

Undanfarið hefur Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, rekið kynningarherferð á tillögum fjárfesta um nýtt hverfi langt fyrir utan þéttbýlismörk með þeirri aðskilnaðarstefnu að þar eigi eingöngu að hýsa eldra fólk. Tillagan er kynnt undir því yfirskini að vera uppbygging á lífsgæðakjarna en um það bil allt við tillöguna er á skjön við þá hugmyndafræði.
Bæjarfulltrúar Viðreisnar, Garðabæjarlistans og Framsóknar í Garðabæ gera alvarlegar athugasemdir við ráðningu Lúðvíks Arnar Steinarssonar lögmanns í starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í Garðabæ. Þær segja ekki gætt að óhlutdrægni og segja Lúðvík flokksbundinn. Sá sem gegni stöðunni þurfi að vera hlutlaus.
Formaður BSRB segir samflot opinberra starfsmanna gera svipaðar kröfur um aðkomu ríkisins að kjarasamningum og stéttarfélög á almenna markaðnum gerðu. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað breiðfylkinguna og SA til fundar í dag.
Landsvirkjun vinnur hart að undirbúningi á því að byggja Búrfellslund þessa dagana. Svo hart að þrátt fyrir að Búrfellslundur sé ekki kominn í skipulag sveitarfélagsins sem hann á að rísa í og Orkustofnun hafi ekki gefið út virkjanaleyfi, þá er samt búið að bjóða út vindmyllurnar, það liggur svo mikið á!
Meirihlutinn í Reykjavíkurborg felldi tillögu Sjálfstæðisflokks um að byggja mathöll í Mjódd í annað sinn í síðustu viku. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Hildur Björnsdóttir og Kjartan Magnússon, lögðu tillöguna fram í annað sinn í umhverfis- og skipulagsráði.
Hafnarfjörður og Garðabær eru góðir grannar, sveitarfélögin sem liggja saman eiga nokkurra sameiginlega hagsmuna að gæta svo sem samgöngumannvirki og almenningssamgöngur. Íbúar Hafnarfjarðar eru um 31.000 og Garðabæjar um 17.000.
Alls hafa fimmtíu einstaklingar sótt um niðurgreiðslu til Reykjavíkurborgar vegna barna sem eru 18 mánaða eða eldri og eru enn hjá dagforeldrum. Opnað var fyrir umsóknir um niðurgreiðslur í síðustu viku. Skóla- og frístundasvið skoðar nú hvort hægt sé að veita fleirum niðurgreiðslu.
Dagur B. Eggertsson heldur kveðjupartý í Borgarleikhúsinu á laugardag. Mörg hundruð manns eru búin að svara boðinu á Facebook. Dagur greiðir sjálfur fyrir veisluna og fær engan afslátt af leigu á leikhúsinu.
Áform um stækkun bílastæðis við Landmannalaugar hafa verið slegin af með úrskurði Úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála. Heildarmat skorti og samræmi við lög um stjórn vatnamála.
Landsvirkjun segir greinilega einhvern misskilning á ferð hjá sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps um staðsetningu áætlaðrar uppbyggingar vindmyllugarðs. Fyrirhugaður Búrfellslundur sé alfarið innan marka nágrannasveitarfélagsins Rangárþings ytra.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps mótmælir harðlega vinnubrögðum Landsvirkjunar við undirbúning útboðs á vindmyllum við Vaðöldu. Sveitarstjórnin segir að uppbyggingu vindmyllugarðs myndi vinna gegn hagsmunum nærsamfélagsins og valda óbætanlegu tjóni til framtíðar.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að kjósa um hvort breyta eigi nafni sveitarfélagsins, og hvert nýtt nafn ætti að vera. Sveitarstjóri telur að nýrra nafn verði að vera þjálla.
Einar Þorsteinsson nýkjörinn borgarstjóri segir ákall Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar um breytingar á pólitískri forystu borgarinnar hafa raungerst með kjöri hans í dag. Hann muni leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu í húsnæðismálum.
Bæjarstjórinn í Grindavík segir að þrátt fyrir miklar skemmdir í bænum gangi hann út frá því að áfram verði búið í Grindavík í framtíðinni. Ákveðin svæði verði hins vegar ekki áfram í byggð.
Við gerð fjárhagsáætlunar hækkuðu mörg stærri sveitarfélögin almennar gjaldskrár sínar umtalsvert á nýju ári, enda hafa verðbólga og hátt vaxtastig valdið sveitarfélögum eins og öðrum miklum vanda.
Ríkisstjórnin fundaði með bæjarstjórn og bæjarstjóra Grindavíkur að loknum reglulegum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar verður rætt vítt og breytt um málefni bæjarins vegna jarðhræringanna sem undanfarna mánuði.
Byggingarfulltrúi samþykkti í vikunni umsókn Rauða kross Íslands um að koma upp einingahúsum fyrir neyslurými á lóð við Borgartún 5 í Reykjavík. Umsóknin var samþykkt þann 9. janúar.
Borgarráð samþykkti í dag að útnefna Björk Guðmundsdóttur sem heiðursborgara Reykjavíkurborgar. Björk er sjöundi Reykvíkingurinn sem hlýtur þennan heiður og mun myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir gera Bjarkar- styttu.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hefur hafið störf hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Hún mun hafa aðsetur á skrifstofu sambandsins á Stéttinni, Húsavík.
Vonir standa til að næstu kjarasamningar muni tryggja stöðugleika og lága verðbólgu til langs tíma. Þess vegna höfðu bæjaryfirvöld í Hafnarfirði frumkvæði að því í byrjun desember að lýsa yfir mögulegri endurskoðun á gjaldskrám bæjarins. Með því móti vill sveitarfélagið hvetja til ábyrgrar samningagerðar á vinnumarkaði.
Forhönnun að nýju Austurstræti var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun. Gatan á að verða göngugata og í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að hönnun götunnar ýti undir það að hún verði áfram „ein mikilvægasta gata miðborgarinnar.“
Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði í Grindavík í dag í fyrsta skipti síðan í lok október. Forseti bæjarstjórnar segir innviði líta betur út en þau þorðu að vona og segir uppbyggingu varnargarða ganga hratt fyrir sig.
Það var gæfuspor sem var stigið þegar frístundastyrkur sveitarfélaga var tekinn upp á sínum tíma með það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu tómstundastarfi og tel ég að vel hafi tekist til að mörgu leyti.
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin hafa reynt að halda aftur af sér hvað varðar verðhækkanir á þessu ári. Sveitarfélögin vilja taka meira þátt í samtalinu þegar kemur að launahækkunum.
Árið 2023 hefur á margan hátt verið ákveðið tímamótaár og fjölmörg verkefni og áskoranir sem við sem störfum að sveitarstjórnarmálum höfum staðið frammi fyrir og tekist á við. Jarðhræringar og eldgos á Reykjanesi, rétt utan við Grindavík, hefur haft gríðarleg áhrif á íbúa bæjarins og sveitarfélagið.
Hópur heimilislausra manna mótmæltu lokun gistiskýlanna í Ráðhúsinu í dag. Þeir vilja fá að vera á sama staðnum allan daginn, og sérstaklega yfir jólin. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks segja hægt að gera meira fyrir heimilislausa.
Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári.
Ríkið hefur verið dæmt til að greiða Reykjavíkurborg tæplega 3,4 milljarða króna vegna ógreiddra framlaga þess fyrrnefnda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Sveitarfélagið Árborg hefur sent út tilkynningu til foreldra leikskólabarna vegna rúmlega helmingshækkunar á leikskólagjaldi er lúta að frávikum umsamins dvalartíma. Kostar hvert korter nú 1.911 krónur en hækkar upp í 3.000 krónur eftir áramót.
Sveitarstjórn Strandabyggðar á Vestfjörðum telur sig ekki hafa forsendur til að hlutast til um mál þar sem eiginkona sveitarstjórans sakar fyrrverandi sveitarstjórnarmann um að hafa dregið sér tugi milljóna á síðasta kjörtímabili. Innviðaráðuneytið beindi þeim tilmælum til sveitarstjórnarinnar að svara bréfum vegna málsins.