Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025
1 2 ›
Bjarni Ben í þátíð Eftir japl og jaml og fuður hafa Sjálfstæðismenn ákveðið að keyra á snjódekkjum á landsfund og þar verður kosinn nýr formaður. Þá segir fólk ekki lengur Bjarni er, heldur Bjarni var. Skoðun 17.1.2025 08:30
Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamaður, segist ekki vera á bak við framboðssíðu sem er í hans nafni á Instagram. Hann hafi ekki leitt hugann að framboði vegna anna í starfi. Innlent 15.1.2025 21:48
Klukkan tifar en kandídatar undir hnausþykkum feldi Þeir sem helst eru nefndir sem hugsanlegir frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins liggja nú undir hinum fræga feldi – hnausþykkum því vart mótar fyrir þeim þar undir. Innlent 15.1.2025 13:09
Viðvarandi verkefni að finna jafnvægi milli íhalds og frjálslyndis Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að flokkur sem vilji eiga erindi inn í framtíðina þurfi að skilja framtíðina. Þótt hún hafi lýst yfir áhuga á að leiða flokkinn eftir brotthvarf formannsins vill hún ekki að svo stöddu lýsa formlega yfir að hún bjóði sig fram. Innlent 13.1.2025 20:33
Landsfundi ekki frestað Landsfundi Sjálfstæðismanna verður ekki frestað og hann fer fram um mánaðamót febrúar og mars. Þetta var niðurstaða fundar miðstjórnar flokksins, sem lauk um klukkan 14:30. Innlent 13.1.2025 14:44
Telur ljóst að fundinum skuli ekki frestað Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar nú í hádeginu þar sem tekin verður afstaða til þess hvort landsfundur flokksins fari fram samkvæmt áætlun um mánaðamótin febrúar-mars, eða hvort fundinum verði frestað. Bjarni Benediktsson formaður flokksins hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs og að segja jafnframt af sér þingmennsku. Innlent 13.1.2025 12:37
Mikilvægt að nýr formaður hafi breiða skírskotun Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins segir það mikilvægt að nýr formaður, sama hver hann verður, hafi breiða skírskotun og skilji viðfangsefni og vandamál venjulegs fólks. Innlent 12.1.2025 16:11
Sjálfstæðismenn ræða seinkun en Framsókn skoðar að flýta Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kemur saman á mánudag, þar sem til umræðu verða umdeildar hugmyndir um að fresta landsfundi. Á sama tíma hafa Framsóknarmenn til umræðu að flýta flokksþingi sínu. Innlent 11.1.2025 12:24
Þórdís vill ekki fresta landsfundi Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill ekki fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Það segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona flokksins, sagði í aðsendri grein í gær að nauðsynlegt væri að slá ekki kynslóðaskiptum í flokknum á frest og að flokkurinn myndi sér stefnu til framtíðar. Innlent 11.1.2025 09:46
Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mikilvægt að framtíð forystu Sjálfstæðisflokksins verði ekki slegið á frest. Hún segir mikilvægt að Sjálfstæðismenn taki höndum saman og vinni „farsællega að þeim kynslóðaskiptum sem nauðsynleg eru til að flokkurinn verði á ný öflugasta stjórnmálaafl landsins“. Þetta segir Áslaug Arna í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Innlent 10.1.2025 08:41
Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi „Að hann geri þetta akkúrat núna, gefur þeim kenningum byr undir báða vængi, að hann hafi verið búinn að missa einhvern úr sínum kjarnastuðningshópi. Það fólk sem staðið hefur þéttast að baki honum, með honum í gegnum þessa mörgu storma, hafi verið búið að missa trúna.“ Innlent 7.1.2025 15:47
„En við losnum aldrei við Jón Gunnarsson“ Óhætt er að segja að kveðjum hafi rignt yfir Bjarna Benediktsson eftir að hann tilkynnti í gær að hann myndi ekki gefa kost á sér aftur sem formaður Sjálfstæðisflokksins og að hann hyggðist ekki taka sæti á þingi. Ýmsir fyrrverandi samherjar og andstæðingar hans hafa lagt orð í belg. Lífið 7.1.2025 10:00
Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum Tímamótafréttir bárust af sviði stjórnmálanna í gær. Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann væri að kveðja pólitíkina þar sem hann hefur verið í aðalhlutverki um langa hríð. Bjarni tók sæti á Alþingi árið 2003 og hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2009. Þangað til í nýliðnum desember hafði Bjarni, í forystu Sjálfstæðisflokksins, setið í ríkisstjórn með mörgum mismunandi flokkum í hinum ýmsum ráðherraembættum. Innlent 7.1.2025 07:31
Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur telur að Bjarni Benediktsson muni fá góða dóma í sögubókunum. Hann tilkynnti í dag að hann hygðist ekki taka sæti á þingi né gefa kost á sér í áframhaldandi setu sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hún telur að Bjarni hafi sjálfur viljað halda áfram, en ákveðið að gera það ekki eftir samtöl við flokksmenn og fjölskyldumeðlimi. Innlent 6.1.2025 19:48
Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Nokkur nöfn hafa verið nefnd þegar talið berst að hugsanlegum arftaka Bjarna Benediktssonar sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni tilkynnti í dag að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins, en hann hefur verið formaður í tæp sextán ár og er einn þaulsetnasti formaður Sjálfstæðisflokksins í sögunni. Sjálfstæðismenn bæði innan og utan þingflokksins hafa verið orðaðir við embættið. Innlent 6.1.2025 17:30
Ekki búinn að taka ákvörðun um formannsframboð Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir tilkynningu Bjarna Benediktssonar hafa komið á óvart. Hann vill ekkert gefa upp um það hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns. Hann segist þó hugsa um það og að fólk hafi komið að máli við sig. Mikilvægast sé þó að Sjálfstæðismenn stilli saman sína strengi. Innlent 6.1.2025 15:35
Tár féllu þegar Bjarni sagði þingflokknum frá ákvörðun sinni Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins segir að mörgum þingmönnum hafi verið brugðið þegar Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem formaður og þingmaður í dag. Nokkur tár hafi fallið. Innlent 6.1.2025 15:23
Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð Jón Gunnarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, mun taka sæti á Alþingi, þar sem ljóst er orðið að Bjarni Benediktsson afsala sér þingmennsku þegar þing kemur saman. Hann segist ekki hafa leitt hugann að formannsframboði en útilokar ekkert. Innlent 6.1.2025 15:21
„Helsti valdamaður landsins í meira en áratug“ Stjórnmálafræðiprófessor segir það ekki koma á óvart að Bjarni Benediktsson ætli sér nú að kveðja stjórnmálin, eftir 12 ára setu í ráðherrastólum. Það sé alveg opin spurning í hvaða átt nýr formaður muni leiða flokkinn. Innlent 6.1.2025 14:50
Dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekki ræða mögulegt formannsframboð sitt eftir að Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram í dag. Hún segir að dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna. Innlent 6.1.2025 14:40
Allir sem hafi íhugað formannsframboð hljóti að gera það í dag Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir að honum hafi til þessa ekki staðið hugur til að gefa kost á sér til forystu í Sjálfstæðisflokknum þótt nafn hans hafi oft komið upp í umræðunni um það hverjir kynnu að taka við formennsku af Bjarna Benediktssyni. Bjarni greindi frá því í dag að hann sé á förum úr forystu flokksins og af Alþingi. Innlent 6.1.2025 14:39
Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri á komandi landsfundi flokksins. Hann ætlar ekki að taka sæti á þingi síðar í mánuðinum. Innlent 6.1.2025 13:30
Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi mögulega frestun landsfundar flokksins sem á að fara fram í febrúar en verður mögulega færður fram á haust í Kryddsíld Stöðvar 2 sem stendur nú yfir. Hann sagðist ekki kannast við meinta ólgu innan Sjálfstæðisflokksins vegna málsins sem hann vísaði til sem „blaðamanna blaðurs“ og lenti í orðaskaki við ríkisstjórnina. Innlent 31.12.2024 15:02
Vilja ekki fresta fundi í ljósi nýs raunveruleika í pólitík Stjórn Heimdallar, Félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir nýjan raunveruleika blasa við í stjórnmálum hér á landi og að ekki eigi að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þegar landsfundinum sem átti að halda í haust var frestað til febrúar hafi sömu forsendur um veðurfar á Íslandi í febrúar legið fyrir og gera nú. Innlent 30.12.2024 17:37
Stefnir ótrauð á landsfund að austan og segir veðrið ekki vandamál Fulltrúi Sjálfstæðismanna á Seyðisfirði telur möguleikann á vondu veðri í febrúar ekki vera ástæðu til að fresta landsfundi, þrátt fyrir að eiga langt ferðalag fyrir höndum. Hún telji annað búa að baki hugmyndum um frestun. Bæjarstjóri Ölfuss segir frestun gáfulegasta kostinn. Innlent 30.12.2024 12:35
Tillagan eðlileg og gagnrýnendur einungis frá höfuðborgarsvæðinu Fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins biður fólk um að vera málefnalegt í umræðu sem snýr að landsfundi flokksins og mögulegri frestun hans. Tillagan sé eðlileg og gagnrýni á hana komi eingöngu af höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29.12.2024 19:01
Þeir sem vilji moka yfir niðurstöðuna vilji fresta fundinum Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vita um nein góð rök fyrir því að fresta fyrirhuguðum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Umræða um frestun fundarins fram á haust hefur verið áberandi síðustu daga. Innlent 29.12.2024 14:24
„Allt tal um baktjaldamakk er tóm þvæla“ Formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir gagnrýni flokksfélaga á mögulega frestun landsfundar flokksins fram í haust. Allt tal um baktjaldamakk sé þvæla og jafnvel grunnskólabörn viti hvernig tíðarfarið sé í febrúar. Innlent 29.12.2024 10:51
Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Hugmyndir um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins hafa vakið upp harðar umræður innan flokksins. Fyrrverandi ráðherra og formannsframbjóðandi segir mikilvægt að tímasetning fundarins standist, en nýr þingmaður telur skynsamlegast að fresta honum. Innlent 28.12.2024 22:17
„Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Stjórnarmaður SUS gefur lítið fyrir hugmyndir um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins fram á haust af veðurfarslegum ástæðum. Lygasagan um paradísina sem er íslenskt haustveður sé ekki nógu góð. Innlent 28.12.2024 14:38