

Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.
Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara, segist hafa tileinkað sér góða morgunrútínu til að viðhalda góðum venjum dag frá degi. Hún hafi í kjölfarið orðið afkastameiri, fundið fyrir jafnari orku og liðið almennt betur.
Helga Gabríela heilsukokkur og þriggja barna móðir deildi hollri uppskrift af frosnum bananasnickersstykkjum á samfélagsmiðli sínum sem gott er að grípa í úr frystinum þegar mann langar í eitthvað smá sætt.
Hjónin Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eigendur heilsustaðarins Maikai, kynntust í gegnum Instagram fyrir um átta árum þegar Elísabet fór að fylgja honum á miðlinum.
Næringarfræðingur mælir eindregið gegn því að fólk borði hrátt kjöt vegna örvera sem meltingarflóra mannsins á erfitt með að meðhöndla.
Eitt glæsilegasta vínsafn landsins leynist í sérútbúnum vínkjallara í Kópavogi. Yfir þúsund flöskur eru í kjallaranum í dag en hafa oft verið fleiri, enda ekki keyptar til að vera til sýnis heldur til að njóta.
Prófessor í næringarfræði hvetur áhrifavalda sem miðla næringar- og heilsutengdu efni til umhugsunar. Gott sé að staldra við áður en upplýsingar, sem mögulega er enginn fótur fyrir, séu settar í loftið.
Athafnamaðurinn Davíð Viðarsson á fjölmörg félög og rekur fjölda veitingastaða og verslana í Reykjavík. Heildareignir félaganna sem Davíð á nema 1,2 milljarði króna.
Nýjustu meðlimir sígildu vörulínunnar frá Moomin Arabia nálgast lífið og tilveruna á ólíkan hátt. Hinn öra Snabba dreymir um frægð og frama; en hinni spekingslegu Bísamrottu þykir öll ólæti og ofgnótt tilgangslaus.
Lyle's Golden Syrup hefur tekið til notkunar nýjar umbúðir á vörum sínum. Í stað rotnandi ljónshræs kemur teiknuð mynd af ljóni. Breytingin á þó einungis við sírópið sem fæst í flöskum en sírópsdósirnar vinsælu verða enn með sama útlit.
Aðjúnkt í næringarfræði segir margar mýtur um mat á sveimi. Blóðsykurshræðsla hafi stýrt umræðunni undanfarið og áhrifavaldar græði á því með sölu óþarfa blóðsykursmæla. Sérstaklega sé mikið af mýtum tengdum lágkolvetnabylgjunni sem ríði yfir og fólk boði þar einfaldar óvísindalegar lausnir.
Pílukastarinn Luke Littler ætlar að taka matarræðið hjá sér í gegn og er hættur að borða kebab á kvöldin.
„Ég hafði oft tínt bláber með krökkunum og sultað, en fundist sykurmagnið rosalega mikið í sultugerðinni. Þannig að einn daginn hugsaði ég með mér: Við með allt þetta sætuefni hljótum að geta gert betur,“ segir Garðar Stefánsson forstjóri Good Good þegar hann rifjar upp fyrstu sultugerð fyrirtækisins.
Færri komust að en vildu á fermingarkvöld Hagkaups sem haldið var í Hagkaup Smáralind í gærkvöldi. Á kvöldinu var hægt að kynna sér fjölmargar vörur sem Hagkaup selur fyrir ferminguna, skraut, mat, förðunarvörur og svo mætti lengi telja.
Meistaranemi í næringarfræði segir margar mýtur í gangi um hollustu hafragrauts. Hún þekki dæmi þess að foreldrar setji þrýsting á leikskólastjóra barna sinna að hætta að bera hann á borð fyrir börnin.
Þegar sykurpúkinn bankar upp á er gott að eiga hollari súkkulaðimola í frystinum heilsunnar vegna. Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur deildi nýverið einfaldri uppskrift að sætum bitum sem svala sykurþörfinni með góðri samvisku.
Þann 8. febrúar síðastliðinn afhjúpaði KitchenAid lit ársins 2024: Blue Salt. Blue Salt eða Saltblár er lillablár litur með hárfínum litaskiptum, rauðleitri perluáferð sem skiptir mjúklega litatónum eftir því hvar ljósið lendir á litnum.
Húsfyllir var í glæsiteiti Dineout, í samstarfi við Food & Fun, á þakbar Edition hótel, The ROOF í gærkvöldi. Fjöldi þjóðþekktra Íslendinga voru meðal gesta sem gæddu sér á ljúffengum réttum og skáluðu fyrir Food & Fun hátíðinni sem hefst 6. mars næstkomandi.
Stjörnugrís hefur tilkynnt innköllun á tveimur tegundum af skinku vegna þess að gerillinn Listeria monocytogenes mældist í vörunum. Neytendur eru beðnir um að neyta ekki varanna og farga þeim eða skila í verslun.
Þær Eva Sigrún Guðjónsdóttir og Sólveig Einarsdóttir eru miklir matgæðingar og gætu ekki gleymt því að borða sama hversu uppteknar þær eru. Stöllurnar kynntust nýverið í fæðingarorlofi og ákváðu að sameina krafta sína með hlaðvarpinu Bragðheimar, sem fjallar einmitt um mat.
Rekstraraðilar N1 bensínstöðva hafa hætt við að hætta að bjóða viðskiptavinum upp á pylsu með kartöflusalati eftir að tugir kvartana bárust starfsmönnum. Rekstrarstjóri segir að kartöflusalatið hafi átt að víkja fyrir franskri pylsu, en nú verði bæði í boði.
ORF Líftækni og ástralska nýsköpunarfyrirtækið Vow héldu fyrstu opinberu smökkun á vistkjöti í Evrópu í gær. Boðið var upp á tvo rétti þar sem vistkjöt, ræktað úr frumum úr japanskri kornhænu, var í aðalhlutverki.
Skólastjórnendur Grunnskóla Seltjarnarness hafa biðlað til forráðamanna barna í sjöunda til tíunda bekk að brýna fyrir börnunum að panta sér ekki heimsendan mat í skólann.
Annan sunnudaginn í hverjum febrúar troða Íslendingar í sig sífellt fleiri kjúklingavængjum og annars konar góðmeti. Má þar nefna kökur, snakk, eðlur og rif.
Sólveig Eiríksdóttir, sem oftast er kölluð Solla og kennd við Gló eða Grænan kost, er komin í draumastarfið á meðferðarheimilinu í Krýsuvík. Elías Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Krýsuvíkursamtakanna og fyrrverandi eiginmaður Sollu, bauð henni að vinna þar sem kokkur. Hún segir alla sína fyrrverandi vera vini sína.
Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur mánudaginn 12. febrúar næstkomandi. Matgæðingurinn Linda Benediktsdóttir er auðvitað byrjuð að undirbúa og deilir girnilegri uppskrift af vatnsdeigsbollum með hindberja- og lakkrísrjómafyllingu með lesendum Vísis.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir matgæðingur og heilsukokkur er snillingur í að útbúa holla og næringaríka rétti í eldhúsinu. Ebba deilir hér tveimur uppskriftum að ljúffengum pítsum í hollari kantinum fyrir helgina.
Mjólkursamsalan hafði strax samband við birgja sína þegar fréttir bárust af því í vikunni að mygluostarnir camembert og brie væru í útrýmingarhættu. Vöruþróunarstjóri telur ostaunnendur ekki þurfa að hafa áhyggjur, ostarnir séu ekki á útleið í bráð - þó að útlit þeirra gæti breyst þegar fram líða stundir.
Nathan & Olsen, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur innkallað frá neytendum Til hamingju Súkkulaðihúðaða banana. Ástæða innköllunar er sú að við framleiðslu á vörunni hafa blandast saman við hana súkkulaðihúðaðar valhnetur.
Íslenska kokkalandsliðið hafnaði í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart Þýskalandi. Keppni lauk í gær og voru úrslitin kynnt nú eftir hádegið á lokahátíð leikanna.
Á köldum dögum sem þessum má leita ýmissa leiða til þess að hlýja sér og myndu sumir segja að í eldhúsinu megi finna hlýjuna. Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir, jafnan þekkt sem Jana, er dugleg að deila ýmsum uppskriftum í heilsusamlegri kantinum en nýlegasta uppskriftin er heitur eplahleifur sem hún segir dásamlegan.