Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Samúel Karl Ólason skrifar 19. janúar 2025 07:19 Vopnahléi fagnað á Gasaströndinni. AP/Abdel Kareem Hana Ísraelar héldu í morgun loft- og stórskotaliðsárásum á Gasaströndinni áfram, þó vopnahlé hefði átt að taka gildi klukkan hálf sjö. Talsmaður Ísraelshers sagði leiðtoga Hamas ekki hafa framfylgt samkomulaginu með því að afhenda ekki nöfn þeirra þriggja gísla sem átti að sleppa úr haldi seinna í dag en nöfnin voru afhent um klukkan átta í morgun. Vopnahlé tók því gildi klukkan 9:15 að íslenskum tíma í morgun, eftir rúmlega fimmtán mánaða átök sem sögð eru hafa kostað að minnsta kosti 46 þúsund Palestínumenn lífið. Í yfirlýsingu frá talsmanni Qassam-sveita Hamas segir að konurnar þrjár heiti Romy Jonin (24), Emily Damary (28) og Doron Shtanbar Khair (31). Vopnahléið átti að taka gildi klukkan 6:30 að íslenskum tíma. Daniel Hagari, áðurnefndur talsmaður, sagði í morgun að árásum myndi ekki linna fyrr en Hamas framfylgdi samkomulaginu og afhenti nöfn gíslanna. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, sagði að vopnahléið hefjist ekki fyrr en listinn sé kominn í hendur Ísraelsmanna og gaf hann út sambærilega viðvörun í gærkvöldi. Sjá einnig: Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Fram hefur komið að samkvæmt þessu þriggja fasa samkomulagi myndu Hamas-liðar sleppa fjölda gísla í skiptum fyrir það að Ísraelar sleppi Palestínumönnum úr fangelsi. Í fyrsta fasanum eiga Hamas-liðar að sleppa 33 gíslum yfir sex vikna tímabil og Ísraelar eiga að sleppa fjölmörgum Palestínumönnum úr fangelsum og þar á meðal dæmda hryðjuverkamenn. Til stendur að sleppa 95 palestínskum konum og börnum úr haldi Ísraela í dag. Hversu mörgum Palestínumönnum verður sleppt samkvæmt samkomulaginu liggur ekki fyrir enn. Þúsundir Palestínumanna eru í haldi Ísraela. Ísraelskir hermenn eiga einnig að hörfa frá byggðum Gasastrandarinnar á þessu tímabili og flæði neyðaraðstoðar á að aukast til muna. Hér að neðan má sjá beina útsendingu AP fréttaveitunnar frá Khan Younis á Gasaströndinni. Stórar spurningar eru uppi um hvað gerist eftir þetta sex vikna tímabil en viðræður um það eiga að hefjast tveimur vikum eftir að vopnahléið tekur gildi. Verði 33 gíslum sleppt á næstu sex vikum er talið að um hundrað verði áfram í haldi Hamas og að þriðjungur þeirra sé látinn. Fylgst verður með vendingum dagsins í vaktinni hér að neðan. Sjáist hún ekki gæti þurft að endurhlaða síðuna.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið „Ég hef enga hugmynd um hvaða maður þetta er“ Innlent Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Erlent Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Erlent Fundu villtan mann í skítaveðri á Fagradalsfjalli Innlent „Algjört þjóðaröryggismál að hafa þetta í lagi“ Innlent Landið mest allt gult í dag Innlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð opnuð í Vogum Innlent Grímuklæddi maðurinn kúkaði aftur á bílinn Innlent TikTok bann í Bandaríkjunum Erlent Prófessorar íhuga verkfall: „40% akademísks starfsfólks í kulnun eða komin langt á leið“ Innlent Fleiri fréttir TikTok bann í Bandaríkjunum Vaktin: Vopnahlé tekur gildi á Gasa Mun færri slasaðir eftir skíðaslysið en talið var í fyrstu Segir miklar líkur á að Tiktok banni verði frestað Margir alvarlega slasaðir á skíðasvæði á Spáni Þrír látnir eftir loftárás Rússa Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár Hæstiréttur veitir TikTok banninu blessun sína Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Styrkur gróðurhúsalofttegunda aldrei aukist eins hratt Andstaða gegn banni við hjónaböndum systkinabarna Mikið sjónarspil eftir að Starship sprakk „Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Fyrrverandi forsætisráðherra Finna fer fram á nálgunarbann Her Súdan í sókn gegn RSF og hermenn sakaðir um ódæði Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Rak formann mikilvægrar nefndar að beiðni Trumps Betri aðstæður næstu daga: Rúmlega tólf þúsund byggingar hafa brunnið Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Deila um ákvæði um fangaskipti Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Sjá meira