Fiskvinnslufyrirtækið West Seafood á Flateyri var úrskurðað gjaldþrota fyrr í mánuðinum. Alls eiga yfir þrjátíu einstaklingar kröfur á fyrirtækið sem ná allt að átján mánuði aftur í tímann að því er greint var frá í kvöldfréttum RÚV.
Sigurður Örn Arnarson, stjórnarformaður West Seafood, vildi ekki tjá sig um gjaldþrotið þegar Vísir náði tali af honum fyrr í kvöld.
Þá hefur Vísir ekki náð tali af Finnboga Sveinbjörnssyni, formanni Verkalýðsfélags Vestfirðinga, en hann sagði í fréttum RÚV skuld West Seafood við 32 félagsmenn vera tíu til fjórtán milljónir.
„Þetta eru bara bein vinnulaun. Það er fyrir utan annað sem fylgir með. Við erum að safna gögnum núna til að fá heildarmyndina skýrar á blað,“ sagði Finnbogi.
Sjö voru á launaskrá hjá West Seafood þegar fyrirtækið fór í þrot en þegar mest var störfuðu þar fimmtán manns.
Frestur til að lýsa kröfum í þrotabú West Seafood rennur út í nóvember.
West Seafood á Flateyri gjaldþrota
Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar

Mest lesið

Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar
Viðskipti innlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út
Viðskipti innlent

Trump hafi „ekki hugmynd“ um hvað hann sé að gera
Viðskipti erlent




Færri fara til Bandaríkjanna en fækkunin hvað mest frá Íslandi
Viðskipti erlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf
