Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins. Hagnaður jókst milli ára og var 416,8 milljónir króna á fyrra rekstrarári. Í skýrslu stjórnenda segir að koma Costco á íslenskan markað hafi verið árangursrík og markmiðið sé að stækka enn frekar. Hagnaður fyrir skatta nam 575 milljónum króna og jókst úr 535 milljónum. Framlegð nam 2,9 milljörðum króna. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá.
Fram kemur í skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra að heimsfaraldurinn hafi haft töluverð áhrif á rekstur Costco og sérstaklega á seinni helming rekstrarársins sem náði frá 1. september 2019 til 31. ágúst 2020.
Eldsneytissala minnkaði
Vegna sóttvarnatakmarkana var talsverð lækkun í sölu á bensíni og ferðatengdum vörum á tímabilinu. Þá drógust tekjur af veitingasölu saman þegar viðskiptavinir máttu ekki borða á staðnum.
„Þessar lækkanir voru hins vegar bættar upp með meiri sölu á matvöru og öðrum vöruflokkum þegar viðskiptavinir okkar höfðu aðlagað sig að aðstæðum. Við sáum jafnframt mikla aukningu á sölu sótthreinsiefna, andlitsgríma og lyfja,“ segir í ársreikningi.

Með teknu tilliti til erfiðra aðstæðna á seinni hluta rekstrarársins segjast stjórnendur vera ánægðir með 3,7 prósent hækkun sölu á árinu.
Á sama tíma hækkaði launakostnaður og annar rekstrarkostnaður milli ára þar sem starfsmönnum var greitt aukalega fyrir framlag þeirra við erfiðar aðstæður í faraldrinum.
Þá féll aukinn kostnaður á félagið vegna aukinna þrifa á vöruhúsi og kaupa á andlitsgrímum og hlífðarbúnaði til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
Gengismunur hafði jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu
Fram kemur í ársreikningi Costco á Íslandi að vegna breytinga á gengi krónu gagnvart sterlingspundi og bandaríkjadal hafi gengishagnaður aukist um 114 milljónir króna milli rekstrarára og numið 421,6 milljónum króna. Hafði það jákvæð áhrif á hagnað félagsins fyrir skatta.
Stjórn félagsins leggur til að ekki verður greiddur út arður vegna tímabilsins.