Norðurál, sem rekur álverið á Grundartanga hefur nú óskað eftir því við orkusala sína, Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku, að trúnaði verði aflétt af langtíma orkusölusamningum eins fljótt og auðið er.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að nýútkomin skýrsla Fraunhofer um samkeppnishæfni íslenskrar stóriðju sé um margt góð og er því fagnað að iðnaðarráðherra skuli hafa tekið það skref að láta óháðan aðila meta samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi, með tilliti til raforkuverðs. En skýrslan var opinberuð í morgun. Þar segir meðal annars að meginniðurstaðan sé sú að raforkukostnaður stórnotenda á Íslandi skerði almennt ekki samkeppnishæfni þeirra gagnvart samanburðarlöndunum, sem eru, í skýrslunni, Noregur, Kanada (Quebec) og Þýskaland.
„Stóriðja er ein af grunnstoðum íslensks atvinnulífs og er háð samkeppnishæfu raforkuverði,“ segir í tilkynningunni frá Norðuráli og því bætt við að niðurstöður Fraunhofer skýrslunnar staðfesti það sem Norðurál hafi bent á, að meðalverð raforku hefur verið samkeppnishæft. „Skýrslan staðfestir einnig að það raforkuverð sem nú stendur til boða á Íslandi er ekki samkeppnishæft við það sem stendur til boða í Noregi og Kanada,“ segir ennfremur.
Því segist Norðurál taka heils hugar undir með skýrsluhöfundum um að þörf sé á meira gagnsæi á íslenskum orkumarkaði. „Norðurál hefur því óskað eftir því við orkusala að trúnaði verði aflétt af langtíma orkusölusamningum milli fyrirtækjanna eins fljótt og auðið verður,“ segir að lokum.