

Loftslagsmál

Milton safnar aftur krafti
Fellibylurinn Milton er aftur orðinn að fimmta stigs fellibyl, eftir að hann var lækkaður í fjórða flokk í dag. Búist er við því að fellibylurinn muni valda mikilli eyðileggingu á vesturströnd Flórída seinna í vikunni, gangi spár eftir.

Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton
Meira en þrjár milljónir manna búa á Tampa-svæðinu á vesturströnd Flórída þangað sem fellibylurinn stefnir nú. Fólk er byrjað að koma sér undan þar en innan við tvær vikur eru frá því að fellibylurinn Helena olli eyðileggingu í Flórída og víðar.

Ríkið gæti niðurgreitt losun flugfélaganna um þrjá milljarða
Kostnaður ríkisins vegna undanþágu fyrir flugfélögin frá hertum losunarkröfum Evrópusambandsins gæti numið allt að rúmum þremur milljörðum króna næstu tvö árin. Losunarheimildir sem flugfélögin fá endurgjaldslaust koma frá íslenska ríkinu.

Íbúakosning verður haldin í Hafnarfirði
Fari svo að Hafnarfjarðarbær og Coda Terminal nái samningum um að fyrirtækið dæli innfluttu koldíoxíði niður í jörðina við bæinn verður haldin íbúakosning um málið.

Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring
Fellibylurinn Milton hefur stækkað mjög hratt yfir Karíbahafinu og er nú skilgreindur sem fimmta flokks fellibylur og sá kröftugasti á þessu ári. Hann stefnir hraðbyr að Flórída en Helena, annar öflugur fellibylur fór þar einnig yfir á dögunum og olli miklum skaða.

Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja
Lögreglan á Suðurlandi hefur tilkynnt að hún sé hætt að sekta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum. Enn eru rúmar þrjár vikur í að notkun nagladekkja verði lögleg.

Minnkandi losun en umfram úthlutanir Íslands
Losun gróðurhúsalofttegunda var líklega umfram úthlutanir Íslands í fyrra þrátt fyrir að hún drægist saman um þrjú prósent á milli ára. Stjórnvöld hafa þó nægjanlegan sveigjanleika til þess að standast alþjóðlegar skuldbindingar sínar.

Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað
Brennslu kola til rafmagnsframleiðslu er lokið í Bretlandi eftir 142 ára sögu. Slökkt var á síðasta kolaorkuveri landsins í nótt. Meiri en helmingur af raforku er nú framleidd með endurnýjanlegum hætti í Bretlandi.

Carbfix – enn og aftur
Carbfix-aðferðin hraðar ferli sem bindur koldíoxið í steind með sama hætti og gerist á ótal stöðum í berggrunni Íslands á meðan þessi orð eru skrifuð. Kalsítútfelling í basalti er kjörin leið til að flýta náttúrulegu ferli og binda með því ofgnótt af koldíoxíði í lofti.

Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá
Orkuveitan hefur fengið vilyrði fyrir rúmlega ellefu milljarða króna láni frá Evrópska þróunarbankanum (CEB). Lánið á að fjármagna uppbyggingu á veitukerfi og efla viðnám þess gegn loftslagsvá og náttúruhamförum.

Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér
Þegar þetta er skrifað hafa 34 deilt færslu Viðskiptaráðs sem ber fyrirsögnina “Tvær af hverjum þremur loftslagsaðgerðum hafa neikvæð efnahagsleg áhrif” og fjallar um umsögn ráðsins um uppfærða aðgerðaráætlun í loftslagsmálum.

Að kjarna orku þjóðar
Stuttu eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst árið 2022 varð ljóst að orkumál í Evrópu stóðu höllum fæti. Þjóðverjar höfðu til að mynda sett sífellt fleiri egg í körfu Rússlands með sívaxandi innflutningi á gasi úr austri.

Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella
Hnattræn hlýnun af völdum manna tvöfaldaði líkurnar á úrhellinu sem olli mannskæðum flóðum í Mið-Evrópu í síðustu viku. Að minnsta kosti 24 fórust í flóðunum sem eru sögð þau verstu í að minnsta kosti tuttugu ár.

Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu
Á annan tug umhverfisverndarsinna var handtekinn eftir að spellvirki voru unnin á finnska þinghúsinu í Helsinki í morgun. Fólki skvetti rauðleitum vökva á tröppur og súlur hússins til þess að mótmæla móvinnslu finnsks fyrirtækis í Svíþjóð.

Loftslag eða lífskjör: bæði betra
Viðskiptaráð skilaði í síðustu viku inn umsögn til umhverfis- orku- og loftslagsráðherra um uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þar mátum við efnahagsleg áhrif þeirra 150 loftslagsaðgerða sem þar má finna. Niðurstaðan var sú að tvær af hverjum þremur aðgerðum hefðu neikvæð efnahagsleg áhrif.

Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar
Alþjóðlegt markmið um að þrefalda framleiðslugetu endurnýjanlegrar orku er innan seilingar, að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar. Orkuframleiðslan dragi þó ekki ein og sér úr losun gróðurhúsalofttegunda sem ógnar loftslagi jarðar.

Hvað lærum við af hinum sem er ósammála? Samtal um loftslagsmál
Ég rakst á áhugaverðan TED fyrirlestur á YouTube sem vakti mig til umhugsunar. Leikskáldið David Finnigan fjallaði þar um sýninguna sína frá árinu 2014, „Kill Climate Deniers,“ sem olli miklu fjaðrafoki.

Ég er ekki alki
Það er til fullt af fólki sem drekkur meira en ég. Fullyrðingin er sönn í þetta skiptið. Það er líka til fólk sem er miklu dónalegra en ég, fólk sem er gráðugra en ég, þunglyndara og kvíðnara en ég, frekari en ég. En hvað á ég að gera í því og er ég þá bara stikkfrí?

„Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“
Andri Snær Magnason gagnrýnir Viðskiptaráð fyrir afstöðu þess til loftslagsaðgerða. Vilji samtökin láta taka sig alvarlega þurfi þau að koma með plan í stað þess að einblína eingöngu á afkomu fyrirtækja. Eins og stendur sé ekki samfélagslega ábyrgt af fyrirtækjum að vera í Viðskiptaráði

Samrýmist það samfélagslegri ábyrgð ef fyrirtæki þitt er aðili að Viðskiptaráði?
Ímyndum okkur að vírus breiddist yfir jörðina og allir veðurfræðingar, jöklafræðingar, sjávarlíffræðingar ásamt gestum á COP ráðstefnum vöknuðu einn daginn og gætu bara sagt: EBITA EBITA! EBITA. Alveg sama hver spurningin væri, þá væri svarið bara EBITA! Öllum væri ljóst að þeir væru fallnir fyrir einhverjum Zombí-vírus.

Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar
Borgarráð samþykkti í gær að koma á árlegum námsstyrk í nafni Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur lögfræðings og fyrrum sviðsstjóra og borgarritara. Ellý lést í júní á þessu ári og var þá 59 ára gömul. Ellý greindist með forstigseinkenni Alzheimersjúkdómsins 51 árs.

Snúum hjólunum áfram
Á sama tíma og ríkisstjórninni gengur sífellt verr að ná árangri í loftslagsmálum kemur á óvart að annað árið í röð þurfi að berjast fyrir stuðningi við hóp fólks sem hefur tekið sér mikilvægt hlutverk í þágu grænni og betri framtíðar.

Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins
Ársfundur atvinnulífsins fer fram í Hörpu milli klukkan 15 og 17 í dag þar sem sjónum verður sérstaklega beint að grænni orku. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr
Vatnsstaða í mörgum þverám Amasonfljóts er nú lægri en nokkru sinni hefur mælst áður af völdum langvarandi þurrks. Sumar ár sem voru áður siglanlegar hafa jafnvel þornað alveg upp. Fjöldi þorpa hefur einangrast því ekki er lengur hægt að sigla þangað.

Spáir viðvarandi skorti á raforku næstu fimm ár
Ný raforkuspá Landsnets gerir ráð fyrir viðvarandi orkuskorti í landinu næstu fimm árin og að raforkuskerðingar verði áfram við lýði fram eftir þessum áratug.

Flóð í Evrópu og Mjanmar og gróðureldar í Portúgal
Tala látinna í flóðunum í austanverðri Evrópu heldur áfram að hækka en í gær bættust fjögur dauðsföll á listann í Póllandi, þrjú í Tékklandi og eitt í Rúmeníu. Fjölda fólks er einnig saknað en staðfest tala látinna er nú komin upp í sextán manns.

Þriggja mánaða úrkoma á þremur dögum í mannskæðum flóðum
Að minnsta kosti tíu eru látnir í flóðunum í Mið-Evrópu þar sem neyðarástand ríkir víða. Á sumum stöðum hefur þriggja mánaða úrkoma fallið á aðeins þremur dögum.

Reif sig upp frá Mogganum eftir fjörutíu ár
Einar Falur Ingólfsson er listamaður. Hann tók stökkið eftir að hafa fjallað um list í 40 ár. En hann hafði verið að fikta við listsköpun lengi samhliða vinnu. Einar Falur er lærður ljósmyndari og kennir ljósmyndun, er bókmenntafræðingur en starfaði lengstum innan vébanda Morgunblaðsins.

Búa sig undir aftakaúrkomu og flóð í Mið-Evrópu
Slökkviliðsmenn í Prag unnu að því að koma upp flóðvörnum í kringum gamla bæinn þar vegna aftakaúrkomu sem er spáð fram á helgina. Svipuðu veðri er spáð víða í Mið-Evrópu næstu daga.

Risaflóðbylgja í grænlenskum firði mældist um allan heim
Óútskýrðar hræringar sem greindust á jarðskjálftamælum um alla jörð í fyrra stöfuðu frá risavaxinni flóðbylgju sem velktist um í firði á Austur-Grænlandi í níu daga. Hnattræn hlýnun er sögð ástæða berghlaupsins út í fjörðinn sem kom bylgjunni af stað.