Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna

Leikur Lyon hrundi eftir rautt spjald Carpenter: Sjáðu mörkin og helstu atvik
Juventus vann 2-1 sigur á Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Lyon var með pálmann í höndunum en Ellie Carpenter fékk rautt spjald í liði Lyon og heimakonur nýttu liðsmuninn til hins ítrasta. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekk Lyon í kvöld.

Börsungar unnu þrjá El Clásico á aðeins tíu dögum
Síðustu dagar hafa verið góðir hjá Barcelona, bæði karla- og kvennaliðum félagsins í fótbolta. Þau unnu meðal annars þrjá sigra á erkifjendunum í Real Madrid.

Barcelona með góða forystu eftir endurkomusigur
Evrópumeistarar Barcelona unnu góðan 3-1 útisigur gegn Real Madrid í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna í kvöld eftir að hafa lent undir.

Íslendingaliðið með bakið upp við vegg gegn frönsku meisturunum
Bayern München, sem er með þrjá íslenska leikmenn í sínum röðum, tók á móti PSG í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna í kvöld. Það voru Frakkarnir sem höfðu betur á útivelli, 1-2.

Sveindís ferðast til Lundúna
Sveindís Jane Jónsdóttir hefur jafnað sig af meiðslum fyrir leik Wolfsburg við Arsenal á Emirates-leikvanginum í Lundúnum — einn af stórleikjum vikunnar í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.

Baunar á eina félagið sem ekki leyfir konunum að spila á aðalleikvanginum
Bandaríska knattspyrnukonan Ella Masar furðar sig á því að spænska stórveldið Real Madrid skuli ekki veita kvennaliði sínu tækifæri til að spila á Santiago Bernabéu eins og karlaliðið gerir, nú þegar ærið tilefni virðist til þess.

Fullkomin frumraun Sveindísar
Sveindís Jane Jónsdóttir fékk viðurkenningu fyrir frammistöðu sína í fyrsta byrjunarliðsleik sínum með Wolfsburg þegar hún var valin í lið umferðarinnar í þýsku 1. deildinni í fótbolta.

Xavi: Konurnar í Barcelona hafa sett viðmiðið fyrir karlaliðið
Xavi Hernandez talar vel um kvennalið Barcelona sem um helgina tryggði sér spænska meistaratitilinn með því að vinna 5-0 sigur á erkifjendum sínum í Real Madrid.

Torgið sprungið sem Blikakonur röltu um á
Ekki eru nema fáeinir mánuðir síðan að leikmenn og fylgdarlið kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta dvöldu í borginni Karkív í Úkraínu sem varð fyrir mannskæðri eldflaugaárás Rússa.

Íslensku stelpurnar í Bayern geta spilað sögulegan leik á Allianz Arena
Íslendingaliðið Bayern München hefur ákveðið að taka risastórt skref fyrir kvennalið félagsins með því að leyfa konunum að spila á Allianz Arena í Meistaradeildinni.

Búnar að selja 85 þúsund miða á kvennaleikinn á Nývangi
Barcelona og Real Madrid mætast í Meistaradeild kvenna í fótbolta þegar átta liða úrslit keppninnar fara fram í mars. Það er óhætt að segja að leikurinn í Barcelona verði sögulegur.

Glódís og Karólína fengu Blikabanana og Sveindís gæti mætt Arsenal
Þrjú Íslendingalið voru í skálinni þegar dregið var í átta liða úrslit Meistaradeildar kvenna í fótbolta í dag.

Segir covid-kvíða hafa haft áhrif á frammistöðu Chelsea
Emma Hayes, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea, segir að áhyggjur leikmanna vegna kórónuveirufaraldursins hafi haft áhrif á frammistöðu þeirra í 4-0 tapinu fyrir Wolfsburg í Meistaradeild Evrópu í gær.

Þrjú af átta bestu með Íslending innanborðs
Á mánudaginn verður dregið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þrjú Íslendingalið verða í skálinni sem dregið verður úr.

Stórt tap í seinasta Meistaradeildarleik Blika
Paris Saint-Germain reyndist of stór biti fyrir Breiðablik í lokaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu kvenna. Liðin mættust í París í kvöl, en lokatölur urðu 6-0.

Ætla sér að koma boltanum í netið gegn PSG
Breiðablik leikur í kvöld sinn síðasta leik í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið hefur náð í eitt stig í leikjunum fimm sem búnir eru en á þó enn eftir að skora mark.

Barcelona valtaði yfir Köge á meðan Hoffenheim vann Arsenal óvænt
Lokaumferð C-riðils Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu fór fram í kvöld. Evrópumeistarar Barcelona unnu 5-0 sigur á HB Köge á meðan Hoffenheim vann óvæntan 4-1 sigur á Arsenal.

Karólína Lea skoraði og Glódís Perla stóð vaktina í vörninni er Bayern fór létt með Benfica
Bayern München vann 4-0 sigur á Benfica í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir spiluðu allan leikinn. Karólína Lea gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrsta mark leiksins.

Engin íslensk á topp hundrað í ár
Á meðan að Sara Björk Gunnarsdóttir er í barneignaleyfi er engin íslensk knattspyrnukona á lista The Guardian yfir 100 bestu knattspyrnukonur heims.

Skilur hugarfar Söru betur eftir að hafa séð Blika spila í snjóbyl
Fyrrverandi samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur segist skilja betur hugarfar hennar eftir að hafa séð Breiðablik spila í snjóbyl gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu.

Aldrei spilað við „klikkaðri“ aðstæður en í Kópavogi og afmælisbarnið fékk blástur
Sænska knattspyrnustjarnan Kosovare Asllani virtist njóta sín vel á Kópavogsvelli í fyrrakvöld en hún segir aðstæður þar þó hafa verið þær „klikkuðustu og köldustu“ sem hún hafi prófað á sínum ferli.

Bayern á toppinn í D-riðli eftir stórsigur
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar er Bayern München vann 1-5 stórsigur gegn Häcken í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum fyrir Bayern, en Diljá Ýr Zomers var ónotaður varmaður hjá Häcken.

Myndir frá snjóboltanum í Smáranum
Breiðablik mætti Real Madrid í síðasta heimaleik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær.

Fékk gult spjald fyrir að buffa áhorfanda sem hljóp inn á völlinn
Ástralska fótboltakonan Sam Kerr fékk gult spjald fyrir nokkuð óvenjulegar sakir í leik Chelsea og Juventus í Meistaradeild Evrópu í gær.

Spilaði í stuttermatreyju í snjóbyl
Karítas Tómasdóttir lét snjóinn og kuldann í gær ekki á sig fá og spilaði í stuttermatreyju gegn Real Madrid í síðasta heimaleik Breiðabliks í B-riðli Meistaradeildar Evrópu.

Ásmundur eftir 0-3 tap Breiðabliks gegn Real Madríd: Verður jólagjöfin okkar í ár
Breiðablik tapaði 0-3 gegn Real Madrid í snjóþungum leik á Kópavogsvelli í Meistaradeild kvenna í kvöld. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, segir úrslitin vera svekkjandi.

Umfjöllun og myndir: Breiðablik - Real Madrid 0-3 | Gestirnir létu smá snjó ekki á sig fá
Breiðablik fékk stórveldið Real Madrid í heimsókn á Kópavogsvöllinn í kvöld í Meistaradeild kvenna í knattspyrnu. Flestir reiknuðu með erfiðum leik fyrir Blikastelpur sem varð raunin enda lið Real Madrid vel mannað. Leiknum lauk með 0-3 sigri Real Madrid.

Leik Atalanta og Villareal frestað vegna veðurs | Spilað í Kópavogi
Leikur Atalanta og Villareal í F-riðli Meistaradeildar Evrópu mun fara fram á morgun þar sem veðuraðstæður í Bergamo á Ítalíu leyfa einfaldlega ekki knattspyrnuiðkun sem stendur. Sömu sögu er ekki að segja úr Kópavogi þar sem hefur einnig snjóað gríðarlega í kvöld.

Stórsigrar hjá Wolfsburg og PSG
Tveimur af fjórum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu kvenna er nú lokið. Wolfsburg og París Saint-Germain unnu bæði. stórsigra.

PSG að stinga af í riðli Blika | Chelsea heldur toppsætinu í A-riðli
Nú er öllum fjórum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu kvenna lokið. Paris Saint-Germain er með sex stiga forystu á toppnum í B-riðli eftir 2-0 sigur gegn Real Madrid og Chelsea er enn með þriggja stiga forskot í A-riðili eftir 1-0 sigur gegn Servette.