Hazan valdi fyrir helgi landsliðshóp sinn fyrir leikinn við Ísland næsta fimmtudag, í undanúrslitum umspils um sæti á EM karla í fótbolta.
Leikurinn fer fram í Búdapest vegna stríðsins á Gasa en gagnrýnt hefur verið að UEFA og FIFA skuli leyfa Ísrael að spila, á meðan á stríðinu stendur.
Vísir spurði Hareide um hvernig honum þætti að mæta Ísrael, í viðtali í byrjun þessa mánaðar, og ummæli hans þar hafa farið afar illa í Ísraelsmenn miðað við þarlenda fréttamiðla og athugasemdir í kommentakerfum. Miðillinn útbreiddi Israel Hayom sagði í fyrirsögn að Hareide hefði tekið afstöðu með Palestínu.
Hareide sagði á blaðamannafundi á föstudag að hann vildi ekki taka neina afstöðu í stríðinu á Gasa, og að hans ósk væri að friður ríkti og að leikurinn gæti farið fram í Ísrael. Honum þætti staðan óþægileg, en að Ísland væri að fara að spila við fótboltamenn en ekki hermenn.
„Hef ekki neinn áhuga á því sem hann sagði“
„Ég las og heyrði þetta. Ég hef ekki neinn áhuga á því sem hann sagði. Ég þarf ekki að sýna þessum fullyrðingum áhuga. Mér er sama,“ sagði Hazan þegar hann var spurður út í ummæli Hareide á blaðamannafundi, samkvæmt miðlinum Israel Hayom.
Hazan var einnig spurður út í þá staðreynd að Ísland væri alls ekki sama lið og þegar það komst í 8-liða úrslit á EM 2016 og inn á HM 2018.
„Ísland er blekkjandi lið. Það er tilfinning margra að liðið sé á niðurleið en það er ekki satt. Þeir eru með leikmenn í sterkum deildum í Evrópu og þetta er mjög líkamlega sterkt lið,“ sagði Hazan.
Markvörður Bayern datt út
Ísraelska liðið kemur saman í Búdapest í dag, rétt eins og það íslenska. Ísraelar þurfa að spjara sig án Tottenham-mannsins Manor Solomon sem ekki náði að jafna sig af meiðslum í tæka tíð fyrir leikinn.
Stærstu stjörnur þeirra eru Eran Zahavi, framerhji Maccabi Tel Aviv, og Oscar Gloukh, 19 ára sókndjarfur miðjumaður RB Salzburg. Zahafi hefur skorað 34 mörk í 73 landsleikjum og Gloukh hefur verið orðaður við ensk stórlið á borð við Manchester United, Arsenal og Liverpool.
Ein breyting var gerð á liðinu í dag því markvörðurinn Daniel Peretz, sem er á mála hjá Bayern München, varð að draga sig úr hópnum og inn í hans stað kom Gad Amos. Aldrei stóð þó til að Peretz myndi byrja leikinn gegn Íslandi.