
Ísland í dag

Notaði brennivínið til að halda sér gangandi
Tónlistarmanninn og Sunnlendinginn Ingólf Þórarinsson þekkja flestir og þá helst undir nafninu Ingó veðurguð. Ingó gerði garðinn frægan með hljómsveit sinni Veðurguðunum, spilaði fótbolta í efstu deild með Selfoss og hefur nú séð um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum frá árinu 2013.

Náttúruleg og einföld brúðkaup á Íslandi
Vala Matt skoðaði falleg íslensk brúðkaup í Íslandi í dag í gær.

Steindi blandar saman Landanum og The Exorcist í „alvöru sjónvarpi“
Hann er án efa einn skemmtilegasti maður landsins, hefur leikið í fjölda grín og skemmtiþátta og finnst fátt meira gefandi en að skemmta öðrum. Steinþór Hróar Steinþórsson eða Steindi jr. ætlar sér aldrei að staðna, vill stöðugt þróast og fer af stað í haust með nýja þætti á Stöð 2 sem verða allt öðruvísi en það sem hann hefur fengist við hingað til.

Michelin-kokkur opnar veitingastað í elsta íbúðarhúsi Egilsstaða
Hjónin Kári Þorsteinsson og Sólveig Bjarnadóttir opnuðu nýlega veitingastað á Egilsstöðum í elsta íbúðarhúsi bæjarins, Nielsenshúsi. Þau lýsa því sem langþráðum draumi að vera kominn aftur í sveitina en segja taktinn á Egilsstöðum allt öðru vísi en í Reykjavík – og hvað þá í Kaupmannahöfn.

Ævintýraleg brúðkaup á Ítalíu
Vala Matt fór á stúfana í Íslandi í dag og skoðaði íslensk brúðkaup á Ítalíu ofan í kjölinn.

Börn oft ekki í stakk búin til að takast á við erfiðleika því ekkert megi vera erfitt eða leiðinlegt
Edda Júlía Helgadóttir, kennari í Ártúnsskóla, segir að börnum sé enginn greiði gerður með því að foreldrar reddi þeim alltaf fyrir horn og kenni þeim þannig ekki að kljást við erfiðleika og mótlæti.

Tvíburar Rúnars og Eyrúnar Telmu komnir í heiminn
Það vakti mikla athygli þegar Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og ræddi við ungu hjónin Rúnar Geirmundsson og Eyrúnu Telmu Jónsdóttur sem voru lengi búin að reyna að eignast barn.

Segja móður drengsins tálma og vilja fullt forræði
Hjónin Ægir og Árný voru í viðtali við Ísland í dag í kvöld.

Grillfeðurnir kenna listina á bakvið grillaða pizzu
Vissuð þið að það er hægt að grilla pizzu á litla grillinu ykkar þannig að hún verði eins og dýrindis eldbökuð pizza? Grillfeðurnir kenndu Völu Matt réttu handtökin í Íslandi í dag.

Anna vissi ekki að búið var að taka fótinn
Anna Linda Sigurgeirsdóttir fékk fyrir nokkrum árum blóðtappa sem varð til þess að hún þurfti að fara í skurðaðgerð. En í minningunni vissi hún ekki að í aðgerðinni hefði annar fóturinn verið fjarlægður fyrr en hún vaknaði eftir aðgerðina.

Bjarki stýrir 30 manna hersveit í norska hernum: „Fólk fær sínar hugmyndir úr amerískum bíómyndum“
Bjarki Brynjarsson er 28 ára íslenskur strákur sem stýrir 30 manna hersveit í norska hernum. Eftir útskrift úr Verslunarskólanum vildi hann halda á vit ævintýranna og setti stefnuna á norska herinn sem verður að teljast óvenjulegur áfangastaður að loknu stúdentsprófi.

Össur er með nafn konunnar húðflúrað á sig oftar en hann getur talið
Icelandic Tattoo Convention fór fram um helgina og skellti Kjartan Atli sér í heimsókn til Össurar Hafþórssonar hátíðarhaldara og eiganda Reykjavík Ink.

Ofbeldismaður Nönnu rekinn úr skólanum: „Ég skammaðist mín fyrir að vera vinkona hans“
Nanna Elísa var í námi við Columbia háskóla og gekk vel, þrátt fyrir að námið væri erfitt og margar áskoranir. Nanna lenti í miklu áfalli haustið 2017 þegar hún sneri aftur til New York eftir að hafa varið sumrinu á Íslandi.

Sérfræðingarnir velja sumardrykkinn í ár
Fyrst var það Cosmopolitan, þá Moscow mule og nú drekka allir Aperol spritz. Hver er sumardrykkurinn 2019?

Örlagaárið þegar Eiríkur greindist með krabba, var tekinn fullur og fór frá fjölskyldunni
Eiríkur Hauksson er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar en ferilinn spannar rúm fjörutíu ár og nær allt frá þungarokki yfir í Eurovision. Eiríkur er fæddur þann 4. júlí árið 1959 og fagnar því sextugsafmælinu eftir rúman mánuð.

Már fæddist með ólæknandi augnsjúkdóm en lætur ekkert stöðva sig
Már Gunnarson er nítján ára gamall og búsettur í Keflavík. Már fæddist með ólæknandi hrörnunarsjúkdóm í augnabotnum og þegar hann fæddist var sjónin í kringum 10% en er nú farin niður í hálft prósent eða nánast ekki neitt.

Aldrei of seint að finna ástina
Það er aldrei of seint að finna ástina. Það sannaðist þegar Vala Matt fór vestur á Strandir og heimsótti hjónin Kristínu Einarsdóttur og Gunnar Jóhannsson, en þau voru skólafélagar sem táningar á Reykjum.

Hjálmar Örn fer yfir karakterana og ferilinn
Hjálmar Örn Jóhannsson er einn af vinsælustu skemmtikröftum landsins og hefur algjörlega slegið í gegn sem hvítvínskonan.

Morgunrútínan með Svanhildi Hólm
Sindri Sindrason fór í gegnum morgunrútínuna með Svanhildi Hólm Valsdóttur, aðstoðarmanni Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Dóttir mín var farin að segja að hún vildi verða stór eins og mamma“
Sylvía Haukdal, menntaður eftirréttakokkur frá Le Gordon Blue og tveggja barna móðir, var orðin 112 kíló og hætt að geta leikið við dætur sínar þegar hún ákvað að taka sig á. Hún fór í svokallaða magaermisaðgerð og hefur nú lést um 40 kíló.

Dugleg að fara í rómantískar ferðir til að rækta ástina
Vala Matt heldur áfram að sýna okkur frá ævintýralegri ferð sinni til tísku og menningarborgarinnar Mílanó á Ítalíu þar sem hún heimsótti ungu hjónin Berglindi Óskarsdóttur fatahönnuð og Þórhall Sævarsson kvikmyndaleikstjóra.

Markmiðið var alltaf að komast af örorkubótum
Hlynur Þór Agnarsson fæddist í Reykjavík árið 1988. Fjölskyldan flutti þó á Kirkjubæjarklaustur fljótlega þar sem Hlynur er alinn upp.

Þórhallur og Berglind slá þvílíkt í gegn á Ítalíu
Það er alltaf gaman þegar Íslendingar vekja verðskuldaða athygli í útlöndum. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag til Milano á Ítalíu og heimsótti þar ungu hjónin Berglindi Óskarsdóttur fatahönnuð og Þórhall Sævarsson kvikmyndaleikstjóra. Berglind og Þórhallur hafa verið þvílíkt að slá í gegn á Ítalíu, hvort á sínu sviði.

Hélt að góðum stelpum væri ekki nauðgað
Þegar Harpa Dögg Grímsdóttir var fimmtán ára var henni nauðgað af nítján ára manni sem hún taldi vera vin sinn. Í langan tíma kenndi hún sjálfri sér um vegna þess að hún hafði boðið honum heim.

Lífið gjörbreyttist eftir að Íris missti sjötíu kíló
Íris Valgeirsdóttir var orðin rúmlega 140 kíló þegar hún uppgötvaði að lífernið sem hún lifði væri hægt og bítandi að draga hana í gröfina. Hún vildi breyta um stefnu og öðlast bætt lífsgæði með betri heilsu.

Hvernig gerir maður mat eins og Michelin kokkur?
Vala Matt fór í leiðangur fyrir Ísland í dag og skoðaði nokkra íslenska veitingastaði sem hafa fengið hin frægu Michelin meðmæli.

Vaknaði upp einn daginn, hafði farið í heljarinnar heilaskurðaðgerð og heppinn að vera á lífi
Fyrir fjórum mánuðum vaknaði athafnamaðurinn Jón Mýrdal á spítala en vissi ekki hvers vegna. Læknarnir komu inn og tjáðu honum að hann hefði verið með stærðarinnar heilaæxli en að nú væri allt í lagi. Jón vissi aldrei að það stefndi í óefni en hann sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær.

Töff skreytingar fyrir heimilið
Vala Matt heimsótti fjölmiðlakonuna og stílistann, Þórunni Högnadóttur, en hún hefur áður komið við sögu í Íslandi í dag með sínar ótrúlega hugmyndaríku og fallegu skreytingar fyrir ýmis tilefni.

Allir klárir fyrir aldamótatónleikana og Hreimur ætlar að aflita á sér hárið
Í lok mánaðarins ætla vinsælustu hljómsveitir landsins í kringum aldamótin að koma saman á tónleikum 26. apríl og upplifa aftur stemninguna sem myndaðist fyrir um tveimur áratugum.

Ætlar að gera allt til að vera til staðar fyrir börnin í framtíðinni
Degi eftir að hin 32 ára Fanney Eiríksdóttir fékk að vita að hún og maður hennar, Ragnar Snær, ættu von á dreng, fengu þau að vita að hún væri með krabbamein.