

Uppistandarinn og handritshöfundurinn Snjólaug Lúðvíksdóttir á von á barni en vinkonur hennar komu henni rækilega á óvart um helgina með glæsilegri barnasturtu.
Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í október. Vaka deilir gleðitíðindunum á Instagram.
Áhrifavaldurinn og fegurðardísin Tinna Alavis á von á sínu öðru barni en fyrir á hún dótturina Ísabellu Birtu með Húsafellserfingjanum Unnari Bergþórssyni.
Bandaríski leikarinn Al Pacino og kærasta hans, Noor Alfallah eru nýbakaðir foreldrar drengs. Talsmaður parsins staðfestir þetta í samtali við TMZ og segir að strákurinn hafi fengið nafnið Roman.
Atli Fannar Bjarkason fjölmiðlamaður og Lilja Kristjánsdóttir lögfræðingur eiga von á sínu öðru barni en fyrir á parið soninn Tind sem er á sjötta aldursári.
Liðin vika var sannkölluð tímamótavika hjá stjörnum landsins sem einkenndist af suðrænum brúðkaupum, barneignum og nafngiftum. Auk þess lögðu margir land undir fót og nærðu hina almennu útlandaþrá þar sem íslenska sumarið virðist ætla að láta bíða eftir sér, sérstaklega á suðvesturlandinu.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, eignuðust stúlku laugardagskvöldið 10. júní.
Ljósmyndarinn og listakonan Saga Sigurðardóttir eignaðist sitt fyrsta barn nú fyrir stuttu með ástmanni sínum Vilhelm Antoni Jónssyni, söngvara og þáttagerðamanni.
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eiga von sínu fyrsta barni í nóvember.
Arnhildur Anna Árnadóttir kraftlyftingakona og kærasti hennar, Alfreð Már Hjaltalín, fyrrverandi knattspyrnumaður og heilsunuddari, eignuðust dóttur á dögunum.
Mikið er um að vera í lífi knattspyrnukappans Sverris Inga Sverrissonar og Hrefnu Dísar Halldórsdóttur flugfreyju um þessar mundir. Parið eignaðist sitt annað barn og festu kaup á 400 fermetra einbýlishúsi í Kópavogi fyrir skemmstu.
Sonur Nadine Guðrúnar Yaghi, samskiptastjóra Play og Snorra Mássonar fjölmiðlamanns er kominn í heiminn.
Gunnar Nelson bardagakappi og Fransiska Björk Hinriksdóttir sálfræðingur eiga von á stúlku í ágúst.
Handbolta-og landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson og Sóldís Eva Gylfadóttir styrktarþjálfari eiga von á sínu fyrsta barni í lok árs.
Bandaríski leikarinn Al Pacino og kærasta hans Noor Alfallah eiga von á barni. Hin 29 ára Alfallah er gengin átta mánuði á leið og er því von á erfingja á næstu vikum.
Tónlistarkonan og Idol-stjarnan Saga Matthildur Árnadóttir og Sigurður Rúnar Reynisson kærasti hennar eignuðust frumburð sinn fyrr í mánuðinum.
Bjargey Ingólfsdóttir, fæðingardoula, fararstjóri og félagsráðgjafi, er þriggja barna móðir sem upplifði dauðann í tvígang á sama degi fyrir þrettán árum. Fyrst þegar hún hélt að sonur hennar væri látinn við fæðingu og þegar hún dó sjálf um stund og segist hafa fundið fyrir návist ömmu sinnar.
Birgir Steinn Stefánsson, tónlistarmaður og flugþjónn, og unnusta hans Rakel Sigurðardóttir eiga von á sínu fyrsta barni.
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir, sjónvarps- og fjölmiðlakona, og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women, nefndu dóttur sína og fögnuðu þrítugsafmæli Ingileifar í gær á Uppstigningardaginn.
Tónlistarkonan Unnur Birna Björnsdóttir ætlaði sér aldrei að eignast barn en hún þjáist af tókófóbíu eða sjúklegri hræðslu við meðgöngu og fæðingu. Fyrir tæpum þremur árum kom svo frumburðurinn, Náttsól Viktoría í heiminn og nú í september er von á óvæntum bróður.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, eiga von sínu öðru barni saman, en um er að ræða sjötta barn Garðars.
María Rögnvaldsdóttir er að öllum líkindum sú íslenska kona sem hefur oftast eignast tvíbura, eða sex sinnum. Á sextán árum eignaðist María 15 börn með eiginmanni sínum Ólafi Hálfdánarsyni, þrjá einbura og sex tvíbura. Auk þess tóku hjónin að sér einn fósturson og ólu hann upp með barnahópnum. Geri aðrir betur.
Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, brá heldur betur í brún þegar vinkonur og fjölskylda komu henni á óvart með steypiboði á sjálfan mæðradaginn.
Sonur fjölmiðlakonunnar Bjargar Magnúsdóttur og auglýsingahönnuðarins Tryggva Þórs Hilmarssonar var nefndur Tómar Kári við hátíðlega athöfn um helgina.
Róbert Wessman fjárfestir og forstjóri Alvotech og Ksenia Shakhmanova eiginkona hans eignuðust dóttur á dögunum. Dóttirin er annað barn þeirra saman, en fyrir eiga þau soninn Robert Ace fjögurra ára.
Bandaríska tennisgöðsögnin Serena Williams hefur opinberað að hún eigi von á sínu öðru barni.
Knattspyrnuparið Fanndís Friðriksdóttir og Eyjólfur Héðinsson nefndu son sinn við hátíðlega athöfn á dögunum.
Leikkonan Rumer Willis er orðin móðir. Hún eignaðist sitt fyrsta barn þann 18. apríl síðastliðinn en barnið er jafnframt fyrsta barnabarn leikaranna Bruce Willis og Demi Moore.
Barn enska leikarans Daniel Radcliffe og bandarísku leikkonunnar Erin Darke er komið í heiminn. Greint var frá því fyrir um mánuði síðan að þau ættu von á barni. Þau hafa verið saman í um tíu ár eða síðan þau kynntust við gerð kvikmyndarinnar Kill Your Darlings árið 2013.
Fjölmiðlamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson og kærasta hans Elísabet Erlendsdóttir eignuðust dóttur nú á dögunum. Parið greinir frá komu stúlkunnar á Instagram.