
Sveitarstjórnarmál

Heilræði úr Dölunum til borgarstjórnar Reykjavíkur
Það þarf ekki að koma nokkrum manni sem fylgist með umræðu um stjórnmál að meirahlutasamstarfi því sem komið var á árið 2022 var komið í ákveðið öngstræti þegar upp úr slitnaði sl. föstudag.

Vísa kjaradeilu við Sorpu til sáttasemjara vegna umboðsleysis samninganefndar
Stéttarfélögin Efling og Hlíf hafa vísað kjaradeildu sinni við Sorpu byggðasamlag til ríkissáttasemjara. Ástæðan er sögð sú að framkvæmdastjóri byggðasamlagsins hafi tekið fram fyrir hendurnar á samninganefnd sem ræddi við stéttarfélögin.

Menntun í gíslingu hrímþursa
Í yfirstandandi verkfalli kennara í leikskólum og grunnskólum sker það í augu að fulltrúar bæjar– og sveitarstjórna í landinu hafa ekki burði til takast á við það verkefni sem þeim ber skylda til þ.e. að halda skólastarfi gangandi í landinu.

Vinir Kópavogs þáðu styrki án réttrar skráningar
Vinir Kópavogs hafa þegið styrki upp á 2,3 milljónir króna síðustu þrjú ár án þess að uppfylla skilyrði laga um skráningu sem stjórnmálasamtök. Oddviti flokksins segir enga leiðsögn hafa fylgt greiðslum Kópavogsbæjar um skráningu flokksins en Vinir Kópavogs hafi þegar gert ráðstafanir til að skrá starfsemina.

Sveitarfélögin leiki sér að prósentum til að draga upp aðra mynd
Formaður Kennarasambandsins segir alrangt að kennurum hafi staðið til boða launahækkun upp á tuttugu prósent, áður en verkföll hófust í gær. Tal um slíkt sé leikur að tölum sem mögulega sé ætlað að dreifa athygli fólks frá því að sveitarfélögin hafi stefnt kennurum.

Segir kennara ekki hafa komið með formlegt tilboð
Samband íslenskra sveitarfélaga stefndi Kennarasambandi Íslands fyrir Félagsdóm í gær, í annað sinn í deilunni. Formaður Kennarasambandsins segir koma á óvart að Sveitarfélögin séu tilbúin með stefnu tólf tímum eftir að næstum því var búið að skrifa undir kjarasamning

Kennarar hafi hafnað 20 prósenta launahækkun
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að 20 prósenta launahækkun hafi staðið kennurum til boða en að því hafi þeir hafnað. Yfir fimm þúsund nemendur í ríflega tuttugu grunn- og leikskólum sátu heima í dag vegna kennaraverkfalls.

Stefna kennurum
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur höfðað mál fyrir Félagsdómi gegn Kennarasambandi Íslands og krefst þess að verkföll Kennarasambandsins, sem nú hafa skollið á að nýju, verði dæmd ólögmæt.

Kennarar töldu samning í höfn en pólitík hafi spillt fyrir
Ríkissáttasemjari segir að kjaradeila kennara og ríkis og sveitarfélaga hafi strandað á að kennarar hafi viljað meiri innspýtingar í virðismat á kennarastafinu en kom fram í innanhússtillögu hans. Fulltrúi í samninganefnd kennara taldi að kjaradeilan myndi leysast í gær. Hann telur að pólitík hafi spillt fyrir.

Nýr golfvöllur verði útivistarparadís fyrir Hafnfirðinga
Formaður starfshóps sem Hafnarfjarðarbær hefur skipað til að finna staðsetningu fyrir nýjan golfvöll segist líta til þess að hann verði að almennu útivistarsvæði fyrir bæjarbúa. Báðir golfklúbbar bæjarins eru áhugasamir um að reka nýjan völl.

Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) samþykkti í dag innanhússtillögu ríkissáttasemjara í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga.

Kolefnisförgunarstöð geti skapað Ölfusi störf og tekjur
Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti viljayfirlýsingu við Carbfix um undirbúning kolefnisförgunarstöðvar í gær. Verkefnið er sagt geta skapað fjölbreytt atvinnutækifæri og skilað sveitarfélaginu auknar tekjur. Sérstaka áherslu á að leggja á samráð við samfélagið um verkefnið.

Gagnrýna að einkarekstri leikskóla hafi verið haldið frá bæjarstjórn
Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar gagnrýna að meirihlutinn hafi ákveðið að nýr leikskóli í bænum yrði einkarekinn án umræðu í bæjarstjórn í trássi við sveitarstjórnarlög. Samingur um reksturinn var samþykktur á miðvikudag.

Samþykktu samhljóða að sparka ferðaþjónustufyrirtæki úr Bakkafirði
Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti samhljóða að segja upp leigusamningi við ferðaþjónustufyrirtækið North East Travel. Eigandi fyrirtækisins gagnrýndi neikvæðni og afskiptasemi íbúa sveitarfélagsins eftir lögreglurassíu þar í haust.

Um kjaradeilu sveitarfélaga og kennara
Fyrir meira en 10 árum skrifaði ég meistararitgerð þar sem ég m.a. tók saman nýlegar rannsóknir á stöðu grunnskóla á Íslandi. Á þeim tíma blasti við hræðileg staða í grunnskólanum sem afar brýnt var að bregðast við, það var ekki gert.

Samþykktu nýjar siðareglur kjörinna fulltrúa
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær nýjar siðareglur kjörinna fulltrúa. Siðareglurnar eru unnar af forsætisnefnd en komið var að endurskoðun þeirra siðareglna sem gilt hafa um kjörna fulltrúa og voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogi árið 2015.

Fjarðabyggð gegn kjarasamningum
Fyrir tæpu ári síðan voru undirritaðir langtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði þar sem launafólk undirgekkst afar hóflegar launahækkanir á verðbólgutímum gegn því að atvinnurekendur héldu aftur af verðhækkunum og hið opinbera aftur af gjaldskrárhækkunum.

Uppákoma eftir sérsveitaraðgerð á Bakkafirði „kornið sem fyllti mælinn“
Sveitarstjóri Langanesbyggðar segir að uppákoma í kjölfar sérsveitaraðgerðar á Bakkafirði í haust hafi verið kornið sem fyllti mælinn sem leiddi til þess að nú sé lagt til að leigusamningi við ferðaþjónustufyrirtæki þar verði sagt upp. Eigandi þess gagnrýndi neikvæðni og afskiptasemi íbúa eftir aðgerðina.

Gerði ekki samkomulag við Þórdísi um formannsframboðið
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt og ljóst að mikla vinnu þurfi innan flokksins til að endurheimta það. Flokkurinn sé samt langt því frá að vera brotinn. Með mikinn stuðning í grasrót og fjölda sveitarstjórnarfulltrúa. Það séu fjórtán þingmenn, sem mætti vera fleiri, en þau séu með skýra hugsjón.

Þýðir ekki að fara á taugum segir borgarstjóri og hyggur á endurkjör
Einar Þorsteinsson borgarstjóri lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir slægt gengi Framsóknarflokksins í könnunum bæði á landsvísu og í borginni. Í Samtalinu með Heimi Má á fimmtudag sagðist hann hafa fulla trú á að árangur flokksins í borginni muni skila sér í næstu kosningum og telur farsælast að Sigurður Ingi Jóhannsson haldi áfram að leiða Framsóknarflokkinn á landsvísu.

Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið
Einar Þorsteinsson borgarstjóri er mótfallinn því að miklum fjölda hælisleitenda verði komið fyrir í JL húsinu. Í Samtalinu með Heimi Má sem sýnt verður í opinni dagskrá á Stöð 2 að loknum fréttum og Íslandi í dag segir hann ekki æskilegt að mikill fjöldi hælisleitenda sé hafður á einum stað.

Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi
Bæjarráð Ölfuss tekur jákvætt í áhuga Carbfix á að reisa kolefnisförgunarstöð í sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að máli verði unnið í samvinnu við íbúa en áform Carbfix um kolefnisförgunarstöð í Hafnarfirði hefur mætt harðri andstöðu þar.

Í leikskóla er gaman – þegar það má mæta
Leikskólinn Brákarborg hefur verið mikið í fréttunum undanfarið, því miður ekki af góðu. Fyrirferðamestar hafa verið fréttir af nýju húsnæði skólans sem flutt var í um miðjan ágúst 2022. Síðastliðið sumar, rétt fyrir opnun eftir sumarlokun, komu í ljós verulegir hönnunar- og burðarþolsgallar á nýja fallega húsnæðinu sem urðu þess valdandi að flytja þurfti alla starfsemina á nýja staði.

Bjarni hættir hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga
Stjórn Sambands sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og Bjarni Guðmundsson framkvæmdstjóri hafa komist að samkomulagi um starfslok hans hjá samtökunum.

Íbúar í Garði ósáttir við uppbyggingu á þekktu flóðasvæði
Íbúar í Garði eru margir ósáttir við breytingu á jörð Gauksstaða fyrir ferðaþjónustu. Samkvæmt deiliskipulagstillögu sem auglýst var í nóvember er fyrirhugað að útbúa gistirými fyrir allt að fimmtíu manns í fimmtán ferðaþjónustuhúsum auk þess að byggja þjónustubyggingu.

Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu
Íbúi í Smyrilshlíð í Hlíðarendahverfi hefur miklar áhyggjur af fyrirhuguðu fimm hæða húsi nokkrum metrum frá íbúð hennar. Íbúð sem áður var auglýst sem útsýnisíbúð verði án sólarljóss allan ársins hring breyti borgin ekki áformum.

Innri endurskoðun tekur ferlíkið við Álfabakka fyrir
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar mun gera ítarlega stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu er varðar Álfabakka 2a, Suður- Mjódd, þar sem hið umdeilda vöruhús Haga hefur valdið mikilli óánægju meðal íbúa.

Stöndum vörð um menntun og styðjum við kennara
Í upphafi nýs árs er vert að ræða eitt mikilvægasta verkefnið innan menntakerfisins, að fjölga kennurum í landinu, bæta starfsumhverfi þeirra og styðja við nýja kennara.

Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið
Fleiri en þúsund hafa skrifað undir undirskriftalista um að stöðva framkvæmdir við Álfabakka 2 á meðan farsæl lausn er fundin í málinu. Íbúar ætla að fjölmenna á borgarstjórnarfund á morgun til að kalla eftir aðgerðum. Kristján Hálfdánarson, formaður húsfélagsins í Árskógum 7, íbúðarhúsnæði Búseta við hlið Álfabakka 2, fór yfir kröfur íbúanna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Yrkjum lífsgæði í Dölunum
Gleðilegt nýtt ár kæri lesandi, nú í upphafi árs 2025 langar mig til að vekja athygli á eftirfarandi verkefnum sem við í Dalabyggð höfum unnið með íbúum í Dölunum að undanfarin misseri í samstarfi við fleira gott fólk .