Andri er 49 ára íþróttafræðingur með meistaragráðu í íþróttastjórnun og hefur starfað hjá ÍSÍ síðan 2002, fyrst sem sviðsstjóri Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍSÍ og síðar sem sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og sem staðgengill framkvæmdastjóra.
„Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar, jafnt innanlands sem erlendis, en hann hefur meðal annars verið aðalfararstjóri á Ólympíuleikum síðan 2008 og á nú sæti í Tækninefnd Smáþjóðaleika Evrópu fyrir hönd ÍSÍ,“ segir í tilkynningunni.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti einróma að ráða Andra í starfið. Umsækjendur voru alls 29 talsins og var ráðningarferlið í umsjá Hagvangs.