
Landslið karla í fótbolta

Arnar um Albert: Vonbrigði að hann sé ekki tilbúinn til að koma inn í landsliðið á forsendum liðsins
Arnar Þór Viðarsson tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM 2024. Þar vantar einn heitasta fótboltamann landsins.

Hópurinn sem hefur ferðina á EM: Albert og Birkir ekki með en Sævar fær tækifæri
Arnar Þór Viðarsson hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni EM karla í fótbolta. Birkir Bjarnason og Albert Guðmundsson eru ekki í hópnum.

Þjálfarinn stökk frá borði skömmu áður en Ísland mætir í heimsókn
Martin Stocklasa, fyrrverandi þjálfari landsliðs Liechtenstein, sagði starfi sínu lausu fyrr í þessum mánuði. Það má því segja að Liechtenstein verði þjálfaralaust þegar Ísland mætir í heimsókn í undankeppni EM 2024.

Arnar Þór tók af skarið og hringdi í Albert
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur sett sig í samband við Albert Guðmundsson. Það gæti því séð fyrir endann á deilu þeirra.

Albert minnir landsliðsþjálfarann á sig með því að raða inn mörkum í Seríu B
Albert Guðmundsson var enn á ný á skotskónum með ítalska félaginu Genoa í Seríu B í gærkvöldi.

Alfreð Finnbogason: Virkilega spennandi tímar framundan hjá landsliðinu
Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason skoraði sigurmark Lyngby á móti stórliði Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni um helgina.

„Hann sprautar einhverju í kálfann á mér og hann sprautar einhverju í bakið á mér“
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður enska B-deildarliðsins Burnley og íslenska landsliðsins mætti í hlaðvarpsþáttinn Chat After Dark, áður Chess After Dark, og fór yfir víðan völl. Meiðslin sem Jóhann Berg varð fyrir á HM í Rússlandi árið 2018 var meðal þess sem var rætt í þættinum.

Vellirnir sem Ísland ætti að nota vegna úrræðaleysis stjórnvalda: Þórshöfn efst
Knattspyrnusamband Íslands hefur hafið leit að leikvangi erlendis fyrir íslensku landsliðin til að spila á, komi til þess að þau þurfi að spila heimaleiki að vetri til eins og líklegt er að gerist. Vísir leitaði til sérfræðings sem stillti upp tíu ákjósanlegustu leikvöngunum fyrir heimaleiki utan landsteinanna.

UEFA stækkar Þjóðadeildina en fækkar leikjum Íslands í undankeppni HM og EM
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, samþykkti í gær breytingar á bæði Þjóðadeildinni sem og á undankeppnum heimsmeistaramótsins og Evrópumótsins.

Ísland henti frá sér sigrinum
Ísland glutraði niður eins marks forystu í vináttuleik gegn Svíþjóð í kvöld. Svíar skoruðu tvívegis undir lok leiks og unnu 2-1 sigur eftir að Sveinn Aron Guðjohnsen hafði komið Íslandi yfir í fyrri hálfleik.

Andri bætti upp fyrir vítaklúðrið og bjargaði jafntefli fyrir Ísland
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði eina mark íslenska karlalandsliðsins í fótbolta er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Eistum í vináttuleik á Algarve í dag. Markið skoraði Andri af vítapunktinum eftir að hafa misnotað aðra spyrnu fyrr í leiknum.

„Kaíró vinstri, inn á milli eitt og tvö og svo bara upp í skeytin“
Bjarni Mark Antonsson Duffield og Ólafur Andrés Guðmundsson eru greinilega undirbúa sig nú fyrir komandi landsliðsverkefni. Bjarni Mark er í A-landsliðshóp Íslands í fótbolta á meðan Ólafur Andrés er á leiðinni á HM í handbolta.

Bjarni hitti í Mark hjá Arnari Þór
Bjarna Mark Antonssyni hefur verið bætt við hóp íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir leikina gegn Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í næsta mánuði.

Jörundur Áki og Vanda um skýrslu Grétars Rafns: „Við treystum okkar félögum“
„Þessi vinna sem Grétar Rafn [Steinsson] lagði á sig skilur eftir sig samantekt á hans starfi. Þar fer hann yfir bæði starf okkar í KSÍ og aðeins inn í starf félaganna,“ segir Jörundur Áki Sveinsson, sviðsstjóri Knattspyrnusviðs KSÍ. Hann og Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, mættu í Bítið á Bylgjunni á morgun og ræddu skýrslu Grétars Rafns og málefni tengd KSÍ.

Landsliðsþjálfarinn segist ekki vera á móti gagnrýni ef hún er byggð á þekkingu
Það hefur ekki verið nein lognmolla í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta síðan Arnar Þór Viðarsson tók við því árið 2020. Ásamt vandamálum utan vallar þá hefur liðið legið undir gagnrýni fyrir spilamennsku sína.

„Lokamarkmiðið er alltaf að komast í A-landsliðið“
„Við setjum pressu á okkur að verða betri. Leikmenn bættu sig sem landsliðsmenn og eru betur undirbúnir í að taka skrefið upp í A-landsliðið, sem er lokamarkmiðið,“ segir Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U-21 árs landsliðs drengja í fótbolta.

Ísland niður um eitt sæti og heimsmeistararnir komust ekki á toppinn
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu endar árið 2022 í 63. sæti á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins.

Birkir Bjarna „montaði“ sig af Messi treyjunni
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er handhafi landsleikjametsins og hefur alls spilað 113 landsleiki á ferlinum. Hann er þó sérstaklega ánægður með eina treyju sem hann fékk í skiptum í þessum leikjum.

Nökkvi í fyrsta sinn í landsliðinu
Nökkvi Þeyr Þórisson, leikmaður Beerschot í Belgíu, er í fyrsta sinn í íslenska landsliðshópnum í fótbolta sem mætir Eistlandi og Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum á Algarve í byrjun næsta árs.

„Þetta var okkar leið og hún svínvirkaði“
Birkir Már Sævarsson var sóknarþenkjandi bakvörður áður en það komst í tísku. Hann reynir að taka hvern leik eins og hann kemur, sama hvort það sé gegn Leikni R. í Breiðholti eða Lionel Messi og félögum í Argentínu.

Freyr hrósar mikið manninum sem er ekki nógu góður fyrir íslenska landsliðið
Freyr Alexandersson þjálfar danska úrvalsdeildarliðið Lyngby Boldklub og veit allt um það sem er að gerast í danska fótboltanum. Freyr veit því vel hvað Aron Sigurðarson hefur verið að gera góða hluti með Horsens í dönsku deildinni.

Klára Eystrasaltshringinn í janúar
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta leikur tvo vináttulandsleiki á Algarve á Spáni í janúar. Ísland mætir Eistlandi 8. janúar og Svíþjóð fjórum dögum síðar.

53 betri markaár hjá karlalandsliðinu heldur en árið í ár
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta skoraði minna en mark í leik á árinu 2022 sem er eitt það lélegasta í sögu landsliðsins.

Strákarnir rústuðu metinu yfir flest jafntefli á einu ári
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta endaði árið 2022 á sama hátt og svo oft í leikjunum sínum á árinu eða með jafntefli.

U19 beið lægri hlut fyrir firnasterku liði Frakka
Íslenska unglingalandsliðið í fótbolta, skipað leikmönnum 19 ára og yngri á ágætis möguleika á að komast áfram úr undanriðli fyrir EM 2023, þrátt fyrir tap gegn Frökkum í gær.

„Óþarfi að fara með þetta í vítaspyrnukeppni“
Stefán Teitur Þórðarson var í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu sem bar sigur úr býtum á Eystrasaltsmótinu í fótbolta í dag.

„Sérstaklega stoltur af hugarfarinu“
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, hrósaði liði sínu í hástert eftir að hafa tryggt sér Eystrasaltsbikarinn með sigri á Lettlandi í vítaspyrnukeppni ytra í dag.

Umfjöllun: Lettland - Ísland 8-9 | Ísland tryggði sér Eystrasaltsbikarinn eftir sigur í vítaspyrnukeppni
Ísland tryggði sér sigur í Eystrasaltsbikarnum með sigri á Lettlandi í vítaspyrnukeppni í leik sem var að ljúka. Patrik Sigurður Gunnarsson varði spyrnu Letta í áttundu umferð vítakeppninnar og tryggði sigurinn.

Ísland hætti æfingu vegna vallaraðstæðna en spilar á sama velli á morgun
Ísland og Lettland mætast á Daugava-vellinum í Riga í Lettlandi í úrslitum Eystrasaltsbikarsins á morgun, laugardag. Íslenska liðið æfði á vellinum fyrr í dag en fannst vallaraðstæður ekki boðlegar og hætti æfingunni því snemma. Þrátt fyrir það fer leikur morgundagsins fram á Daugava-vellinum.

Myndaveisla frá sigri U-21 árs landsliðsins í Skotlandi
U-21 árs landslið Íslands vann góðan sigur á Skotum í vináttulandsleik í Motherwell í kvöld. Kristall Máni Ingason skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri.