
Dýr

Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum
Skæð fuglaflensuveira af gerðinni H5N5 hefur verið staðfest í villtum fuglum á Norður- og Suðausturlandi. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að óvissustig sé í gildi og að allir sem haldi alifugla eða aðra fugla séu hvattir til að viðhafa ýtrustu smitvarnir við umgengi á fuglunum sínum. Fólk er hvatt til tilkynna veika og dauða fugla til MAST.

Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar
Vísindamönnum hefur í fyrsta skipti tekist að endurskapa haus stærstu pöddu sem verið hefur uppi á jörðinni. Þúsundfætlan, sem gat orðið vel á þriðja metra að lengd, hefur verið þekkt lengi en fræðimenn hafa fram að þessu aðeins getað getið sér til um hvernig haus hennar leit út.

Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt
Eigandi hunds á höfuðborgarsvæðinu fór með hund upp í sveit og skaut hann. Eigandinn situr uppi með 230 þúsund króna sekt.

Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið
Flugáhöfn Air Atlanta á hringferð um Afríku upplifði það að sjá ljón tvívegis ráðast á og drepa dýr í þjóðgarði skammt frá hóteli sínu. Áhöfnin var í hvíldarstoppi í borginni Nairobi í Kenýa.

Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum
Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að hafna innflutningi á hundi til landsins. Eigandi hundsins flutti hann til landsins, en vildi meina að ekki væri um eiginlegan innflutning að ræða þar sem hann væri að koma aftur heim til Íslands.

Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar
Mjaldurinn Hvaldímír drapst í kjölfar bakteríusýkingar sem hann fékk vegna sárs í munni eftir prik sem sat fast. Það sýna niðurstöður krufningar. Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Engar byssukúlur fundust í mjaldrinum við skoðun. 35 sentímetra langt og þriggja sentímetra breitt prik var fast í munni mjaldursins og er talið að prikið hafi valdið sýkingu sem svo leiddi til dauða hans.

Þóra Jóhanna nýr yfirdýralæknir
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur tekið ákvörðun um að skipa Þóru Jóhönnu Jónasdóttur í embætti yfirdýralæknis. Hún tekur við af Sigurborgu Daðadóttur, sem var skipuð yfirdýralæknir árið 2013, fyrst kvenna.

Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði
Kona sem hætti á námskeiði fyrir hunda og eigendur þeirra fær endurgreitt fyrir þann hluta námskeiðsins sem eftir var þegar hún hætti. Konan hætti vegna þess að henni misbauð meðferð hundaþjálfarans á hundunum.

Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann
Það vantaði bara David Attenborough og kvikmyndatökulið á Skarðsströnd í Dölum í gær þar sem haförn og lax háðu baráttu fyrir lífi sínu. Kaupmaður myndaði herlegheitin út um stofugluggann hjá sér.

Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi
Fransisco Snær Hugason náði myndbandi af tilkomumiklu sjónarspili þegar stór hópur grágæsa flaug yfir Hrafnagil í kvöld. Hann segist aldrei hafa séð svona áður.

Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu
Krókódíla ræktandi í Taílandi sem gengur undir nafninu „Crocodile X“ segist hafa neyðst til að aflífa 125 krókódíla af tegund sem er í bráðri útrýmingarhættu. Hætta var á að dýrin myndu sleppa af afgirtu svæði þar sem þau voru geymd og greip því eigandinn til þessa örþrifaráðs.

Fyndnustu dýralífsmyndir ársins
Forsvarsmenn hinnar árlegu ljósmyndakeppni Comedy Wildlife Photography Awards birtu í dag þær myndir sem keppa til úrslita þetta árið. Myndirnar sýna villt dýr við skondnar og oft undarlegar aðstæður.

Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne
Risavaxinn mörgæsarungi sem gengur undir nafninu Pestó er nýjasta stjarna dýragarðsins í Melbourne í Ástralíu.

Risavaxin mörgæs slær í gegn
Risavaxinn mörgæsarungi sem gengur undir nafninu Pestó er nýjasta stjarna dýragarðsins í Melbourne í Ástralíu.

Leituðu á stóru svæði en fundu ekki fleiri hvítabirni
Engir hvítabirnir fundust við leitarflug Landhelgisgæslunnar yfir Vestfirði í dag. Lögreglustjóri segir menn nú hafa leitað af sér allan grun um að annað dýr sé á svæðinu, eftir að ung birna var felld á Höfðaströnd í Jökulfjörðum á fimmtudag.

Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan
Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, ásamt lögreglumanni af Vestfjörðum, kanna nú hvort hvítabirni sé að finna í Jökulfjörðum eða á Hornströndum. Engar vísbendingar eru um að fleiri dýr en það sem fellt var fyrir helgi hafi komið til landsins, en lögreglustjórinn á Vestfjörðum segir gott að leita af sér allan grun.

Eðla rölti inn á brautina á æfingu
Óboðinn gestur setti strik í reikning ökumanna á æfingu fyrir kappaksturinn í Singapúr í Formúlu 1.

Hvers vegna að fella ísbirni?
Ísbjörninn sem kom á land á Hornströndum í gær var birna, líklegast tveggja eða þriggja vetra. Birnan var ekki í góðum holdum þegar hún kom hingað á land. Líklega hafði aðeins reynt á fituforðann síðustu daga. Kona á níræðisaldri í sumarhúsi tilkynnti lögreglu um birnuna sem var felld nokkrum tímum síðar.

Búið að taka sýni úr ungu birnunni
Búið er að taka ýmis sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær. Næst á dagskrá er að greina sýnin til að komast að því hvort hann hafi borið með sér einhverja sjúkdóma og til að komast að því af hvaða stofni hann var. Hvítabjörninn var kvendýr og var um 163 sentímetrar að lengd.

„Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“
„Ég hef vakið athygli á þessu eiginlega í hvert einasta skipti sem þetta kemur upp, það er að segja að bjarndýr þvælist hingað. Sem gerist endrum og sinnum, öðru hvoru, og hefur gerst í gegnum söguna.“

Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp
Tekin verða sýni úr hvítabirninum sem var felldur í gær og hann svo settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp. Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri hjá Náttúrufræðistofnun segir miður að það hafi ekki verið hægt að halda dýrinu lifandi en það hafi ekkert annað verið í stöðunni.

Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð
Ásthildur Gunnarsdóttir, kona á níræðisaldri, var nýkomin inn í sumarbústað á Höfðaströnd í Jökulfjörðum þegar hún sá hvítabjörn örskammt frá.

Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína
Hvítabjörn sem kom á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var felldur nú fyrir skömmu. Hann fannst skammt frá sumarhúsi, þar sem konan sem tilkynnti um hann dvaldist einsömul.

Senda vopnaða menn á svæðið
Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna.

Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út
Lögreglan á Vestfjörðum fékk fyrir skömmu tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum.

Selur slapp úr hvalskjafti
Ferðamenn í Hvalaskoðun undan ströndum Washington-ríkis í Bandaríkjunum í síðustu viku sáu heldur óhefðbundna sýn þegar þau sáu sel í hvalskjafti. Hnúfubakurinn hafði óvart gleypt selinn en kom aftur upp á yfirborðið til að losna við selinn.

Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum
Þýskur ferðamaður er látinn eftir hákarlaárás undan ströndum Kanaríeyja. Um var að ræða konu á fertugsaldri. Hún missti fótlegg í árásinni.

Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki
Ráðstefnan Dýr í starfi með fólki verður haldin í Reykjadal í Mosfellsbæ laugardaginn 14. september 2024. Á ráðstefnunni segja bæði innlendir og erlendir sérfræðingar frá starfi sínu með hundum, hestum og köttum á víðum vettvangi.

„Það var mikil geðshræring á heimilinu“
Grunlaus fjölskylda í Grafarvoginum fékk óvænta gesti í heimsókn í vikunni þegar eitruð könguló og maki hennar bárust inn á heimilið með vínberjaklasa. Köngulærnar reyndust vera af sömu undirtegund og svarta ekkjan.

Örn réðst á tveggja ára stúlku
Tuttugu mánaða norsk stelpa var hætt komin þegar örn reyndi að hremma hana við sveitabæ fjölskyldunnar í gær. Móðir og nágranni komu í veg fyrir að örninn næði að fljúga á brott með barnið.