

„Mér líður betur í dag en í gær. Ég var með hausverk út kvöldið, og allan daginn í gær,“ segir Rasmus Christiansen, miðvörður Vals, sem varð að fara af velli vegna höfuðmeiðsla í leiknum við KR þegar keppni í Pepsi Max-deildinni hófst á laugardaginn.
Rúnar Kristinsson hefur fagnað sigri tvöfalt oftar en Heimir Guðjónsson í innbyrðis leikjum liða þeirra í úrvalsdeild.
Íslandsmeistarar KR heimsóttu Valsmenn í fyrsta leik Pepsi Max deildar karla í fótbolta en KR-ingar tóku Íslandsmeistaratitilinn af Valsmönnum í fyrrasumar.
Elín Metta skoraði fyrsta mark Pepsi Max deildarinnar sumarið 2020 en markið kom áður en mótið átti að vera formlega farið af stað.
Hvaða gömlu refir láta ljós sitt skína í sumar?
Enski markahrókurinn Gary Martin valdi tvö mörk gegn Val sem sín uppáhalds mörk á ferlinum, í þættinum Topp 5 á Stöð 2 Sport.
Elín Metta Jensen skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins 2020 eftir aðeins níutíu sekúndna leik gegn KR. Hún skoraði tvö marka Vals í 3-0 sigri en öll mörkin má sjá í fréttinni.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segist hafa fengið skot á sig frá KR-vinum sínum eftir að hann tók við liði Vals en Heimir er fæddur og uppalinn vestur í bæ.
KR-konur hafa ekki unnið Val í meira en ellefu ár og þær hafa ekki skorað hjá Valskonum í síðustu sjö deildarleikjum. Liðin mætast í opnunarleik Íslandsmótsins í kvöld.
Daninn Rasmus Christiansen er með áhugaverðari erlendu leikmönnum sem hafa rekið fjörur íslenska boltans á síðustu árum. Valsmaðurinn kennir í KR-skóla, nemur Norðurlandafræði við Háskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á bókmenntum og listum.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Val 1. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir að upphafið að því að hann réði Srdjan Tufegdzic sem aðstoðarþjálfara sinn hjá Val hafi verið SMS sem hann fékk frá Túfa, eins og hann er oftast kallaður.
Norska knattspyrnufélagið Bodö/Glimt, sem varð í 2. sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, freistaði þess í vor að fá Hannes Þór Halldórsson til að snúa aftur til félagsins, án árangurs.
Heimir Guðjónsson gerir Val að Íslandsmeistara í fótbolta í fyrstu tilraun ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaganna í Pepsi Max-deild karla.
Í síðasta hluta spár Vísis fyrir Pepsi Max-deild kvenna er farið yfir liðin þrjú sem munu berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Karlalið Vals og kvennalið Breiðabliks endurheimta Íslandsmeistaratitlana rætist spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liðanna í Pepsi Max deildunum.
Tómas Ingi Tómasson, sparkspekingur Pepsi Max-markanna og fyrrum markahrókur, segir að Hannes Þór Halldórsson, markvörður Vals, þurfi að standa sig í sumar ef hann ætlar að eiga kost á að spila með Íslandi í umspilsleikjunum um sæti á EM 2021.
Tómas Ingi Tómasson, einn sparkspekingur Pepsi Max-markanna, segir að koma Arons Bjarnasonar í lið Vals muni ekki skipta sköpum í sumar en þetta sagði hann í fjórða og síðasta miðvikudags-upphitunarþætti Pepsi Max-markanna í gær.
Stúkunni á Origo vellinum á Hlíðarenda verður skipt niður í fjögur hólf og hvert þeirra verður með sér inngang á stórleik Vals og KR á laugardagskvöldið.
Pétur Pétursson afrekaði það í fyrrasumar sem aðeins einum öðrum þjálfara hefur tekist í sögu íslenskrar knattspyrnu.
James Hurst, fyrrverandi leikmaður ÍBV og Vals í fótbolta, hefur verið settur í gæsluvarðhald í Skotlandi í kjölfar þess að hann meðal annars hóstaði að lögregluþjónum og sagðist vera með kórónuveiruna.
Anna María Friðgeirsdóttir tryggði Selfossi fyrsta titil sumarsins í kvennaflokki er hún skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Val í Meistarakeppni KSÍ sem fór fram á Origo-vellinum í dag.
Selfoss vann meistarakeppni KSÍ í fyrsta sinn í dag, í fyrsta sinn sem liðið tók þátt, þegar Selfyssingar unnu Valskonur 2-1 á Hlíðarenda eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.
Valur vann 3-0 sigur á Fylki í æfingaleik er liðin mættust á Origo-vellinum. Þetta var liður í loka undirbúningi liðanna fyrir Pepsi Max-deildina sem hefst um aðra helgi.
Lovísa Thompson, leikmaður deildarmeistara Vals í handbolta, segist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum hér á landi. Ummæli eins og „þú ert bara góð í íþróttum því þú ert svona á litinn“ hafa fallið í návist Lovísu.
Fyrrum Íslandsmeistari ákvað að einbeita sér að búskap í vetur. Er nú gengin til liðs við Íslandsmeistara Vals.
Helena Sverrisdóttir, spilandi aðstoðarþjálfari deildarmeistara Vals í körfubolta, ætlar ekki að setja neina dagsetningu á það hvenær hún ætli sér að snúa aftur á völlinn eftir barnsburð.
Valsmenn eru deildarmeistarar í Olís deild karla 2020 en fengu bikarinn afhentan áttatíu dögum eftir síðasta leik.
Haukur Páll Sigurðsson er spenntur fyrir komandi tímabili og segir Valsmenn stefna á toppbaráttu eins og svo mörg önnur lið í deildinni.
Ólafur Jóhannesson náði ekki að vinna titil með Valsmönnum á síðasta tímabil og þar með lauk langri sigurgöngu hans liða.