Þetta kemur fram í tilkynningu sem Kaldbakur sendi á fjölmiðla.
Fjárfestingafélagið Kaldbakur ehf. er í eigu tveggja stofnenda Samherja hf. og fjölskyldna þeirra. Árið 2022 tók félagið yfir eignir Samherja sem voru ekki hluti af kjarnastarfsemi fyrirtækisins.
Eignagrunnur Kaldbaks er margþættur og spannar atvinnugreinar á borð við sjávarútveg, orku, matvælavinnslu og smásöluiðnað. Meðal eigna Kaldbaks eru hlutabréf í REM Offshore AS, Högum hf., Slippnum Akureyri ehf., Jarðborunum hf., Sjóvá hf. og Bergfrost P/F.
Með fjárfestingu í Optimar leitast Kaldbakur við að styrkja stöðu sína sem fjárfestir í haftengdum iðnaði.
Alþjóðlegur þjónustuaðili við sjávarútveg
Hjá Optimar starfa 260 manns við hönnun og vöruþróun, framleiðslu, uppsetningu og sölu og er fyrirtækið með viðskiptavini í meira en þrjátíu löndum. Höfuðstöðvar Optimar er í Ålesund í Noregi fyrirtækið er auk þess með starfsstöðvar á Spáni, í Rúmeníu og Bandaríkjunum.
Ekki eru fyrirhugaðar breytingar á rekstri Optimar sem mun áfram þjónusta viðskiptavini sína sem sjálfstætt fyrirtæki í samstæðu Kaldbaks ehf.

„Optimar er traustur þjónustuaðili við sjávarútveginn á heimsvísu. Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu, þekkingu og viðskiptasamböndum. Við erum spennt fyrir þeim tækifærum sem þessi fjárfesting mun skapa, bæði fyrir Optimar og fyrir önnur fyrirtæki í okkar eigu,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks.
Haniel er rótgróið þýskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur haft höfuðstöðvar í Duisburg frá stofnun sinni árið 1756. Árið 2022 störfuðu 21.500 manns hjá Haniel Group og velta fyrirtækisins nam 4,2 milljörðum evra. Haniel festi kaup á Optimar á árinu 2017 og hefur frá þeim tíma stutt við þróun og uppbyggingu fyrirtækisins.