Hjólreiðar
1 2 3 4 5 6 7 8 … 10 ›
Átta Íslendingar taka þátt á HM í hjólreiðum Átta Íslendingar munu taka þátt fyrir hönd Hjólreiðasambands Íslands á Heimsmeistaramótinu í hjólreiðum sem hófst í Glasgow í gær og mun standa yfir næstu daga. Sport 6.8.2023 23:00
Tour de France meistarinn Vingegaard: Þetta er það mest þreytandi Danir ætla að fagna meistaranum sínum Jonas Vingegaard í dag, bæði á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn sem og í Tívolíinu. Sport 26.7.2023 10:30
Ökumenn beri ábyrgðina Ökumenn fyrir aftan hjólreiðamenn á vegum úti sem geta ekki tekið fram úr með öruggum hætti verða að hægja á sér þar til aðstæður leyfa segir samskiptastjóri Samgöngustofu. Taki þeir fram úr skulu ökumenn passa að hliðarbil milli bíls og hjóls séu að lágmarki einn og hálfur metri. Innlent 26.7.2023 10:19
Jonas Vingegaard vann Frakklandshjólreiðarnar annað árið í röð Jonas Vingegaard sigraði Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France. Sá danski varði titilinn en hann vann einnig Frakklandshjólreiðarnar í fyrra. Sport 23.7.2023 20:30
Maður reyndi að stela reiðhjóli með öxi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tilraun til hjólaþjófnaðar sem átti sér stað við reiðhjólaverslunina Ellingsen á Granda. Öxi var notuð við tilraunina. Innlent 23.7.2023 14:57
Um 1200 hjólreiðakeppendur á Hvolsvelli Hjólreiðakeppnin „The Rift“ fer fram á Hvolsvelli og nágrenni um helgina. Keppnin var fyrst haldin árið 2019 og hefur farið ört stækkandi. Nú taka þátt 1200 keppendur sem hjóla 100 eða 200 km leið frá Hvolsvelli, inn á Fjallabak og til baka. Mikið umstang fylgir slíkri keppni og þessum 1200 keppendum fylgir annað eins af aðstoðar- og stuðningsfólki. Því er ljóst að margt verður um manninn og mikið líf á Hvolsvelli alla helgina. Innlent 22.7.2023 13:43
Velur fæðinguna fram yfir hjólreiðarnar Belgíski hjólreiðamaðurinn Wout van Aert hefur ákveðið að fara heim og klárar því ekki síðasta sprettinn í Tour de France mótinu. Ástæðan er sú að eiginkona hans á von á barni og hann vill vera á staðnum þegar það kemur í heiminn. Sport 20.7.2023 23:51
„Jonas er hreinasti hjólreiðamaður sögunnar“ Danski hjólreiðamaðurinn Jonas Vingegaard hefur verið í miklu stuði síðustu daga í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France. Sport 20.7.2023 15:30
Seinheppinn Tour de France keppandi lenti líka í árekstri á frídeginum sínum Belgíski hjólreiðamaðurinn Maxim van Gils er búinn að taka út sinn skammt af árekstrinum í Frakklandshjólreiðunum og gott betur. Sport 18.7.2023 14:31
Reyndi að taka sjálfu og olli fjöldaárekstri Áhorfandi á Tour de France hjólreiðakeppninni varð valdur af því að um tuttugu keppendur lentu í árekstri og féllu til jarðar er hann reyndi að taka sjálfu (e. selfie) á meðan keppni stóð. Sport 16.7.2023 22:45
Allt í steik í Tour de France eftir stórt óhapp Stöðva þurfti keppni á Tour de France hjólreiðamótinu í morgun í tæpan hálftíma eftir að óhapp varð til þess að tugir keppenda lentu í árekstri og nokkrir meiddust alvarlega og þurftu frá að hverfa. Sport 15.7.2023 14:51
Ætlar að verða fyrsta sádi-arabíska konan sem hjólar hringveginn um Ísland „Ef það væri ekkert sem stoppaði mig, hvað myndi ég þá gera? Það er það sem kom upp í hugann á mér. Ég vildi upplifa alvöru ævintýri – krefjandi ævintýri. Eitthvað sem myndi ögra mér og þvinga mig til að þroskast,“ segir Yasmine Adriss sem hyggst hjóla hringveginn um Ísland á næstu vikum. Hjólaferð hennar hófst þann 4. júlí síðastliðinn en ef hún kemst á leiðarenda mun hún verða fyrsta sádi-arabíska konan sem afrekar það. Innlent 15.7.2023 08:00
„Lögreglan gerir ekkert til þess að framfylgja þessu“ Formaður Reiðhjólabænda, furðar sig á tvískinnungi lögreglu þegar kemur að rannsókn á umferðarbrotum þegar um bíla er að ræða annars vegar og hjól hins vegar. Sjálfsagt sé að nota myndefni þegar ofsaakstur vöruflutningabílstjóra á Vesturlandi sé rannsakaður en ekki þegar um brot gegn hjólreiðafólki sé að ræða. Innlent 14.7.2023 06:45
Tveir rifbeinsbrotnir og mikið brottfall í Tour de France í ár Tveir hjólreiðamenn í Frakklandshjólreiðunum, Tour de France, hafa þurft að draga sig úr keppni eftir fall á fjórða keppnisdegi. Sport 5.7.2023 16:30
Veðurbarinn hjólreiðamaður ekki viss um að hægt sé að mæla með Íslandsferð Frakki sem hjólaði hringinn í kringum Ísland er ekki viss um að hann geti mælt með ferðalagi til landsins vegna veðurs. Hringferðin tók hann mánuð og var hann uppgefinn á köflum í baráttu við íslenska vindinn. Innlent 25.6.2023 20:17
Fjarlægði hraðatakmarkara fyrir banaslys Hraðatakmarkari rafhlaupahjóls, sem ekið var á rafknúið bifhjól í banaslysi við Sæbraut fyrir tæpum tveimur árum, hafði verið aftengdur fyrir slysið. Bifhjólinu var ólöglega ekið á hjólastígnum. Innlent 22.6.2023 12:51
Lést aðeins 26 ára eftir harðan árekstur í Tour de Suisse Svissneski hjólreiðamaðurinn Gino Mäder lést í morgun, aðeins 26 ára að aldri, eftir að hafa lent í hörðum árekstri í svissnesku hjólreiðakeppninni Tour de Suisse í gær. Sport 16.6.2023 14:00
Banaslys í Ironman keppninni Einn lést og einn slasaðist alvarlega þegar reiðhjól keppanda og mótorhjól myndatökumanns skullu saman í Ironman Evrópukeppninni í Hamborg í Þýskalandi í dag. Erlent 4.6.2023 16:24
Færanleg göngu- og hjólabrú hitar upp fyrir stokk í Vogabyggð Gerð verður tímabundin göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut, sem er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega, ekki síst fyrir skólabörn í Vogabyggð. Brúin verður yfirbyggð, með lyftu og tröppum og verður áhersla á jákvæða upplifun vegfarenda og að innra rými verði aðlaðandi. Áætlaður kostnaður er um 250 milljónir en verkinu á að ljúka í síðasta lagi sumarið 2024. Innlent 10.5.2023 14:56
Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna Lægsta boð í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist 718 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 9.5.2023 20:10
„Nú er maður bara allt í einu orðinn heimsmeistari“ Katrín Pálsdóttir, hjólreiðakona og fjármálastjóri Bolungarvíkur, varð heimsmeistari í tvíþraut, sund- og hjólreiðakeppni (long distance aquabike), á móti á vegum World Triathlon á spænsku eyjunni Ibiza fyrr í dag. Sport 7.5.2023 23:03
Viðurkennir að hafa misst prófið Það vakti nokkra athygli á dögunum þegar veitinga- og athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson tilkynnti að hann myndi lifa bíllausum lífsstíl í sumar. Hann segir frískandi að hjóla en viðurkennir að hafa misst bílprófið. Lífið 6.5.2023 12:25
Snemma að sofa í kvöld eftir hjólasólarhring Félagar drengs sem slasaðist illa í hjólaslysi í síðastliðnum ágúst ákváðu að hjálpa vini sínum með því að efna til söfnunar sem gekk svo vonum framar. Drengirnir ákváðu að hjóla stanslaust í heilan sólarhring með það að markmiði að safna fyrir glæsilegu rafmagnsfjallahjóli. Innlent 16.4.2023 17:38
Safna fyrir vin sinn sem lenti í hjólaslysi Elís Hugi Dagsson slasaðist illa er hann lenti í hjólaslysi í síðastliðnum ágúst. Félagar hans úr afrekshópi fjallahjóladeildar Brettafélags Hafnarfjarðar hafa tekið sig til og efnt til söfnunar fyrir Elís. Markmiðið er að ná að safna fyrir sérútbúnu fjallahjóli svo Elís geti hjólað með þeim á ný. Innlent 13.4.2023 12:36
Hjólreiðafyrirtæki hvetur hjólreiðamenn til að sitja á sér Eigendur fyrirtækisins Ice Bike Adventures hafa vakið nokkra athygli fyrir að biðja hjólreiðafólk að sitja aðeins á sér og bíða með að rífa fram fjallahjólin. Slóðar og stígar séu enn mjög blautir og hætt við að náttúran skemmist ef hjólreiðamenn fari of snemma af stað. Innlent 5.4.2023 17:13
Kallar eftir varkárni ökumanna eftir að hafa orðið fyrir bíl Ekið var á arkitektinn Hildi Gunnlaugsdóttur er hún hjólaði á gangstétt upp Njálsgötu í gær. Hún slapp vel með skrekkinn en biður ökumenn um að gæta sín betur þegar gangstéttir eru þveraðar. Hver viti nema kona með barnavagn eða barn á hjóli sé sá sem er á leið á gangstéttinni. Innlent 24.3.2023 13:56
Er reiðhjólið klárt? Daginn er tekinn að lengja og fleiri birtustundir færa okkur yl í hjartað. Birtan bræðir ísinn og færðin verður betri, þó enn megi gera ráð fyrir stöku svikavori. Skoðun 13.3.2023 08:01
Bjarki heldur ótrauður áfram eftir hrottalega lendingu Í Íslandi í dag var rætt við Bjarka Harðarson, BMX-kappa, sem hefur að undanförnu verið að gera garðinn frægan í Flórída. Í innslaginu hér að ofan má sjá tilraunir hans, heppnaðar og misheppnaðar, til að standast lykiláskorun á hátíð sem heitir Swampfest. Lífið 10.3.2023 09:00
Dæmdur fyrir að drepa kött ráðherra Ítalski hjólreiðamaðurinn Antonio Tiberi hefur skapað sér miklar óvinsældir í smáríkinu San Marínó eftir að hafa skotið kött ferðamálaráðherra til bana. Sport 1.3.2023 13:30
Nítján ára hjólreiðakona lést Spænska hjólreiðakonan Estela Domínguez lést í gær eftir að hafa orðið fyrir vörubíl á æfingu. Sport 10.2.2023 13:31