Samkvæmt glænýjum tölum Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar lækkaði vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 0,4% prósent á milli júlí og ágúst en það er einmitt í höfuðborginni sem íbúðaverðið hefur verið í hæstu hæðum. Þetta er mesta lækkun sem hefur mælst síðan í febrúar 2019 þegar vísitalan lækkaði um 1% á milli mánaða.
„Við sjáum það núna að merki um kólnun eru orðin nokkuð skýr. Við sjáum það að íbúðaverð lækkaði á milli júlí og ágúst um 0,4% og við höfum ekki séð lækkun eiga sér stað milli á manaða síðan í nóvember 2019 þannig að þetta er svolítið nýtt og þetta er að gerast eftir tímabil mjög mikilla verðhækkana. Það má segja að þetta sé nokkuð kærkomið. Þetta bendir til þess að spennan sé að minnka og að við séum að fara að sjá aðeins nýjan takt á fasteignamarkaði,“ segir Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans.
Á fyrri árshelmingi höfðu hækkanir verið mjög miklar á milli mánaða, eða á bilinu 2,2-3% frá febrúar og fram í júní.
„Eftirspurnin jókst mjög mikið eftir íbúðahúsnæði til kaupa þegar COVID faraldurinn stóð hérna sem hæst og vextir voru lágir og núna höfum við séð vexti fara hækkandi og það er sennilega það sem er að draga úr eftirspurninni og hefur þessi kælandi áhrif á íbúðaverðið.“
Hagfræðideildin hefur uppfært verðbólguspá sína fyrir september vegna nýrra talna frá HMS.
„þetta þýðir að við sjáum aðeins hraðari hjöðnun verðbólgunnar. Þetta varð til þess að við uppfærðum verðbólgunspá okkar fyrir september. Við gerum núna ráð fyrir að verðbólgan verði 9,4% þá en ekki 9,6 eins og við héldum áður. Þetta þýðir bara hraðari hjöðnun verðbólgunnar af því að húsnæðisverð hefur verið svo stór þáttur í verðbólgunni,“ segir Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans.