
Heimilisofbeldi

Heard hættir við áfrýjun eftir samkomulag
Leikkonan Amber Heard hefur tilkynnt að hún hafi gert samkomulag um að hætta við áfrýjun í meiðyrðamál Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún var í fyrra dæmd til að greiða Depp um tvo milljarða króna í skaðabætur vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist hafa verið fórnarlamb heimilisofbeldis.

Má ég gæta barnanna minna?
„Ef þú ætlar að skilja við mig mun ég drepa þig, ég mun ganga frá þér þangað til ekkert verður eftir af þér og gera líf þitt að algjöru helvíti.“ Hann fylgdi þessum orðum eftir með því að toga hana niður stiga svo að skvettist á hann úr vatnsglasinu sem hún hélt á, hann sendi börnin út að leika og nauðgaði henni um hábjartan dag.

Réðst á barnsmóður og 28 daga gamalt barn sitt: „Hræðilegt að sjá hana“
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 12 mánaða fangelsi fyrir brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð þáverandi kærustu sinnar og barnsmóður og 28 daga gamallar dóttur þeirra. Fram kemur í dómnum að konan hafi sætt margvíslegu ofbeldi af hálfu mannsins um langt skeið og þá hafi maðurinn haldið áfram að ásækja hana eftir að umrædd árás átti sér stað.

Ákærður fyrir tilraun til manndráps og hrottafengna nauðgun
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, nauðgun og stórfelld brot í nánu sambandi. Lýsingar í ákærunni gefa til kynna að atlaga mannsins að konunni hafi verið hrottafengin.

Að meðaltali sjö tilkynningar á dag um heimilisofbeldi eða ágreining
Tæplega átján hundruð tilkynningar bárust lögreglunni á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila á fyrstu níu mánuðum ársins. Jafngildir það að meðaltali tæplega sjö tilkynningum á dag og hafa þær aldrei verið fleiri ef litið er til sama tímabils síðustu sjö ára. Á sama tíma hefur tilkynningum um ofbeldi foreldris í garð barns fjölgað.

Hafði búið á Íslandi í nokkur ár en vissi ekki eigið heimilisfang
Mikilvægt er að halda á lofti umræðunni um ofbeldi í nánum samböndum segir ráðgjafi hjá Kvennaathvarfinu. Hún sér um fræðslu einstaklinga frá leikskólaaldri og segir að sérstaklega þurfi að huga að innflytjendum.

Heyrði öskrin í næsta herbergi og sá marblettina á mömmu
„Ég heyrði mjög oft í pabba mínum að öskra, oftast á mömmu. Herbergið mitt var við hliðina á þeirra. Ég heyrði pabba oft öskra og mömmu biðja hann að hætta.“

Mun færri konur fara nú aftur á ofbeldisheimilið
„Við leggjum af stað mjög hugaðar í þetta verkefni,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

„Þær taka valdið aftur í sínar hendur“
Gögn Kvennaathvarfsins eru ekki geymd undir nöfnum kvennanna sem þangað leita vegna ofbeldis í nánum samskiptum. Mikil áhersla er lögð á trúnað og eru konurnar ekki spurðar um nafn þess sem beitti þær ofbeldi.

Þessi leigubílstjóri bjargaði lífi mínu
„Klukkan var fjögur um nótt. Leigubílstjórinn keyrði mig og ég hugsaði fyrst og fremst um að fara einhvert þar sem ég gæti farið að sofa.“

Vörðusteinar
Verklagsreglur ríkislögreglustjóra um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála hefur reynst vel, samstarf við fagaðila heftur aukist og þolendum verið tryggð betri þjónusta. Þolendur heimilisofbeldis veigra sér oft við því að tilkynna lögreglu um ofbeldi enda gerandinn oft einstaklingur sem er nákominn þolanda. Í smærri sveitarfélögum þar sem íbúar þekkja flestir hvern annan getur það ekki síður verið þungbært að tilkynna um heimilisofbeldi.

Þarf stundum að þurrka tárin úti í horni
„Konurnar eru á öllum aldri. Hingað koma börn á öllum aldri líka. Við höfum fengið nýfædd börn í hús og allt að átján ára.“

Refsing fyrir gróft ofbeldi gegn dætrum og eiginkonu þyngd í tvö ár
Karlmaður var í gær dæmdur til tveggja ára óskilorðsbundinnar refsingar fyrir gróft ofbeldi gagnvart fjórum dætrum sínum og fyrrverandi eiginkonu. Þá var eiginkonan dæmd til sex mánaða skilorðsbundinnar refsingar fyrir ofbeldi gagnvart þremur dætranna.

„Við vissum ekki hvort við myndum lifa þetta af“
„Meðan hann var í vinnunni þá var þetta allt í lagi, við nutum þess að vera saman. Við höfum alltaf verið mjög þétt fjölskylda þannig að tíminn sem við áttum saman á meðan hann var í vinnu var mjög ljúfur. Svo var það skýið sem kom í kringum hálf fjögur og helgarnar sem voru bara martröð“

Söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf
Í kvöld er sýndur á Stöð 2 söfnunarþátturinn Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. Þátturinn er sýndur í opinni dagskrá og verður einnig hægt að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan.

Færðu Kvennaathvarfinu tveggja milljóna styrk
N1 færði Kvennaathvarfinu tveggja milljóna króna styrk í dag. Forsvarsfólk athvarfsins safnar nú fyrir nýju húsnæði undir starfsemina sem veitir sífellt fleiri konum aðstoð við að losna úr ofbeldissamböndum. Sökum aukinnar aðsóknar, breiðari þjónustu og aðgengismála er brýn þörf fyrir nýtt húsnæði, en áætlað er að nýja húsnæðið muni kosta um 500 milljónir króna.

„Pabbi var að lemja mömmu“
Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands Eystra fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa ráðist að barnsmóður sinni og sambýliskonu á heimili þeirra á Akureyri en þriggja ára sonur þeirra varð vitni að árásinni.

Eva Ruza og Sycamore Tree á góðgerðarviðburði fyrir Kvennaathvarfið
Nú er í fullum gangi landssöfnun þess að safna fyrir nýju og hentugra húsnæði fyrir Kvennaathvarfið í Reykjavík. Fimmtudaginn 10. nóvember verður sýndur söfnunarþáttur í opinni dagskrá á Stöð 2.

Nauðsynlegt að það foreldri sem beitir ofbeldi leiti sér aðstoðar
Oft getur reynst erfitt að komast út úr aðstæðum ofbeldis í nánum samböndum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við Jenný Kristínu Valberg, sem komst út úr ofbeldissambandi fyrir nokkrum árum með aðstoð Kvennaathvarfsins og starfar nú sem ráðgjafi og aðstoðar fólk í sömu stöðu.

Tveggja ára dómur fyrir stórfelld brot gegn barnsmóður og árás á samfanga
Landsréttur þyngdi fangelsisdóm yfir karlmanni sem var sakfelldur fyrir ítrekuð og stórfelld brot gegn barnsmóður sinni og sérstaklega hættulega líkamsárás á samfanga í gær. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í fimmtán mánaða fangelsi.

Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu komið í loftið
Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu hófst í dag en uppboðið er haldið í samvinnu við Gallerí Fold og Vísi. Má þar finna verk eftir okkar fremsta listafólk sem gaf málverk til málefnisins ásamt hópi einstaklinga sem gaf verk úr einkasafni.

Milda refsingu fyrir líkamsárás gegn eiginkonu sinni
Dómur karlmanns sem dæmdur var í sex ára fangelsi í Landsrétti í febrúar á þessu ári fyrir tilraun til manndráps var í dag mildaður um tvö ár fyrir Hæstarétti. Hæstiréttur heimfærði brotið undir stórfellda líkamsárás.

Ákærður fyrir að kyssa unglingsstúlku og ganga í skrokk á móður sinni
Karlmaður á fertugsaldri var í sumar ákærður fyrir að hafa kysst unglingsstúlku og tilraun til manndráps með því að hafa gengið illa í skrokk á móður sinni í Reykjavík.

Fjöldi kvenna í Kvennaathvarfinu þegar orðinn meiri en í fyrra
Fleiri konur og börn hafa dvalið í Kvennaathvarfinu það sem af er ári en gerðu allt árið í fyrra. Aðsókn í viðtalsþjónustu athvarfsins hefur þá margfaldast frá árinu 2021.

Fleiri tilkynningar ekki endilega merki um meira ofbeldi
Verkefnastjóri aðgerða gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra segir það hafa verið skýrt markmið hjá stjórnvöldum að ekki einungis fækka ofbeldisbrotum heldur einnig að fjölga tilkynningum. Það endurspeglist í mikilli aukningu tilkynninga um heimilis- og kynferðisofbeldi.

Heimilisofbeldismál aldrei fleiri hér á landi
Fjöldi tilvika tilkynninga til lögreglunnar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila og á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 hefur aldrei verið meiri, ef litið er til sama tímabils síðustu sjö ára á undan. Beiðnir um nálgunarbann hafa ekki verið færri síðan 2014.

Hinn óþægilegi sannleikur: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum
Orðræða, samtöl, skilgreiningar og skoðanir varðandi ofbeldi eru að gangast undir endurnýjun. Sögulegt og löngu tímabært uppgjör virðist vera að eiga sér stað, og þá sérstaklega gagnvart kynferðisofbeldi í íslensku samfélagi.

Rétta þarf aftur í máli Ryan Giggs
Kviðdómi í máli Ryan Giggs tókst ekki að komast að niðurstöðu eftir að hafa rætt málið saman í alls tuttugu klukkustundir. Réttað verður aftur í málinu þann 31. júlí á næsta ári.

Réttarhöldin yfir Ryan Giggs: Átti erfitt með að svara spurningum saksóknara
Níundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fór fram í gær. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot.

Ryan Giggs brotnaði niður og grét er hann bar vitni
Áttundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fór fram í gær. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot.