
Trúmál

„Við berum ekki þeirra sorg“
Þegar þjóðarsálin upplifir hvert áfallið á fætur öðru á það til að gerast að sumir dofni og sýni sinnuleysi en aðrir upplifa rosalega sterkar tilfinningar.

Viljum við útrýma kristni úr þjóðlífinu?
Það er verið að útrýma kristni úr þjóðlífinu. Kristnifræði sem námsgrein hefur t.d. að mestu verið aflögð í grunnskólanum undir því yfirskini að sé óæskilegur áróður. Starfslið skólanna þorir tæpst að fara með börnin í heimsókn í kirkjurnar af ótta við ofsóknir frá háværu öfgafólki.

Prestur fann köttinn sinn eftir samtal við miðil
Kötturinn Kola var búin að vera týnd í átta daga þegar Jóhanna Magnúsdóttir, eigandi hennar, ákvað í örvæntingu sinni að leita til miðils. Miðillinn sagði köttinn vera á lífi nálægt byggingarsvæði sem kom Jóhönnu á sporið og fannst Kola í kjölfarið.

Boða hertar aðgerðir gegn vopnaburði
Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og hefur skipað starfshóp sem á að skila tillögum að aðgerðum á næstu dögum. Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við og svara ákalli þjóðarinnar. Lögregla hefur aldrei lagt hald á eins mikið magn hnífa og annarra vopna og síðustu ár.

Nýr biskup tekur við þjóðkirkjunni
Guðrún Karls Helgudóttir var vígð til biskups Íslands í Hallgrímskirkju í dag. Fjöldi fólks tók þátt í athöfninni, þar á meðal íslenskir prestar og biskupar, auk biskupa frá Norðurlöndum, Bretlandi, Wales og Palestínu.

Um fjöldamorð og Íslamófóbíu
Afskiptaleysi vestrænna ríkja og fulltrúa þeirra og handbenda ásamt viðvarandi áhugaleysi á kröftugum aðgerðum til að fordæma og hindra óhugguleg fjöldadráp á börnum og konum í Palestínu má rekja til beint til Íslamófóbíunnar.

Banna trúfélög sem tengjast rússnesku kirkjunni
Úkraínska þingið samþykkt að banna starfsemi trúfélag sem hafa tengsl við rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna eða styðja innrás Rússa í Úkraínu. Lögin eru talin sett til höfuðs úkraínskum rétttrúnaðarsöfnuði sem hefur verið tengdur rússnesku kirkjunni.

Myndum við henda leiðbeiningunum?
Ef við færum í raftækjaverslun og keyptum þar flókið raftæki þar sem bæklings-doðrantur fylgdi með til leiðbeininga… myndum við henda bæklingnum? Í kjölfarið fikra okkur svo áfram til þekkingar á öllum möguleikum tækisins? Nei — sennilega ekki. Þvert á móti legðum við okkur fram við lestur á bæklingnum til að skilja og kunna alla þá möguleika sem tækið byði upp á.

Glæsilegt biblíusafn í Vestmannaeyjum
Eitt merkilegasta biblíusafn landsins er varðveitt vel og vandlega í eldtraustri geymslu í Vestmannaeyjum en mun þó líta dagsins ljós fyrir almenning í haust.

Félag í eigu rabbína keypti Framsóknarhúsið
Félag í eigu rabbínsins Avraham „Avi“ Feldham hefur fest kaup á Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu. Hann flutti hingað til lands árið 2018 til þess að koma fyrstu íslensku sýnagógunni á laggirnar.

Aðventistar svara sýslumanni fullum hálsi
Sýslumaður hefur farið þess á leit við fjársýslu ríkisins að greiðslur til Kirkju sjöunda dags aðventista á sóknargjöldum til félagsins verði felldar niður. Lögmaður KSDA telur engar heimildir fyrir því.

Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu
Pílagrímaflug Air Atlanta stendur nú sem hæst en flugfélagið er með sexhundruð manns að störfum í Sádí-Arabíu um þessar mundir við að flytja múslima sem þrá að sjá hina helgu borg Mekka. Verkefnin fyrir Saudia-flugfélagið eru þó mun víðtækari en þau eru kjölfestan í rekstri Atlanta.

Sýslumaður hótar því að taka aðventista af skrá
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur ritað stjórn Kirkju sjöunda dags aðventista bréf þar sem hann krefst þess að ef stjórnin ljúki ekki aðalfundi sem staðið hefur í tvö ár fyrir 10. ágúst næstkomandi þá muni hann grípa til þess að fella félagið af skrá sem trúfélag.

Skráðir í þjóðkirkjuna gætu orðið minnihluti innan nokkurra ára
Skráðum í þjóðkirkjuna hefur fækkað um að meðaltali 1,86 prósentustig á ári síðastliðinn fimm ár. Haldi þessi þróun áfram verða Íslendingar skráðir í þjóðkirkjuna minnihluti landsmanna eftir fjögur ár.

Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið
Séra Guðrún Karls Helgudóttir, verðandi biskup Íslands, stýrði í dag sinni síðustu messu sem sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Guðrún tekur formlega við sem biskup á morgun.

Séra Sigfús Jón Árnason látinn
Sr. Sigfús Jón Árnason, fyrrverandi prestur að Hofi í Vopnafirði og prófastur í Múlaprófastsdæmi lést þann 25.júní síðastliðinn 86 ára að aldri.

Agnes segist niðurlægð og vill leita til dómstóla
Agnes M. Sigurðardóttir biskup segist ekki hafa átt sæla daga í embætti. Hún segist hafa verið beitt órétti, hún hafi fengið að finna fyrir því að vera fyrsta konan í embætti biskups og það hafi verið logið miskunnarlaust uppá hana í fjölmiðlum.

Tuttugu og sex pör „ganga í það óheilaga“ á einu bretti
Tuttugu og sex pör munu ganga í hjónaband á einu bretti í Ráðhúsinu í Reykjavík í dag. Veraldlega lífskoðunarfélagið Siðmennt sér um hjónavígslurnar sem eru ókeypis í tilefni alþjóðlegs dags húmanista sem fagnað er á sumarsólstöðum.

Boðorðin tíu upp á vegg í öllum skólastofum í Louisiana
Boðorðin tíu verða að vera til sýnis í öllum kennslustofum í opinberum skólum í Louisiana ríki í Bandaríkjunum. Það er allt frá leikskólum og til háskóla. Ríkisstjóri Louisiana, Jeff Landry, staðfesti lög þess efnis í dag.

Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists
Fræðimenn við Humboldt-háskólann í Berlín hafa uppgötvað að gamall handritsbútur, sem hefur legið ósnertur á bókasafni í Þýskalandi um áratugaskeið, er úr svokölluðu Bernskuguðspjalli Tómasar. Um er að ræða elstu útgáfu af guðspjallinu sem vitað er um.

Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi
Flestir sex frambjóðenda sem hlutu náð fyrir augum nefndar sem metur forsetaframbjóðendur í Íran eru íslamskir harðlínumenn. Fyrrverandi samningamaður í kjarnorkumálum er talinn líklegur eftirmaður Ebrahims Raisi sem fórst í þyrluslysi.

Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki
Bandaríski hæstaréttardómarinn Samuel Alito heyrist taka undir að Bandaríkin ættu að verða trúræknari og velta vöngum um að pólitískar málamiðlanir séu ómögulegar á leynilegri upptöku sem var gerð opinber. Dómarinn og kona hans hafa sætt gagnrýni fyrir fána sem var flaggað heima hjá þeim eftir árásina á bandaríska þinghúsið.

Fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt
Skráðum einstaklingum í Þjóðkirkjunni fækkaði um 520 á tímabilinu 1. desember 2023 til 1. júní 2024. Mesta fjölgunin í trú- og lífsskoðunarfélögum var hjá Siðmennt, þar sem meðlimum fjölgaði um 121. Mesta hlutfallslega fjölgunin var hjá Samfélagi Ahmadiyya-múslima á Íslandi, eða um 28,6 prósent. Skráður fjöldi þeirra fór úr sjö í níu, og eru þeir þriðja fámennasta trúfélag landsins.

Styrktist í trúnni eftir áfallið
Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Guðrúnar Karls Helgudóttur nýkjörins biskups Íslands í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Séra Eva Björk ráðin biskupsritari
Sr. Eva Björk Valdimardóttir prestur í Fossvogsprestakalli hefur verið ráðin biskupsritari. Hún tekur við starfinu af Pétri Markan sem var ráðinn bæjarstjóri Hveragerðis í marsmánuði.

Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna
Þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur í forsetakappræðum Stöðvar 2 í gærkvöldi segðust berum orðum vera félagar í þjóðkirkjunni lýstu þeir sig allir tilbúna til þess að vernda kirkjuna og eiga við hana gott samstarf.

Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista
Ómar Torfason, meðlimur í Kirkju sjöunda dags aðventista, hefur kært stjórn kirkjunnar, þau Gavin Anthony, Jedel Oriel Ditta og Þóru Sigríði Jónsdóttur fyrir auðgunarbrot.

Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu
Nýkjörin biskup segir þjóðkirkjuna enn eiga erindi í samfélaginu. Búið væri að skilja að ríki og kirkju eins mikið og mögulegt væri enda engri kirkju heilbrigt að vera of nálægt ríkinu.

„Við þurfum ekki að verjast neinu“
Séra Guðrún Karls Helgudóttir, sem var kjörin biskup Íslands í dag, segist vilja leiða öfluga Þjóðkirkju. Hún muni beita sér fyrir því að meðlimum kirkjunnar fækki ekki.

Séra Guðrún kjörin biskup Íslands
Séra Guðrún Karls Helgudóttir var í dag kjörin biskup Íslands. Kosið var milli hennar og Guðmundar Karls Brynjarssonar. Guðrún tekur við af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur gegnt embættinu síðan árið 2012.