Viðskipti innlent

Kaupin á TM: „Þetta mun ein­fald­lega ganga í gegn“

Árni Sæberg skrifar
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Fjármála- og efnahagsráðherra segir kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM ganga gegn stefnu ríkisins en að kaupunum verði ekki hnekkt.

Flestir ráku upp stór augu þegar Landsbankinn, sem er alfarið í eigu ríkissjóðs, tilkynnti fyrirhuguð kaup á TM í mars í fyrra. Ekki síst þáverandi fjármálaráðherra sem sagði kaupin ekki myndu ganga í gegn á hans vakt. Þá lýsti Bankasýsla ríkisins yfir andstöðu sinni við áformin og þingmaður Viðreisnar sagði brýnt að fallið yrði frá kaupunum.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í gær að ástæða væri fyrir því að Landsbankinn er í ríkiseigu. Tryggja þyrfti aðhald á bankamarkaði og sjá til þess að þar væri banki sem gengdi samfélagslegu hlutverki.

Ríkið skipti sér ekki af um of

Hann segir þó að armslengdarsjónarmið gildi í sambandi ríkisins og Landsbankans. Þannig hafi stjórn bankans getað gert tilboð í TM án aðkomu ríkisins.

„Sú armslengd gerir það að verkum að stjórnin er sjálfstæðari, innan þó eigendastefnu ríkisins, í þeim ákvörðunum sem hún tekur. Þessi ákvörðun um kaup á tryggingafélagi getum við sagt að gangi gegn því meginmarkmiði að afskipti ríkisins á samkeppnismarkaði séu sem minnst.“

Nýja bankaráðið á sömu skoðun

Þrátt fyrir að kaupin gangi gegn eigendastefnu ríkisins verði þeim ekki hnekkt.

„Það er líka samt þannig að það var mat stjórnar bankans og á því hefur ekki orðið nein breyting, að það kæmi viðskiptavinum bankans vel, að hann ætti tryggingarfélag. Þetta er þróun sem er að eiga sér stað mjög víða, að bankar séu að eignast tryggingarfélög, enda er starfsemi þeirra ekki alveg ótengd.“

Athygli vekur að afstaða stjórnar bankans hafi ekki breyst hvað kaup á tryggingafélagi varðar, enda var öllu bankaráði Landsbankans skipt út í kjölfar tilkynningar um kaupin á TM.

„Þetta mun einfaldlega ganga í gegn. Hvort að síðan sambærileg þjöppun sé æskileg eða eitthvað sem við myndum styðja í framtíðinni er önnur spurning,“ segir Daði Már að lokum.


Tengdar fréttir

Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM

Landsbankinn gekk frá samningi við Kviku banka um kaup á tryggingafélaginu TM fyrir 28,6 milljarða króna í dag. Kaupsamningur þeirra var skuldbindandi fyrir Landsbankann samkvæmt lögfræðiáliti sem nýtt bankaráðs bankans lét vinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×