
HM 2023 í körfubolta

Umfjöllun: Ítalía - Ísland 95-87 | Ítalir númeri of stórir á heimavelli
Ítalía lagði Ísland 95-87 í Bologna á Ítalíu fyrr í kvöld í fjórðu umferð undankeppni HM í körfubolta. Íslendingar byrjuðu mjög vel og náðu að nýta styrkleika sína mjög vel og voru með forskotið þegar einn leikhluti var búinn. Ítalir náðu þó vopnum sínum, sigu fram úr í öðrum leikhluta og sigldu síðan sigrinum heim í seinni hálfleik.

Leik Hollands og Rússlands frestað
Ísland mætir Ítalíu í kvöld í Bologna í H-riðli undankeppni HM í körfubolta. Á sama tíma átti að fara fram leikur Hollands og Rússlands í sama riðli en þeim leik hefur nú verið frestað.

Ísland hefur ekki tapað heimaleik með Martin í búning í meira en fjögur ár
Íslenska körfuboltalandsliðið vann frábæran sigur á sterku liði Ítala í Ólafssal í gær en íslensku strákarnir lönduðu sigri eftir tvær framlengingar.

Jón Axel búinn að græja veitingastað í Bologna
Jón Axel Guðmundsson er á leið til Bologna á Ítalíu, þar sem hann spilaði fyrri hluta leiktíðar, til að mæta Ítölum öðru sinni í undankeppni HM í körfubolta. Ísland vann þegar liðin mættust í Ólafssal í gær í tvíframlengdum trylli.

Stórkostleg frammistaða Tryggva í gær rústaði gamla framlagsmeti FIBA
Enginn hefur skilað hærra framlagi til síns liðs í undankeppni Evrópu í körfubolta en Tryggvi Snær Hlinason gerði í sigri á Ítölum í Ólafssalnum á Ásvöllum í gær.

Umfjöllun: Ísland - Ítalía 107-105 | Í frábærri stöðu eftir spennutrylli
Eftir algjöran spennutrylli í kvöld er Ísland á mjög góðri leið með að komast upp úr sínum riðli og á seinna stig undankeppni HM í körfubolta með glæsilegum sigri gegn Ítalíu í Ólafssal, 107-105.

Risastór sigur fyrir Ísland og hefði verið hræðilegt að þurfa að spila erlendis
„Þetta er risastór sigur fyrir Ísland og eitthvað til að byggja á,“ segir Martin Hermannsson sem einhvern veginn tókst að spila heilan leik og tvær framlengingar þrátt fyrir að meiðast tvisvar í fyrri hálfleik í kvöld.

„Held að við höfum verið mjög pirrandi“
„Þetta er risastórt fyrir okkur,“ var það fyrsta sem Tryggvi Snær Hlinason sagði eftir stórkostlegan sigur Íslands gegn Ítalíu í undankeppni HM í körfubolta, í tvíframlengdum spennutrylli í Hafnarfirði í kvöld.

Haukur með Covid og spilar ekki gegn Ítölum
Haukur Helgi Pálsson verður ekki með íslenska landsliðinu í körfubolta í kvöld þegar liðið mætir Ítölum í undankeppni HM.

Rússar lögðu Hollendinga örugglega að velli
Rússar eru áfram taplausir á toppi H-riðils í undankeppni HM í körfubolta eftir ellefu stiga sigur á Hollendingum í Perm í Rússlandi í dag.

Tryggvi Snær: Þurfum að koma þeim á óvart með okkar íslenska brjálæði
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta verður í eldlínunni í kvöld þegar liðið leikur sinn fyrsta landsleik á árinu 2022. Tryggvi Snær Hlinason og félagar gætu þar stigið stórt skref í átt að því að komast upp úr sínum riðli í undankeppni HM.

Haukur Helgi: „Skandall að þetta sé staðan“
Haukur Helgi Pálsson mun að öllum líkindum snúa aftur í landsliðið í kvöld þegar Ísland tekur á móti Ítalíu í undankeppni fyrir Heimsmeistaramótið í körfubolta 2023.

Haukur Helgi: Við erum með hörkulið núna
Haukur Helgi Pálsson leikur vonandi sinn fyrsta landsleik í 1099 daga þegar Ísland spilar við Ítali á Ásvöllum.

Martin sáttur með lífið: Er í stóru hlutverki í mjög góðu liði
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar á morgun sinn fyrsta heimaleik í 732 daga þegar Ítalir koma í heimsókn á Ásvelli. Í íslenska liðinu verður Martin Hermannsson sem spilaði síðast á Íslandi í ágústmánuði árið 2019.

Martin með og þeir Haukur, Hörður, Sigurður og Pavel koma allir aftur inn
Craig Pedersen hefur valið fimmtán manna landsliðshóp fyrir tvo leiki karlalandsliðsins í körfubolta í undankeppni HM. Annar leikjanna er fyrstu heimaleikur íslenska liðsins í langan tíma.

Íslenska landsliðið má spila á Íslandi: Ólafssalur fékk undanþágu frá FIBA
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur verið heimilislaust eftir að Laugardalshöllin datt úr vegna vatnsskemmda því liðið fékk ekki leyfi frá FIBA til að spila á heimavelli í undankeppni HM í lok síðasta árs. Nú hefur Ólafssalur á Ásvöllum fengið sérstaka undanþágu frá FIBA.

Steve Kerr leysir Gregg Popovich af hólmi
Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, mun taka við bandaríska landsliðinu í körfubolta. Hans fyrsta markmið verður að tryggja sæti á heimsmeistaramótinu 2023 og Ólympíuleikunum í París ári síðar.

Formaður KKÍ segir að mögulegt að FIBA veiti Íslandi undanþágu fyrir næsta heimaleik
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, ræddi við Vísi um stöðu mála í Laugardalshöllinni eftir að íslenska karlalandsliðið tapaði gegn Rússlandi ytra í undankeppni HM 2023.

Umfjöllun og viðtöl: Rússland - Ísland 89-65 | Rússneski björninn reyndist Íslandi ofviða
Íslenska landsliðið í körfubolta mátti þola stórt tap í Pétursborg í Rússlandi í kvöld er það mætti heimamönnum í undankeppni HM. Lokatölur 89-65 heimamönnum í vil.

„Við þurfum okkar áhorfendur“
Ægir Þór Steinarsson, leikmaður Íslands, var svekktur með 24 stiga tap gegn Rússlandi, 89-65. Ægir kennir slakri byrjun á leiknum um tapið en minnir þó á að Rússar eru með gífurlega sterkt lið.

Martin ekki með gegn Rússum
Martin Hermannsson verður ekki með íslenska landsliðinu í körfubolta í kvöld þegar liðið spilar við Rússland í undankeppni HM.

Þurftu að hlusta á rangan þjóðsöng en sungu bara þá hinn rétta í staðinn
Starfsmenn Körfuboltasambandsins í Kasakstan gerðu vandræðalega mistök fyrir leik Kasakstan og Sýrlands í undankeppni HM í körfubolta um helgina.

Formaður KKÍ: Landslið Íslands eiga ekki heimili á Íslandi
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, er á ferð og flugi með landsliðinu þessa dagana en liðið leikur í undankeppni heimsmeistaramótsins 2023 um þessar mundir.

Umfjöllun: Holland - Ísland 77-79| Martin stórkostlegur er Ísland hóf undankeppnina á sigri
Ísland hóf undankeppni HM 2023 á sigri gegn Hollandi ytra. Þrátt fyrir jafnan leik var Ísland yfir í 28 mínútur. Leikurinn endaði með tveggja stiga sigri Íslands 77-79.

Rússar með góðan sigur gegn Ítölum í riðli Íslands
Rússar unnu góðan 14 stiga sigur gegn Ítölum er liðin mættust í fyrsta leik H-riðils okkar Íslendinga í undankeppni HM 2023 í körfubolta, 92-78.

Horfir jákvæðum augum á heimavallarvandann og fagnar komu Martins og Jóns Axels
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, fagnar að sjálfsögðu endurkomu Martins Hermannssonar í landsliðið fyrir komandi leiki gegn Hollandi og Rússlandi í undankeppni HM.

Ekki náð hálftíma í vetur en valinn í landsliðið: „Getur gefið okkur gæðamínútur“
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, segist sannfærður um að liðið þurfi á Ragnari Nathanaelssyni að halda vegna komandi landsleikja. Ragnar hefur aðeins spilað 22 mínútur samtals með Stjörnunni í Subway-deildinni í vetur.

Martin aftur með íslenska landsliðinu eftir meira en tveggja ára fjarveru
Íslenska körfuboltalandsliðið hefur endurheimt sinn besta leikmann. Martin Hermannsson er í landsliðshópnum sem hefur leik í undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta, FIBA World Cup 2023, í næstu viku.

„Við erum í mjög, mjög slæmri stöðu“
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta þarf nær örugglega að spila heimaleik á Ítalíu í febrúar og greiða Ítölum fyrir framkvæmdina. „Við erum í mjög, mjög slæmri stöðu,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ.

Íslenska landsliðið mátti ekki spila heimaleik sinn vegna aðstöðuleysis
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik mun ekki spila heimaleik sinn í undankeppni HM í þessum mánuði eins og áætlað var. Alþjóðakörfuknattleikssambandið hefur nú sett KKÍ stólinn fyrir dyrnar og gefur ekki út fleiri undanþágur.