Saga KFC á Íslandi spannar rúm 38 ár. Skyndibitakeðjan er í dag ein sú stærsta á landinu og rekur átta veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og í Keflavík. KFC seldi vörur fyrir tæpa 3,1 milljarða króna í fyrra og nam hagnaður keðjunnar um 138 milljónum króna.
Þrátt fyrir það virðist það vera nær samdóma álit netverja að frönsku kartöflurnar sem fylgja réttum KFC séu ekki í fremstu röð. Í því samhengi má nefna að kartöflur KFC rötuðu ekki á blað þegar spurt var um bestu frönsku kartöflur á Íslandi í upphafi árs.
Fór í lúgu á KFC. Gæinn á undan mér pantaði sér þrjá stóra skammta af frönskum. Greinilega ekki fengið memóið um að það eru verstu franskar landsins.
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) October 8, 2018
Af hverju getur KFC ekki verið með góðar franskar? #stórumálin
— Hörður Ágústsson nýtt (@horduragustsson) November 28, 2016
Jæja nú er kominn tími til að ríkisstjórnin skipi nefnd sem rannsakar hversvegna í andskotanum KFC er ennþá að selja svona vondar franskar
— Martin Sindri (@martinsindri) May 10, 2017
Hversu vondar eru franskarnar frá KFC samt? Er þetta eitthvað plot hjá þeim?Hlýtur að vera viljandi, það gerir enginn vondar franskar óvart
— Pétur M. Urbancic (@PeturMarteinn) November 20, 2013
Fór á KFC og Metro því Kenny franskar eru vondar
— Auður Arna (@auddabo) May 14, 2014
Ætlar KFC ekkert að fara að skipta um franskar????? #maísístaðinnfyrirfranskar #pirrarmig
— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) March 29, 2012
„Staðurinn fengi fjórar stjörnur af fimm ef ekki væri fyrir franskarnar,“ skrifaði Lára Björg Björnsdóttir.
KFC á Íslandi hefur ekki farið varhluta af þessari umræðu, að sögn Kristínar Helgadóttur hjá KFC. Frönsku kartöflurnar hafi þannig verið „heit kartafla hér um árið,“ eins og Kristín orðar það, án þess þó að nefna ár í því samhengi.
Þetta hafi orðið til þess að ákveðið var að skipta um frönskubirgja á sínum tíma. Síðan þá hafa keðjunni ekki borist neinar kvartanir að sögn Kristínar.
Nú stendur til að skipta aftur um birgja og um leið bjóða upp á aðrar franskar kartöflur á KFC. Kristín segir að ákvörðunin um að skipta um framleiðanda sé tekin í kjölfar útboðs í Evrópu.
„KFC á Íslandi og í Evrópu vinnur eftir mjög ströngum gæðakröfum en hluti af gæðaeftirlitinu er að fara reglulega í útboð til að tryggja viðskiptavinum okkar bæði gæði og gott verð,“ segir Kristín til útskýringar.
Aðdáendur fyrri kartafla ættu þó ekki að örvænta. Gísli Jón Jónsson, upplýsingafulltrúi KFC, segir að nýr framleiðandi muni bjóða upp á franskar kartöflur sem svipi algjörlega til þeirra sem fyrir voru á KFC. Því ættu neytendur ekki að finna mun að sögn Gísla.
Kristín tekur í sama streng, viðskiptavinir ættu ekki finna fyrir þessum breytingum „nema þá kannski til hins betra.“ Hvorki Gísli né Kristín gáfu upp í samskiptum við Vísi hvenær búast má því að hinar nýju kartöflur rati í útibú KFC á Íslandi.