
Lögreglan

Norðurvígi segist ekki tengjast handtökunum
Nýnasistasamtökin Norðurvígi sem einnig eru þekkt sem Norræna mótstöðuhreyfingin hefur neitað því að tengjast öfgahópum og það sé ekki fólk innan samtakanna sem ætli sér að fremja hryðjuverk.

„Við höfum meira og minna verið laus við þessar hreyfingar“
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur segist brugðið eftir fréttir af því að lögreglan hafi lagt hald á mikið magn vopna og byssuskota í gær og mögulega komið í veg fyrir hryðjuverkaárás. Enn sé þó tiltölulega lítið vitað um málið og best sé að halda ró sinni.

„Getum alveg átt von á svona atburðum eins og nágrannaþjóðir okkar“
Tveir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á Íslandi. Að sögn lögreglu má ætla að áformuð hryðjuverk hafi jafnvel beinst gegn Alþingi, stjórnmálamönnum eða lögreglunni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir atburðinn gríðarlega alvarlegan.

Lögreglumenn slegnir: „Við viljum öll komast lifandi heim úr vinnunni“
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld, að lögreglumenn væru slegnir yfir fregnum síðustu daga. Þeir væru slegnir yfir því að þurfa að óttast um líf sín í vinnunni.

Ætla ekki að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að ekki standi til að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar í tengslum við handtökurnar í gær. Aðgerðir sérsveitar ríkislögreglustjóra hafi verið vel heppnaðar og að gripið hafi verið inn í, áður en eitthvað gerðist.

Mögulegt að árásin hefði beinst gegn Alþingi eða lögreglu
Mennirnir fjórir sem grunaðir eru um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi voru allir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri en refsing fyrir hryðjuverk er allt að lífstíðarfangelsi. Að sögn lögreglu má ætla að möguleg árás hefði beinst gegn Alþingi eða jafnvel lögreglu. Tengsl við erlend öfgasamtök eru til skoðunar.

Grunaðir um að undirbúa hryðjuverk
Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglu grunar að mennirnir hafi haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi sem áttu að beinast gegn borgurum og stofnunum ríkisins.

„Þurfum að fara að stíga fast til jarðar“
Fjórir voru handteknir í gær vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi og viðamikil vopnalagabrot. Sérsveit tók þátt í aðgerðum, sem eru taldar hafa orðið til þess að afstýra hættuástandi á staðnum. Dómsmálaráðherra segir komið að því að stíga fast til jarðar í baráttunni við glæpahópa. Lögregla reiknar með að boða til blaðamannafundar í dag vegna aðgerðanna í gær.

Erla hafi logið upp á þá án aðstoðar lögreglu
Magnús Leópoldsson, einn þeirra sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í 105 daga eftir að hafa verið bendlaður við hvarf Geirfinns Einarssonar árið 1976, segir niðurstöðu Endurupptökudóms vera hárrétta. Hann segir Erlu hafa logið um aðild hans að málinu án þess að vera undir pressu frá lögreglunni.

Segist ekkert vita um hvað Erla Bolladóttir sé að tala
Sigurbjörn Víðir Eggertsson, fyrrverandi yfirmaður ofbeldis- og kynferðisbrotadeildar lögreglu, segist ekki kannast við að vera sekur um þær ásakanir sem Erla Bolladóttir lét falla á blaðamannafundi fyrr í dag. Þar fullyrti Erla að Sigurbjörn Víðir hefði nauðgað henni í fangaklefa þegar Erla sætti gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálunum.

Með ólæknandi krabbamein og þráir réttlæti
Erla Bolladóttur greindi frá því á blaðamannafundi í dag að hún væri með krabbamein sem læknar teldu ólæknandi. Hún þráir ekkert heitar en að mál hennar fái réttlát endalok. Það kemur til greina að fara með mál hennar til Mannréttindardómstóls Evrópu.

Þórður Snær segir rannsókn Páleyjar ráðast af hagsmunum Samherja
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur birt aðsenda grein á fréttavef sínum, þar sem hann setur fram alvarlegar ásakanir á hendur Páley Borgþórsdóttur og lögregluembættinu á Norðurlandi eystra.

„Ekki kann lögreglan að meta það“
Í þakkarræðu sinni á Edduverðlaununum í kvöld skaut Þóra Arnórsdóttir föstum skotum að lögreglu og Samherja þegar hún tók við verðlaunum fyrir hönd umsjónarmanna Kveiks, sem hlutu verðlaun fyrir fréttaskýringaþátt ársins.

Sex sóttu um stöðu lögreglustjórans á Vestfjörðum
Karl Ingi Vilbergsson fyrrverandi lögreglustjóri á Vestfjörðum lét af störfum í ágúst síðastliðnum. Sex einstaklingar sóttu um stöðu lögreglustjórans sem auglýst var af dómsmálaráðuneytinu.

Fjöldi kvenna í Kvennaathvarfinu þegar orðinn meiri en í fyrra
Fleiri konur og börn hafa dvalið í Kvennaathvarfinu það sem af er ári en gerðu allt árið í fyrra. Aðsókn í viðtalsþjónustu athvarfsins hefur þá margfaldast frá árinu 2021.

Fleiri tilkynningar ekki endilega merki um meira ofbeldi
Verkefnastjóri aðgerða gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra segir það hafa verið skýrt markmið hjá stjórnvöldum að ekki einungis fækka ofbeldisbrotum heldur einnig að fjölga tilkynningum. Það endurspeglist í mikilli aukningu tilkynninga um heimilis- og kynferðisofbeldi.

Tilkynnt um rúmlega tuttugu nauðganir á mánuði
Lögregla á Íslandi skráði um 125 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins 2022 og samsvarar það um 28 prósenta fjölgun frá því á síðasta ári. Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fjölgar skráðum nauðgunum um 30 prósent og eru nú að meðaltali skráðar tilkynningar um 21 nauðgun á mánuði hjá lögreglunni.

Mikil fjölgun öryggismyndavéla við heimili: Góðkunningjar lögreglu þekkjast oft á upptökum
Töluverð aukning hefur orðið á því að myndbandsupptökur berist lögreglu í þjófnaðarmálum, en þær liggja fyrir í fjórða hverju máli. Sala á öryggismyndavélum til heimila hefur margfaldast en á sama tíma hefur kvörtunum til Persónuverndar vegna slíkra myndavéla fjölgað.


Samfélaginu stafi raunveruleg ógn af peningaþvætti
Þó nokkur mál hafa komið upp undanfarið hjá lögreglunni þar sem grunur er um stórfellt peningaþvætti og sífellt fleiri tilkynningar berast. Varaseðlabankastjóri segir hagkerfinu stafa raunveruleg ógn af slíkum glæpum

Fjölga þurfi lögreglumönnum um allt að 75 til að bregðast við styttri vinnuviku
Fjölga þarf lögreglumönnum um allt að 75 vegna styttingar vinnuvikunnar. Ríkislögreglustjóri segir ekki duga til að hafa fjölgað lögreglunemum úr fjörutíu í áttatíu í haust. Þeim þurfi að fjölga enn meira til að brúa bilið.

Blaðamennska í ágjöf norðlensks réttarfars
Enn hefur lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra kallað fjóra blaðamenn til yfirheyrslu vegna tapaðs síma í eigu húskarls Samherja. Enn heyrist ekkert af yfirheyrslum yfir Samherjamönnum vegna meintar mútustarfssemi í þróunarlandi – örlítið stærra mál en tapaður sími.

Rannsóknin flókin og erfitt að gefa upplýsingar sem hægt sé að standa við á þessu stigi
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, segir að enn sem komið er sé aðeins gróf mynd komin á atburðarásina í skotárásinni á Blönduósi á sunnudag. Hún er sammála því að mikilvægt sé að lögregla upplýsi um gang rannsókna á sakamálum en segir að lögregla hafi einfaldlega ekki haft neinu nýju við að bæta síðustu daga.

Handtekinn vegna gruns um líkamsárás
Maður var handtekinn í nótt rétt eftir miðnætti, grunaður um líkamsárás. Að sögn lögreglu var hann mjög ölvaður og gisti í fangageymslu.

Ósáttur að rannsóknin heyri undir annað embætti
Birgir Jónasson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra segist ekki sammála því að rannsóknir mála, eins og þess voðaverks sem upp kom á Blönduósi á sunnudag, eigi að vera í höndum annars lögreglustjóra. Lögreglan á Norðurlandi eystra, sem fer með rannsókn málsins, hefur ekki veitt upplýsingar um framgang rannsóknarinnar til þessa.

„Þegar svona stór áföll verða þá er miðlun upplýsinga afar mikilvæg“
Prófessor í afbrotafræði segir harmleikinn á Blönduósi um síðustu helgi með þeim stærri sem hefur orðið í samfélaginu síðustu áratugi. Afar mikilvægt sé að opinberir aðilar gefi greinargóðar upplýsingar þegar slíkir atburðir verði.

Telur að stórefla þurfi öryggi vegfarenda í miðborginni
Stórefla þarf öryggi gangandi vegfarenda við stóra viðburði eins og Menningarnótt í miðbænum að mati sérfræðings í öryggismálum. Tvö tilvik þar sem ofurölvi ökumenn óku inn í mannmergð þar sem götulokanir voru í gildi sýni nauðsyn þess.

Þrjú ráðuneyti vinna að endurbótum í geðheilbrigðismálum
Bæði aðstandendur hjónanna sem ráðist var á á Blönduósi um helgina og aðstandendur árársarmannsins báðu í dag um næði frá fjölmiðlum. Þrjú ráðuneyti vinna að endurbótum í geðheilbrigðismálum.

Vill herða löggjöf um skotvopn og hefur áhyggjur af fjölgun hnífamála
Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að herða skotvopnalöggjöf hér á landi. Hann hefur jafnframt áhyggjur af fjölgun mála þar sem hnífar eru notaðir. Verið er að skoða hvort endurskoða þurfi vopnaburð lögreglu.

Í sárum eftir að hundurinn var aflífaður án nokkurs fyrirvara
Hundur fjölskyldu á Siglufirði var aflífaður á föstudaginn, einum og hálfum tíma eftir að hann var tekinn af þeim. Hundurinn var ekki settur í geðmat líkt og Heilbrigðiseftirlitið fer fram á. Fjölskyldan segist ekki hafa fengið að vita að það ætti að aflífa hann fyrr aðgerðin var þegar hafin í öðru bæjarfélagi.