Geðheilbrigði

Talar opinskátt um geðhvörf enda engin skömm
Högni Egilsson tónlistarmaður og tónskáld segist ekki hafa passað nægilega vel upp á sjálfan sig um tíma og varð að víkja tímabundið frá tónlistinni vegna veikinda.

Lyfjanotkun ekki lengur frágangssök í lögreglunáminu
Notkun lyfseðilsskyldra lyfja verður ekki lengur útilokandi þáttur við inntöku í starfsnám í lögreglufræðum hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Þetta kemur fram í tölvupósti frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til Ólafíu Kristínar Norðfjörð, sem hefur tvívegis verið neitað um námið sökum þess að hún tekur kvíða- og þunglyndislyfið Sertral.

Doktorsnemar nái ekki endum saman og andleg heilsa þeirra slæm
Andleg heilsa doktorsnema er oft á tíðum mjög slæm að sögn formanns félags doktorsnema. Þeir eigi erfitt með að ná endum saman og þurfi því að vinna mikið með náminu þrátt fyrir að doktorsnám sé skilgreint sem full vinna.

73 prósent íbúa á hjúkrunarheimilum á geðlyfjum
58,5% íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum voru með geðsjúkdómagreiningu árið 2018 og tóku 72,5% íbúa einhvers konar geðlyf að staðaldri. Neysla slíkra lyfja hefur aukist frá árinu 2012 og eru þunglyndislyf mest notuð.

Geðveikt nýtt ár?
Nýtt ár er rétt handan við hornið. Árið sem er að líða hefur verið erfitt þar sem heimsfaraldur hefur sett líf allra úr skorðum. Það eru þó bjartari tímar framundan, bóluefni komið til landsins og líklegt að hægt verði að ná tökum á faraldrinum á fyrri hluta næsta árs.

Bjarna Bernharði dæmdar bætur vegna nauðungarvistunar
Listamaðurinn Bjarni Bernharður Bjarnason fær 200 þúsund krónur í bætur auk dráttarvaxta frá 27. apríl 2017 og gjafsókn í máli hans á hendur ríkinu.

Hvernig eru jól á spítala?
Við sem sinnum sálgæslu, sjúkrahúsprestar- og djákni á Landspítala, fáum iðulega þær spurningar í tengslum við jól og aðventu hvort hægt sé að halda jól á spítala og hvernig slík jól séu. Eins deilir fólk vangaveltum sínum um það hvort jólin geti yfirhöfuð komið til þeirra sem dvelja á sjúkrahúsi um hátíðina.

Eftir höfðinu dansa limirnir
Ég þekki það vel hvernig það er að kljást við höfuðið. Það er líklega glíma sem við þekkjum flest. Enda sammannlegt að vera með höfuð þótt við séum vissulega misgóð í að halda höfði. Í höfðinu hreiðra líka um sig tilfinningarnar gleðin sem við þekkjum svo vel: þráin og spennan en líka reiðin, sorgin og efinn.

Koma mun betur undan fyrstu bylgju en kollegarnir úti í heimi
Frumniðurstöður rannsóknarinnar Líðan þjóðar á tímum Covid-19 eru afar áþekkar niðurstöðum þeirra rannsókna sem þykja sambærilegar hinni íslensku sem framkvæmdar hafa verið erlendis þó að einum meginþætti undanskildum.

Aukin hætta á þunglyndi og áfallastreitu hjá þeim sem hafa greinst með Covid-19
Frumniðurstöður rannsóknarinnar Líðan þjóðar á tímum Covid-19 sýna að þeir einstaklingar sem hafa greinst með sjúkdóminn eru eftir veikindi sín í aukinni áhættu á að sýna einkenni þunglyndis og áfallastreitu. Þetta á sérstaklega við um þau sem urðu alvarlega veik af sjúkdómnum.

Mun færri ávísanir á sýklalyf en fjölgun í ávísunum þunglyndislyfja
Ávísunum á sýklalyf hefur fækkað um 24% samkvæmt könnun Landlæknisembættisins á heilsu og líðan landsmanna í Covid-19 faraldrinum. Þetta má þakka persónulegum sóttvörnum sem hafa dregið úr öðrum sýkingum.

Einmanaleiki er vandamál
Í dag er geðheilbrigðisþing og á þessu sérstaka ári og komandi ári verðum við að beina kastljósi að líðan fólks. Ef það er ekki gert munum við eiga erfiðara með að standa undir þeim verkefnum sem árið hefur fært okkur. Ef við hugum ekki að andlegri heilsu okkar mun það taka okkur lengri tíma að koma okkur í eðlilegan farveg eftir heimsfaraldurinn.

Geðheilbrigðismálin ekki jaðarsett verkefni heilbrigðiskerfisins
Heilbrigðisráðherra mun taka mið af þeim ábendingum sem komu fram á geðheilbrigðisþingi í morgun frá sérfræðingum jafnt sem notendum geðheilbrigðisþjónustu við smíði nýrrar geðheilbrigðisstefnu til 2030. Hún segir brýnasta ákallið á sviði geðheilbrigðismála vera betri samþættingu ólíkra kerfa samfélagsins. Geðheilbrigðismálin séu ekki jaðarsett verkefni heilbrigðiskerfisins.

Bein útsending: Opið þing um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum
Geðheilbrigðisþing sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur boðað til hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 11:15. Ráðstefnan hefst með opnunarávarpi ráðherra en svo taka við stutt erindi leik- og fagmanna um efnið sem lýkur svo með pallborðsumræðum. Hægt er að fylgjast með þinginu hér á Vísi.

Landsréttur og geðheilbrigði í Víglínunni
Umræður og fréttir af nýlegum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu hafa verið fyrirferðamiklar í fjölmiðlum að undanförnu. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær Sigríði Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra til sín í Víglínuna í dag. Þá ræðir hann einnig við Svein Rúnar Hauksson lækni um geðheilbrigðismál en hann kallar m.a. eftir afnámi laga sem heimila að þvinga sjúklinga til að taka lyf.

Gott samfélag tryggir gott geðheilbrigði
Fyrr á þessu ári var samþykkt að fella sálfræðiþjónustu undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands. Frumvarpið var samþykkt samhljóða á síðasta þingi og mikil eining virtist ríkja um málið, en þó er ekki gert ráð fyrir því í fjárlögum næsta árs.

Áföll hafa litað líf Birgittu Haukdal
Birgitta Haukdal er einhver mesta poppstjarna sem til hefur verið hér á landi en er í dag einnig rithöfundur. Hún ræðir um lífið og tilveruna við Snæbjörn Ragnarsson í hlaðvarpinu Snæbjörn talar við fólk. Bæði eru þau frá Húsavík og þekkjast vel og hafa gert í mörg ár.

„Ég var oft hrædd um hann“
Eftir skyndilegt andlát Gísla Rúnars Jónssonar ákvað stjúpdóttir hans Eva Dögg Sigurgeirsdóttir að koma fram opinberlega og ræða á gagnrýninn hátt um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Gísli Rúnar svipti sig lífi í sumar.

„Svo bara kvaddi ég hann og hef aldrei séð hann aftur“
Leikarinn Björgvin Franz Gíslason hefur slegið í gegn í senunni undanfarin ár en í sumar missti hann föður sinn Gísla Rúnar Jónsson, leikara, leikstjóra og handritshöfund en Gísli var sannkölluð þjóðareign.

Reyndi að svipta sig lífi eftir röð áfalla og baráttu við átröskun
Móeiður Sif Skúladóttir er gríðarlega hraust suðurnesjamær sem stundar nám í einkaþjálfun og æfir bæði crossfit og fitness í sporthúsinu í Keflavík.

Svörum kallinu
Á dögunum fór fram umræða á Alþingi um biðlista eftir úrræðum fyrir börn með geðheilbrigðisvandamál. Í umræðunni kom ég sérstaklega inn á þann þátt sem snýr að því til hvaða aðgerða ráðherra hyggðist grípa til og í framhaldinu lagði ég til að ráðist væri í úttekt á geðheilbrigðisþjónustu í landinu.

Að stuðla að aukinni vellíðan í móðurhlutverkinu með aðferðum jákvæðrar sálfræði
Móðurhlutverkið er margslungið, það er krefjandi, skemmtilegt, erfitt, yndislegt, gefandi og fjölbreytilegt.

Óþreyjufullur eftir framþróun í geðheilbrigðismálum eftir þrotlausa vinnu frá átján ára aldri
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og stjórnarmaður í Geðhjálp til fjölda ára er orðinn óþreyjufullur eftir áratugastörf í þágu geðheilbrigðismála. Hann vill sjá nýja nálgun í málaflokknum og að honum sé forgangsraðað, helst ekki seinna en strax.

Fjöldi sjálfsvíga svipaður og síðustu ár
Alls sviptu átján manns sig lífi á Íslandi á fyrri hluta ársins 2020, eða 4,9 á hverja 100 þúsund íbúa. Fjöldinn samræmist þeim sem verið hefur síðustu ár.

Nokkur orð um mikilvægi geðgreininga
Reglulega heyrast þær raddir að óeðlileg aukning hafi orðið í greiningum á geðröskunum undanfarin ár og minnstu frávik, sem áður þóttu eðlileg, orðið sjúkdómsvædd.

Ekki hægt að fara of lengi áfram á hnefanum
„Ef maður vinnur ekki jafnt og þétt í gegnum þetta og byrjar að fá aðstoð eins fljótt og hægt er, að þá tekur maður það bara út mun erfiðara og verra, sjokkið sem kemur eftir á,“ segir Gísli Álfgeirsson. Olga eiginkona Gísla greindist með brjóstakrabbamein árið 2013 og barðist í sjö ár. Hún lést í júlí á síðasta ári.

Tók áður enga ábyrgð á sjálfri sér og hjálpar nú öðrum í sömu stöðu
Halldóra Hanna Halldórsdóttir lenti á vegg árið 2019 eftir að vera í mörg ár í vanlíðan og „fórnarlambagír.“ Hún segir algengt að foreldrar langveikra og fatlaðra barna setji ekki eigin andlega og líkamlega heilsu í forgang.

Sköpum skemmtilegri foreldra!
Geðheilbrigði er ein af grundvallarforsendum heilbrigðis. Fólk sem hefur góða geðheilsu finnur fyrir andlegri vellíðan sem gerir þeim kleift að nýta hæfileika sína og blómstra í lífi og starfi.

Börn með sjálfsvígshugsanir vegna nektarmynda
Dæmi eru um að börn fái sjálfsvígshuganir eftir að nektarmynd af þeim fer í dreifingu á netinu. Verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins segir nokkuð algengt að börn í slíkri stöðu hafi samband.

„Skilinn eftir í þessari íbúð til að rotna og deyja“
Fyrir rúmum sex árum fékk Rán Péturs Bjargardóttir símtal frá föður sínum. Hún hafði þá ekki heyrt í honum árum saman, en hann var fíkill sem háði baráttu við geðklofa.