Innlent

Sól­veig með sama rétt en segist ekki myndu nýta hann

Kjartan Kjartansson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Ragnar Þór Ingólfsson, þáverandi formaður VR, þegar þau stóðu saman í stéttabaráttu.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Ragnar Þór Ingólfsson, þáverandi formaður VR, þegar þau stóðu saman í stéttabaráttu. Vísir/Vilhelm

Formaður Eflingar á rétt á sex mánaða launagreiðslum við starfslok samkvæmt ráðningasamningi sínum. Sólveig Anna Jónsdóttir segir að hún þægi ekki þau laun næði hún sæti sem kjörinn fulltrúi.

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, þáði 10,2 milljóna króna eingreiðslu í biðlaun og uppsafnað orlof um mánaðamótin vegna starfsloka hans sem formanns VR í desember. Hann segist hafa þegið launin til þess að leggja í „neyðarsjóð“ fjölskyldu sinnar vegna þess að verkalýðsleiðtogar eigi oft erfitt með að fá vinnu eftir að hafa staðið í stéttabaráttu.

Sjálfur gagnrýndi Ragnar Þór harðlega starfslokagreiðslur til þáverandi ríkislögreglustjóra árið 2019. Sagði hann óboðlegt að „pólitísk foréttindastétt“ lyti öðrum lögmálum en venjulegt fólk.

Þá sagði Ríkisútvarpið frá því í dag að Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, yrði á launum hjá Rafiðnaðarsambandi Íslands fram á sumar þrátt fyrir að hann hafi byrjað að fá greidd laun sem þingmaður í desember.

Freyr Rögnvaldsson, upplýsingafulltrúi Eflingar, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að kveðið sé á um sex mánaða rétt til launagreiðslna við starfslok í ráðningarsamningi Sólveigar Önnu, formanns félagsins. Eftir því sem næst verði komist sé það ákvæði sambærilegt við samninga annarra leiðtoga innan verkalýðshreyfingarinnar.

Sjálf segir Sólveig Anna að hún þægi ekki þessi laun ef hún væri kjörin til opinbers embættis og væri byrjuð að þiggja laun fyrir það.

„Mér myndi ekki hugnast það. Það myndi bara ekki samræmast minni sýn á þessi störf, hvort sem það er að vera formaður í stéttarfélagi eða lýðræðislega kjörinn fulltrúi á Alþingi,“ segir Sólveig Anna sem vildi ekki tjá sig sérstaklega um ákvörðun Ragnars Þórs um að þiggja launagreiðslurnar.


Tengdar fréttir

Verður á launum hjá stéttarfélagi og Alþingi út júní

Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður með ráðningarsamband við Rafiðnaðarsamband Íslands út júní þrátt fyrir að hann hafi sagt af sér fyrr í þessum mánuði. Hann er sagður eiga að hjálpa nýjum formanni að komast inn í embættið.

Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar

Ragnar Þór Ingólfsson, nýkjörinn þingmaður og fyrrverandi formaður VR, segir biðlaun sem hann fékk greidd frá verkalýðsfélaginu fara í neyðarsjóð fjölskyldunnar. Framlínufólk verkalýðsbaráttunnar eigi oft erfitt á vinnumarkaði eftir að það hættir að starfa fyrir verkalýðsfélögin.

VR greiddi Ragnari Þór rúmar tíu milljónir við starfslokin

Ragnar Þór Ingólfsson fékk greiddar rúmar tíu milljónir króna frá stéttarfélaginu VR í hálfs árs biðlaun og orlof eftir að hann lét af embætti formanns til þess að taka sæti á Alþingi í desember. Hann hefur fengið greidd laun fyrir þingsetu frá því í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×