Keflavík ÍF

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 78-66 | Keflvíkingar halda úrslitaeinvíginu á lífi
Keflavík vann afar mikilvægan tólf stiga sigur er liðið tók á móti Val í þriðja leik liðanna í úrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 78-66. Keflvíkingar voru með bakið upp við vegg fyrir leik kvöldsins, en komu í veg fyrir að Valskonur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld.

„Varnarlega djöfulsins kraftur í öllum, það er það sem skapar þetta“
Herði Axel Vilhjálmssyni, þjálfara Keflavíkur, var tíðrætt um samvinnu og liðsheild, eftir sigur hans kvenna á Val í úrslitaviðureign liðanna í Subway-deild kvenna í Keflavík í kvöld. Hans konur náðu að kalla fram þá kosti sem skiluðu þeim deildarmeistaratitlinum.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Keflavík 0-0 | Markalaust fyrir norðan
Tindastóll og Keflavík gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fyrstu umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.

„Við mætum dýrvitlausar í kvöld“
Dagbjört Dögg Karlsdóttir átti magnaðan leik fyrir Val er liðið vann annan leik einvígis liðsins við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta á dögunum. Valur leiðir einvígið 2-0 og getur tryggt sér titilinn með sigri í Reykjanesbæ í kvöld.

Lítið um skipti á lokadögum félagaskiptagluggans
Félagskiptagluggin lokar á miðnætti annað kvöld og ólíklegt er að margar hræringar í viðbót verði fyrir lok gluggans.

Umfjöllun og viðtöl: KA 0-0 Keflavík | Stigunum skipt á Akureyri
KA og Keflavík skiptu með sér stigunum í afar bragðdaufum leik þegar að liðin mættust á Akureyri fyrr í dag í Bestu deild karla. Niðurstaðan markalaust jafntefli.

„Ef við spilum svona verðum við ekki í toppbaráttu“
„Ég er mjög svekktur með frammistöðuna í þessum leik. Við spilum ekki nógu góðan leik, ég held við getum bara verið ánægðir með þetta eina stig,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 0-0 jafntefli á móti Keflavík á Greifavellinum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Valur 77 – 70 Keflavík | Valur hafði betur í framlengdum leik
Valskonur eru komnar í stöðuna 2-0 í úrslitaeinvígi sínu við Keflavík í Subway deild kvenna í körfubolta. Þetta varð ljóst eftir 77-70 sigur liðsins í framlengdum leik í Origohöllinni að Hlíðarenda í kvöld.

Besta spáin 2023: Miklar breytingar í Keflavík
Keflavík hefur endað í 8.sæti deildarinnar undanfarin tvö ár og verið fjórum stigum frá falli en vill eflaust ná betri árangri í ár. Til þess þurfa nýjir leikmenn að standa sig frábærlega.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 66-69 | Valskonur komnar yfir í úrslitaeinvíginu
Valur hóf úrslitaeinvígi Subway-deildar kvenna í körfubolta með því að hirða heimavallarréttinn af Keflavík. Sannkallaður spennutryllir í Keflavík sem endaði með þriggja stiga sigri Vals.

Bronsliði Blika spáð titlinum en Keflavík spáð falli
Breiðablik verður Íslandsmeistari og nýliðar FH halda sæti sínu í Bestu deild kvenna í fótbolta, samkvæmt spá þjálfara, fyrirliða og formanna félaganna tíu í deildinni.

„Við ætluðum okkur klárlega stærri hluti“
„Hjalti er búinn að vera í fjögur ár í Keflavík og í körfuboltaheiminum er það mjög langur tími. Heilt yfir hefur hann staðið sig vel og er samningslaus eftir tímabilið. Ég var ekki búinn að eiga neitt spjall við hann um að hann myndi hætta,“ sagði Magnús Sverrir Þorsteinsson, formaður Keflavíkur, í samtali við Vísi.

„Þetta er rosalega KR-legt“
KR-ingar byggja sóknarleik sinn mikið á spili upp kantana. Það skilaði sér í báðum mörkum þeirra í 0-2 sigri KR gegn Keflavík á laugardag á gervigrasinu fyrir utan Nettó-höllina í Bestu deildinni.

Umfjöllun: Tindastóll - Keflavík 97-79 | Stólarnir í undanúrslit eftir öruggan sigur
Tindastóll er komið í undanúrslit Subway-deildar karla í körfubolta eftir frábæran sigur á Keflavík á Sauðárkróki í kvöld. Tindastóll vann einvígið 3-1.

Hjalti Þór hættur með Keflavík
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur í Subway-deild karla, er hættur með liðið. Þetta staðfesti Hjalti Þór eftir að Keflavík féll úr leik í úrslitakeppni Subway-deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - KR 0-2 | KR sótti þrjú stig suður með sjó
Keflavík tók á móti KR í fyrsta leik 2. umferð Bestu deildar karla og sigruðu gestirnir úr Vesturbænum 2-0.

„Ágætis lausn í stað þess að spila á ónýtu grasi“
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, vonast eftir að hans menn komist á sigurbraut í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Liðið gerði jafntefli við KA í fyrstu umferðinni en sækja Keflvíkinga heim klukkan 14:00 í dag.

Fastan og fótboltinn fari vel saman
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti í gær að leyfa leikmönnum að óska eftir drykkjarhléi í fótboltaleikjum á Íslandi á meðan á Ramadan, heilagasti mánuður múslima, stendur. Mánuðinum fylgir fasta og Sami Kamel, leikmaður Keflavíkur, fastar þessa dagana og fagnar reglubreytingunni.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík – Keflavík 44-79 | Sendu Íslandsmeistarana í sumarfrí og flugu inn í úrslitin
Fyrr í kvöld fór fram fjórði leikur Njarðvíkur og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar kvenna. Um var að ræða heimaleik Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni. Keflavík hafði forystu í einvíginu með tvo vinninga gegn einum og gat tryggt sér sæti í úrslitunum með sigri. Skemmst er frá því að segja að Keflavík vann stóran sigur í leiknum 44-79 og tryggði sér þar með sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn,

Múslimar geta fengið drykkjarhlé í íslenska boltanum
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt að leyfa leikmönnum að óska eftir drykkjarhléi í fótboltaleikjum á Íslandi á meðan á ramadan, föstumánuði múslima, stendur.

Úkraínskur liðsstyrkur í vörn Keflavíkur
Keflvíkingum hefur borist liðsstyrkur frá Úkraínu í vörn sína. Oleksiy Kovtun er loksins kominn með leikheimild með liðinu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 100-78 | Sópurinn brotnaði
Tindastóll hefði með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta en Keflavík var ekki alveg á því máli að láta sópa sér úr keppni. Keflavík vann einstaklega öruggan sigur og einvígið lifir því áfram.

Hjalti Þór eftir að Keflavík braut sópinn: Megum ekki fara of hátt upp
Keflvíkingar unnu yfirburða sigur á Tindastóli í kvöld í þriðju viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla, lokatölur 100-78. Keflvíkingar virtust vera með góð tök á leiknum allt frá upphafi og gestirnir aldrei líklegir til að gera leikinn spennandi.

Leikur KR og Keflavíkur færður
Keflavík tekur á móti KR í annarri umferð Bestu deildar karla í fótbolta á laugardaginn kemur. Heimavöllur Keflavíkur er ekki klár, frekar en aðrir grasvellir landsins, og hefur leikurinn því verið færður.

„Það kallast að verjast þegar þú ert að sækja“
„Maður fann það síðustu vikuna að páskarnir voru eiginlega bara fullir tillhlökkunar að æfa og bíða eftir þessum degi í rauninni,“ sagði Sindri Snær Magnússon, miðjumaður Keflavíkur eftir 1-2 sigur þeirra á Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla.

Umfjöllun: Fylkir - Keflavík 1-2 | Gríðarleg dramatík í Lautinni
Nýliðar Fylkis töpuðu 1-2 gegn Keflavík í 1. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að hafa komist yfir með fyrsta marki Bestu deildarinnar árið 2023. Markið skoraði Benedikt Daríus Garðarsson. Sami Kamel Jafnaði metinn á 74. mínútu og sigurmarkið skoraði svo Dagur Ingi Valsson í uppbótartíma leiksins.

„Menn eru mjög bjartsýnir í efri byggðum Kópavogs“
Spennan magnast sífellt fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu sem hefur göngu sína síðar í dag. Vísir og Stöð 2 heyrðu í mönnum og spurðu einfaldlega hvaða körfur þeir gera til síns lið. Hér að neðan má heyra kröfur liðanna sem talið er að verði í botnbaráttu. Þau eru HK, Keflavík, Fylkir og Fram.

„Það skemmtilegasta sem maður gerir“
Taugarnar eru ljómandi fínar. Það er ótrúleg tilhlökkun og gleði í loftinu, segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, en hans menn opna Íslandsmótið sem nýliðar er Keflavík heimsækir Árbæinn klukkan 14:00 í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 79-52 | Keflavíkurkonur rúlluðu yfir Njarðvík
Keflavík er komið yfir í einvíginu gegn Njarðvík í Subway deildinni.

„Þetta var allt annað varnarlega“
Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur í Subway deild kvenna, var að vonum sáttur við stórsigur síns liðs á Njarðvík 79-52 í þriðja leik liðanna í undanúrslitum deildarinnar.