
Salan á Íslandsbanka

Bankinn hafi brugðist trausti
Fjármálaráðherra segir ljóst af sátt Íslandsbanka og Seðlabanka Íslands að Íslandsbanki hafi brugðist því trausti sem honum var sýnt þegar ákveðið var að hann myndi sjálfur sjá um útboð á hlut ríkisins í bankanum.

Efni skýrslunnar minni á lýsingar á „subbuskap fyrir hrun“
Tæplega hundrað blaðsíðna skýrsla um sáttina sem Fjármálaeftirlit Seðlabankans gerði við Íslandsbanka var birt í morgun en efni hennar hefur skotið mörgum skelk í bringu.

Katrín Jakobsdóttir stundi ómerkilega pólitík
Jóhann Páll Jóhannsson segir það ómerkilega pólitík hjá forsætisráðherra að segja að allir sem komu að söluferlinu á Íslandsbanka þurfi að standa skil á gjörðum sínum nema fjármálaráðherra. Trúi hún því að undirbúningur sölunnar standist skoðun ætti hún að falla frá andstöðu sinni við skipun rannsóknarnefndar.

„Það sem höfðingjarnir hafast að - hinir ætla að þeim leyfist það“
Það á jafn vel við nú að hugsa til orðtaks sálmaskáldsins, rétt eins og þá. Íslendingar virðast endalaust láta þá sem völdin hafa komast upp með að brjóta lög án þess að höfðingjarnir gjaldi fyrir það.

Bankasýsla ríkisins lýsir yfir miklum vonbrigðum
Í fréttatilkynningu segir að Bankasýsla ríkisins lýsi yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5 prósent eignarhlut ríkisins í bankanum, í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Boðað verður til hluthafafundar vegna málsins.

„Ábyrgðaraðilinn á sölunni hefur hvergi verið rannsakaður“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, segir skýrslu um sátt Íslandsbanka, sýna að bráðnauðsynlegt sé að sérstök rannsóknarnefnd Alþingis verði skipuð.

Fullyrtu um tuttugu milljóna lágmark sem enginn fótur var fyrir
Starfsmenn Íslandsbanka beindu útboði á hlut ríkisins að 99 almennum fjárfestum, þrátt fyrir að um útboð fyrir fagfjárfesta hafi verið að ræða. Í níu tilfellum, þar sem hljóðrituð símtöl liggja fyrir, kemur fram í símtölum starfsmanna bankans við almenna fjárfesta að lágmarksfjárhæð í útboðinu væri 20 milljónir króna. Þær fullyrðingar voru rangar.

Efnahags- og viðskiptanefnd fundar um Íslandsbanka
Stefnt er að því að boða til fundar efnahags- og viðskiptanefndar klukkan 11 á miðvikudag. Umræðuefnið verður samkomulag Seðlabankans og Íslandsbanka um 1,2 milljarða króna sekt hins síðarnefnda.

„Stjórnin á bankanum er óásættanleg að mínu mati“
Stjórnendur Íslandsbanka brugðust trausti þjóðarinnar algjörlega við sölu bankans á hlutum í eigu ríkisins og stjórn bankans er óáættanleg að mati viðskiptaráðherra. Alvarleg og kerfislæg brot Íslandsbanka við sölu bankans eru dregin fram í skýrslu Fjármálaeftirlits Seðlabankans um sátt sem gerð var á dögunum vegna sölunnar en birt var í morgun.

Vill að stjórnendur axli ábyrgð: „Það blasir við að þetta er áfellisdómur“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skýrsluna um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka áfellisdóm. Það sé eðlileg krafa almennings að stjórnendur bankans axli með einhverjum hætti ábyrgð.

Samþykktu allar beiðnir starfsmanna um að taka þátt í útboðinu
Regluvarsla Íslandsbanka samþykkti allar beiðnir starfsmanna um þátttöku í útboði á hlut ríkisins í bankanum í fyrra þrátt fyrir að aðeins fjórir starfsmenn og einn tengdur aðili væri flokkaður sem fagfjárfestar þegar útboðið hófst. Fjármálaeftirlitið telur þátttöku starfsmanna hafa skapað fjölmarga hagsmunaárekstra.

Reglur um hljóðupptökur viðvarandi vandamál hjá Íslandsbanka
Í sátt um greiðslu sektar Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum kemur fram að bankinn hafi brotið ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að skrá ekki og varðveita símtalsupptökur vegna 162 símtala sem starfsmenn hans áttu í tengslum við útboðið.

Háttsemi ISB haft „skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika“ fjármálamarkaða
Stjórn og bankastjóri Íslandsbanka sýndi af sér „athafnaleysi vegna viðvarandi annmarka“ á skráningu og varðveislu símtala þegar hann seldi hluti ríkisins í sjálfum sér auk þess sem stjórnarhættir bankans bera „vott um skort á áhættuvitund,“ að mati fjármálaeftirlits Seðlabankans. Eftirlitið telur brot Íslandsbanka benda til „veikleika í innra eftirlitskerfi“ hans og að háttsemin sé til þess fallin að hafa „skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika fjármálamarkaða.“

Sáttin birt: Flokkuðu fjárfesta ranglega, tóku ekki upp símtöl og villtu um fyrir Bankasýslunni
Seðlabankinn hefur birt samkomulag við Íslandsbanka um að ljúka máli bankans vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Meðal þess sem kemur fram í samkomulaginu er að stjórn bankans og bankastjóri hafi ekki innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit með fullnægjandi hætti. Þá voru átta almennir fjárfestar flokkaðir sem sem fagfjárfestar með röngum hætti.

Segir það ekki Íslandsbanka að birta sáttina
Birting sáttar sem Íslandsbanki gerði við Fjármálaeftirlitið strandar ekki á undirskrift stjórnenda bankans samkvæmt svörum frá samskiptastjóra. Skrifað var undir sáttina í gær og verður hún væntanlega gerð opinber á morgun. Þá skýrist meðal annars hvort kaup eiginmanns samskiptastjóra í bankanum hafi verið lögleg.

Skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sáttina í dag
Menningar- og viðskiptaráðherra skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sátt sem bankinn gerði við Fjármálaeftirlitið, ekki síðar en í dag. Hún segir framkomu stjórnenda bankans í garð almennings einkennast af virðingarleysi.

Það sem bankastjórinn meinti
Það er athyglisvert að stjórnandi fyrirtækis sem þarf að greiða 1200 milljónir í sekt vegna brota á lögum og reglum hefur ekki íhugað að segja af sér heldur segir bara „Ég nýt trausts innan stjórnar bankans og mun gegna starfi mínu áfram“

Lærlingurinn í Íslandsbanka
Fátt er göfugra en þegar fólk viðurkennir mistök sín og iðrast af hjartans einlægni. Nú hefur bankastjóri Íslandsbanka gengið þessa píslargöngu síðustu daga og viðurkennt að hafa gert mistök við sölu á eignarhlut ríkisins í bankanum og jafnvel brotið lög í því ferli.

„Menn geta ekki lagt á flótta þegar þeir þurfa að svara“
Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar segir svör bankastjóra Íslandsbanka varðandi sáttagreiðslu bankans við fjármálaeftirlitið í meira lagi loðin. Hún kallar eftir útskýringum fjármálaráðherra sem beri ábyrgð á málinu og segir ekki eðlilegt að menn leggi á flótta þegar svara er krafist. Bjarni Benediktsson hyggst ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

„Það er enn fullt af spurningum ósvarað“
Kristrún Frostadóttir segir ljóst að ekki var vel staðið að sölu Íslandsbanka. Með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins sé komin önnur rannsóknin sem sýni að pottur var verulega brotinn í ferlinu. Ríkisstjórnin þurfi að taka forystu í málinu og setja á fót rannsóknarnefnd.

Bankasýslan hafði enga aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins
Bankasýsla ríkisins segist ekki hafa haft neina aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins í tengslum við bankasöluna á síðasta ári. Bankasýslan segist ekki geta brugðist við fréttunum þar sem sáttin hefur ekki verið birt.

Seðlabankinn hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, telur að sektarfjárhæðin, 1.160 milljónir króna, sem bankinn hefur fallist á að greiða vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér, endurspegli það að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn.

Bankastjóri íhugar ekki að segja af sér
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, íhugar ekki að segja af sér þrátt fyrir að bankinn hafi gerst sekur um alvarlegt lögbrot og verið gert að greiða 1,16 milljarða króna sekt. Þingmaður segir útskýringar stjórnar bankans tilraun til að afvegaleiða umræðuna.

Sektin „töluvert hærri“ en markaðurinn gerði ráð fyrir
Sú sektarfjárhæð sem Íslandsbanki hefur fallist á að greiða upp á 1.160 milljónir vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér er fordæmalaus ef litið er til þeirra sekta sem hafa verið lagðar á eftirlitsskylda aðila þegar málum hefur lokið með sátt við fjármálaeftirlitið.

Íslandsbanki sektaður um rúman milljarð vegna útboðsins
Íslandsbanki hefur þegið boð fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að ljúka málinu um útboð á hlutum bankans með sátt. Íslandsbanki mun greiða rúman milljarð í sekt vegna alvarlegra brota sem hann gengst við. Þrátt fyrir þetta hækka afkomuspár bankans.

Segir svör Bjarna yfirgengilega ósvífin og ófullnægjandi
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur nú sent frá sér svör við spurningum um hæfi til Umboðsmanns alþingis. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir ekki standa stein yfir steini í svörum Bjarna.

Auka þurfi aðhald í efnahagsstjórninni
Að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru hagvaxtarhorfur á landinu fremur jákvæðar. Þeim fylgir þó ójafnvægi og er áhætta töluverð. Auka þurfi aðhald í efnahagsstjórninni en samtímis verja stöðu þeirra sem lakast standa. Komandi kjaraviðræður séu tækifæri til að tengja betur raunlaun og framleiðnivöxt.

Umbi vill skýrari svör frá Bjarna um Íslandsbankasöluna
Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað eftir frekari skýringum af hálfu Bjarna Benediktssonar á hæfi hans en þetta er vegna sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra.

Kristrún vill að minnsta kosti Landsbankann eftir sem áður í eigu ríkisins
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fákeppnismarkað eins og Ísland þurfi að regluvæða: „Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Landsbankanum í opinberri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opinbert viðmið um eðlilega arðsemi, eðlileg kostnaðarhlutföll.“

„Sjálfsagt að bregðast við fyrirspurn umboðsmanns“
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun bregðast við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis vegna umdeildrar sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka. Þetta segir Bjarni í skriflegu svari til fréttastofu.