Bandarískur kardináli segir af sér vegna kynferðisbrotamála

Washington Post segir að páfi hafi beðið Wuerl um að halda áfram í starfi þar til eftirmaður hans verður valinn. Hann hefur ekki gagnrýnt Wuerl fyrir hvernig hann fór á ásökunum um brot presta.
Wuerl var sakaður um að hafa tekið virkan þátt í að hylma yfir brot presta þegar hann var biskup í Pittsburgh í rannsókn ákærudómstóls í Pennsylvaníu í ágúst. Sú rannsókn leiddi í ljós að hundruð presta höfðu misnotað þúsund börn í ríkinu á sjötíu ára tímabili
Þá var hann, auk Frans páfa og forvera hans Benedikts páfa, vændir um að hafa vitað af því að Theodore McCarrick kardináli væri hættulegur en samt leyft honum að gegna embætti áfram. McCarrick var leystur frá störfum vegna barnaníðs í sumar.
Bandaríska blaðið sagði frá því í sumar að þrátt fyrir að Wuerl hefði fjarlægt presta sem brutu gegn börnum úr starfi hafi prestarnir í sumum tilfellum haldið misnoktun sinni áfram í nýjum embættum innan kirkjunnar.
Tengdar fréttir

Sakar Páfagarð um að hafa vitað af barnaníði presta
Vísbendingar eru sagðar til staðar um að leiðtogar kaþólsku kirkjunnar hafi vitað af ásökunum á hendur presta og yfirhylmingu með brotum þeirra.

Páfinn veitir leyfi fyrir rannsókn á kynlífshneyksli
Frans páfi hefur gefið leyfi fyrir "ítarlegri rannsókn“ á skjölum Vatíkansins, en henni er ætlað að varpa ljósi á hvernig Theodore McCarrick, háttsettum bandarískum kardinála, tókst að klífa metorðastiga kaþólsku kirkjunnar þrátt fyrir ítrekaðar ásakanir á hendur honum um að hafa þrýst á guðfræðistúdenta og unga presta til þess að sofa hjá sér.

Páfi kennir kölska um hneykslismálin
Djöfullinn ber ábyrgð á þeim fjölmörgu kynferðisofbeldishneykslismálum sem hafa skekið kaþólsku kirkjuna.

Þýskir prestar misnotuðu þúsundir barna um árabil
Meira en 3.600 börn urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu kaþólskra presta í Þýskalandi á árunum 1946 til 2014 samkvæmt nýrri skýrslu sem lekið var til fjölmiðla.