Mál Harvey Weinstein

Bar vitni gegn Weinstein og lýsti meintri nauðgun ítarlega
Bandaríska leikkonan Annabella Sciorra, bar í dag vitni gegn Harvey Weinstein dag í réttarhöldunum yfir kvikmyndaframleiðandanum. Sýndi hún viðstöddum hvernig Weinstein á að hafa haldið henni niðri áður en hann nauðgaði henni.

„Maðurinn sem situr hér er ekki bara stórlax í Hollywood, hann er nauðgari“
Málflutningur í máli bandaríska kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein hófst í New York í dag.

Dómarinn segir Weinstein-réttarhöldin ekki atkvæðagreiðslu um Metoo-hreyfinguna
Dómarinn í kynferðisbrotamáli kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein sagði við væntanlega kviðdómendur í málinu að dómsmálið væri ekki eins konar atkvæðagreiðsla um Metoo-hreyfinguna.

Tók þátt í umfangsmiklum njósnum Harvey Weinstein: „Ég var bara að vinna vinnuna mína“
Seth Freedman, sem starfaði fyrir einkaspjæjarafyrirtækið Black Cube, kveðst ekki sjá eftir neinu af því sem hann gerði í störfum sínum fyrir fyrirtækið.

Segir dómarann vanhæfan í máli Weinstein
Arthur Aidala, lögmaður kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, hefur beðið dómara í kynferðisbrotamáli Weinstein um að segja sig frá málinu vegna vanhæfis.

Dómari hótaði að senda Weinstein í fangelsi fyrir að nota síma í réttarsalnum
Réttarhöldin yfir fyrrverandi kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein héldu áfram í New York í dag en fyrsti dagur réttarhaldanna var í gær.

Weinstein ákærður fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot í Los Angeles
Saksóknarinn í Los Angeles hefur ákært Harvey Weinstein fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum.

Réttarhöld yfir Harvey Weinstein hefjast í New York
Kvikmyndaframleiðandinn valdamikli er ákærður fyrir að hafa beitt tvær konur kynferðislegu ofbeldi. Hann gæti átt yfir höfði sér lífstíðardóm.

Weinstein telur sig geta átt afturkvæmt í kvikmyndabransann
Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein telur sig geta endurreist feril sinn að réttarhöldunum yfir honum loknum muni kviðdómur komast að þeirri niðurstöðu að hann sé saklaus.

Lögmaður fórnarlamba Weinstein fær hærri greiðslu en fórnarlömbin
Lögmaður meintra fórnarlamba Harvey Weinstein gæti fengið allt að tíu sinnum hærri greiðslu en fórnarlömbin sjálf ef að umdeilt samkomulag um sáttagreiðslur verður samþykkt.

Stefnir í umdeilt samkomlag á milli Weinstein og fórnarlamba
Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur komist að samkomulagi við hóp kvenna sem hafa sakað hann um kynferðislegt ofbeldi.

Hróp gerð að gagnrýnendum Weinstein á viðburði í New York
Tveimur konum var vísað af viðburðinum og gestir bauluðu á aðra eftir að þær vöktu athygli á að Weinstein væri á meðal gesta.

Segir hjartað brostið vegna samkomulags á milli Weinsteins og fórnarlamba hans
Fyrirsætan Zoe Brock segir að hjartað sitt sé brostið vegna frétta af náðst hafi samkomulag milli Harvey Weinstein, fyrrverandi stjórnarmeðlima fyrirtækis hans og kvennanna sem sakað hafa Weinstein um kynferðislega misnotkun

Weinstein nær samkomulagi við þær sem bera hann sökum
Samkomulagið sagt 44 milljóna dollara virði.

Fjölmiðlar berjast fyrir því að réttarhöldin yfir Weinstein verði opin almenningi
Associated Press og New York Times eru á meðal þeirra fjölmiðla sem berjast nú fyrir því að réttarhöldin yfir kvikmyndamógúlnum Harvey Weinstein verði opin almenningi.

Hitti oft Harvey Weinstein og þekktur leikari reyndi að fá Anítu á einkafund upp á hótelherbergi
Leikkonan Aníta Briem hefur verið búsett í Los Angeles í nokkru ár og verið að gera fína hluti í leiklistarsenunni í Hollywood.

Weinstein rýfur þögnina til þess að neita að hafa viljað Affleck í aðalhlutverk
Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandinn sem sakaður hefur verið af fjölmörgum konum um kynferðislega áreitni og ofbeldi, segist aldrei hafa viljað að Ben Affleck myndi leika hlutverk William Shakespeare í kvikmyndinni Shakespeare in Love.

Verjandi Weinstein að hætta
Búist er við því að Ben Brafman, verjandi kvikmyndaframleiðandas Harvey Weinstein, muni hætta sem verjandi hans. Líklegt er að það verði til þes að fresta þinghaldi í dómsmáli gegn Weinstein.

Máli Ashley Judd gegn Harvey Weinstein vísað frá að hluta
Leikkonan getur áfram stefnt honum fyrir að hafa reynt að eyðileggja starfsframa hennar.

Sagður hafa gortað sig af því að hafa sofið hjá Jennifer Lawrence
Harvey Weinstein, bandaríski kvikmyndaframleiðandinn sem sakaður hefur verið um kynferðislegt ofbeldi af fjölda kvenna, er sagður hafa stært sig af því að hafa sofið hjá óskarsverðlaunaleikkonunni Jennifer Lawrence.

„Ekki auðvelt að standa uppi í hárinu á Weinstein“
Leikkonan Helena Bonham Carter segir að það hafi ekki verið auðvelt að neita kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein um hluti þar sem hætt var við að hún myndi missa vinnuna.

„Má ég daðra við þig?“: Nýtt myndband varpar ljósi á „ósæmilega hegðun“ Harvey Weinstein
Sky News-fréttastofan birti í dag myndband af fundi kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, sem fjölmargar konur hafa sakað um nauðgun og kynferðisofbeldi, og athafnakonunnar Melissu Thompson.

Biðlar til Argento að vera „betri“ en Harvey Weinstein
Argento er sökuð um að hafa beitt ungan leikara kynferðisofbeldi er hann var undir lögaldri.

„Fórnarlamb kynferðisofbeldis getur líka verið gerandi“
Leikkonan Alyssa Milano hefur brugðist við fregnum af því að leikonan Asia Argento hafi borgað ungum leikara fyrir að þegja um meint kynferðisbrot.

Verjendur Weinstein vilja að máli gegn honum verði vísað frá
Lögmennirnir hafa lagt fram pósta á milli Weinstein og konu sem sakar hann um nauðgun sem þeir fullyrða að sýni að samband þeirra hafi verið innilegt og með vilja þeirra beggja.

Áfram framkvæmdastjóri CBS þrátt fyrir ásakanir um kynferðislega áreitni
Utanaðkomandi aðilar verða fengnir til að rannsaka ásakanir á hendur framkvæmdastjóra CBS. Honum verður ekki gert að stíga til hliðar á meðan rannsókninni stendur.

Blaðamaðurinn sem afhjúpaði Weinstein opinberar ásakanir á hendur æðsta stjórnanda CBS
Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS hefur hafið rannsókn á ásökunum um kynferðislega áreitni sem lagðar voru fram á hendur æðsta stjórnanda stöðvarinnar, Les Moonves.

Sagði Clinton vera „nauðgaralegan“ og óskaði að Weinstein yrði barinn til óbóta
Viðtal við sjónvarpskokkinn Anthony Bourdain sem tekið var í febrúar hefur verið birt, rúmum mánuði eftir andlát hans.

Var múlbundin með smokk í áheyrnarprufu þegar hún var 16 ára
Mira Sorvino greinir frá fyrstu áheyrendaprufunni sinni.

Weinstein ákærður fyrir ofbeldi gegn þriðju konunni
Nýjum liðum hefur verið bætt við ákæru gegn kvikmyndaframleiðandanum.