. En raunhæf?

Laus úr haldi grunaður um frelsissviptingu og nauðgun
Karlmaður á fertugsaldri, sem grunaður er um að hafa frelsissvipt og nauðgað fjórtán ára stúlku á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi, er laus úr gæsluvarðhaldi.

Fyrrverandi ráðherra hafi nauðgað eiginkonu sinni ítrekað
Andrew Griffiths, fyrrverandi ráðherra og þingmaður breska íhaldsflokksins, nauðgaði fyrrverandi eiginkonu sinni, þingmanninum Kate Griffiths, ítrekað. Þetta segir í niðurstöðum forræðismáls sem hann höfðaði á hendur Kate.

Leggja til brottrekstur tilkynni leikmenn ekki ofbeldismál
Starfshópur KSÍ, sem vann að endurskoðun á vinnulagi, viðhorfi og menningu innan knattspyrnuhreyfingarinnar, hefur skilað af sér skýrslu og tillögur um endurbætur á þeim málum. Meðal tillaga er að leikmönnum sambandsins verði gert að skrifa undir skilmála að þeim beri að tilkynna ofbeldismál sem þeir tengjast, viðurlög varði brottrekstri.

Ólympíumeistari handtekinn vegna gruns um barnaníð
Yannick Agnel, tvöfaldur Ólympíumeistari í sundi, var handtekinn í gær vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni.

Þolendur kynferðisbrota geta fylgst með stöðu rannsóknar á nýju vefsvæði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu opnaði í dag vefsvæði þar sem þolendur kynferðisbrota geta nálgast upplýsingar um stöðu mála og úrræði sem standa til boða. Hátt í fjögur hundruð kynferðisbrotamál eru nú á borði lögreglu og segir lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákall hafa verið um bætta þjónustu.

Maður grunaður um að nauðga unglingsstúlku í gæsluvarðhaldi þar til á morgun
Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald um helgina vegna gruns um að hafa nauðgað stúlku á unglingsaldri. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út á morgun.

Þjónustugátt fyrir þolendur kynferðisbrota hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Mikilvægt skref er stígið í að bæta þjónustu við þolendur kynferðisbrota hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, en í dag opnar sérstök Þjónustugátt lögreglu fyrir þolendur kynferðisbrota í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra.

Þurfi að takast á við þetta sem íþróttahreyfing og samfélag
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, fagnar nýrri skýrslu Úttektarnefndar ÍSÍ, sem var falið að fjalla um frammistöðu KSÍ í málum tengdum kynferðisofbeldi. Ábendingar í henni muni nýtast stjórn KSÍ mjög vel í þeirri vinnu sem framundan er.

Segir úttektina á KSÍ vera gaslýsingu á þolendur
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir segir að skýrsla úttektarnefndar vegna viðbragða KSÍ við kynferðisbrotamálum sé opinber gaslýsing á þolendur. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennar segir skýrsluna hafa verið „pínu svekk“.

„Við skulum bara láta verkin tala“
Jóni Gunnarssyni innanríkisráðherra þykir umræða í tengslum við undirskriftasöfnun þar sem skorað er á forsætisráðherra að víkja Jóni úr embætti vera ómálaefnanleg og ekki svaraverð. Hann segist ætla að láta verkin tala.

Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta
Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn.

Tóku barn úr vistun vegna grunsamlegrar hegðunar Hjalteyrarhjónanna: Létu Garðabæ vita
Garðabær fékk ítrekað ábendingar og eða kvartanir vegna hjóna sem önnuðust fjölda barna í bænum að sögn foreldra sem voru með barn í leikskóla hjá þeim. Foreldrarnir segjast hafa ákveðið að taka barnið sitt úr skólanum vegna grunsamlegrar hegðunar þeirra. Hjónin sem hafa verið ásökuð um ofbeldi og pyntingar gagnvart börnum störfuðu í 17 ár í Garðabæ. Maður sem var hjá þeim á Hjalteyri segist hafa reynt að láta Garðabæ og önnur yfirvöld vita af ofbeldinu sem þau beittu þar.

Skipar starfshóp til að rannsaka Hjalteyrarmálið
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ætlar að skipa starfshóp til að fara yfir málefni barnaheimilisins á Hjalteyri strax eftir helgi.

Tíu haft samband vegna Hjalteyrarhjónanna: Gættu að minnsta kosti 170 barna í Garðabæ
Hjónin sem sökuð hafa verið um alvarlegt ofbeldi gagnvart börnum á Hjalteyri á síðustu öld að minnsta kosti á annað hundrað barna í Garðabæ á sautján ára tímabili á þessari öld. Tíu einstaklingar hafa þegar óskað eftir upplýsingum eða samtölum vegna starfa hjónanna í bænum.

Þyngdu dóm fyrir kynferðisbrot gegn alvarlega fötluðum skjólstæðingi
Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir manni sem á síðasta ári var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fötluðum skjólstæðingi sínum. Dómurinn var þyngdur úr tveimur árum í þrjú.