

Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein.
Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánart tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði.
Saksóknarar í máli Harveys Weinstein, bandaríska kvikmyndaframleiðandans, hafa lagt fram ákæru á hendur honum fyrir enn fleiri kynferðisbrot. Réttað verður aftur yfir Weinstein í New York eftir að dómstóll ógilti dóm sem hann hlaut í vor.
Harvey Weinstein, fyrrverandi kvikmyndaframleiðandi, var fluttur í flýti á spítala í gær í New York þar sem hann gekkst undir bráðaaðgerð á hjarta. Lögmenn Weinstein tilkynntu þetta í samtali við fréttastofu BBC.
Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein, 72 ára, hefur verið flutt á Bellevue-sjúkrahúsið í New York með Covid-19 og lungnabólgu.
Saksóknarar kröfðust endurupptöku yfir Harvey Weinstein í yfirheyrslu í Manhattan-borg í dag eftir að áfrýjunardómstóll sneri við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020.
Harvey Weinstein, kynferðisbrotamaður og fyrrverandi kvikmyndaframleiðandi, var í dag lagður inn á spítala í New York til að undirgangast fjölda rannsókna. Lögmaður Weinstein segir heilsu hans vera afar slæma.
Leikkonan Ashley Judd, sem var meðal þeirra fyrstu sem stigu fram og greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, segir það áfall að dóminum yfir honum hafi verið snúið.
Áfrýjunardómstóll í New York-ríki hefur snúið við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. Hann hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð.
Bandaríska kvikmyndaleikkonan Ashley Judd segir að henni sé enn refsað fyrir að hafa greint frá kynferðislegu áreiti kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein sem samanlagt hefur verið dæmdur í tæplega fjörutíu ára fangelsi fyrir kynferðisofbeldi gegn konum.
Leikkonan Julia Ormond hefur höfðað mál á hendur kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein vegna árásar í kjölfar kvöldverðar árið 1995. Hún krefst einnig bóta frá Disney, Miramax og fyrrverandi umboðsskrifstofu sinni.
Nauðgarinn og fyrrverandi kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur verið dæmdur í 16 ára fangelsi, til viðbótar við þann 23 ára fangelsisdóm sem hann afplánar nú.
Kviðdómur í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur fundið kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein sekan af ákæru um að hafa nauðgað konu.
Kvikmyndaframleiðandinn og Hollywood mógúllinn Harvey Weinstein er enn og aftur mættur fyrir dómara í Bandaríkjunum sakaður um kynferðisofbeldi. Weinstein gæti átt yfir höfði sér allt að 140 ára dóm en hann afplánar nú 23 ára fangelsisdóm fyrir kynferðisofbeldi og nauðgun.
Byrjað verður að velja kviðdómendur fyrir réttarhöld yfir Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandanum alræmda, í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Weinstein er ákærður fyrir að brjóta á fimm konum, meðal annars í kringum Óskarsverðlaunahátíð fyrir níu árum.
Lögreglan í London hefur fengið heimild til að ákæra kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein fyrir kynferðisofbeldis gagnvart konu í borginni árið 1996.
Lögmenn Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðanda sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot og nauðgun, hafa áfrýjað dómunum.
Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að sautján milljónir dala skuli greiddar í miskabætur til fórnarlamba kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein sem sökuðu hann um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Upphæðin nemur 2,2 milljarðar íslenskra króna.
Saksóknarinn Jackie Lacey tilkynnti í dag að sex nýjar ákærur yrðu gefnar út á hendur kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein.
Weinstein er nú í einangrun í Wende-öryggisfangelsinu í New York-ríki.
Harvey Weinstein, bandaríski kvikmyndaframleiðandinn, hefur verið dæmdur í 23 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum.
Nauðgarinn og fyrrum kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein telur sig hafa fengið heilahristing eftir fall í Rikers Island fangelsinu í New York.
Leikkonan Rose McGowan segir að sakfelling yfir bandaríska nauðgaranum og kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein marki vatnaskil í slíkum málum.
Kona sem Harvey Weinstein var sakfelldur fyrir að þvinga til kynferðislegra athafna segir að málið hafi kennt fólki um raunveruleika kynferðisofbeldis og fórnarlamba þess.
Kvikmyndaframleiðandinn var hins vegar sýknaður af alvarlegustu ákæruliðunum.
Dómari í New York bað kviðdómendur í máli kvikmyndaframleiðandans um að halda áfram að ráða ráðum sínum og komast að einróma niðurstöðu.
Aðalverjandi kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein freistaði þess í lokaræðu sinni í dómsal í New York í dag að sá efasemdafræi í huga kviðdómenda og kasta rýrð á trúverðugleika kvennanna sem báru vitni.
Sjötta konan, og jafnframt sú síðasta í röðinni, sem sakar kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein um kynferðisofbeldi bar vitni gegn honum í dómsal í New York í Bandaríkjunum í gær.
Gera þurfti skyndilegt hlé á réttarhöldum yfir fyrrverandi kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein þegar kona, sem sakar hann um að hafa nauðgað sér í tvígang, fékk áfall í réttarsal og gat ekki hætt að gráta.
Leikkonan Dawn Dunning bar vitni gegn Harvey Weinstein í dag og lýsti þar meintu kynferðisofbeldi kvikmyndaframleiðandans.