
Börn og uppeldi

Boða til skólaverkfalls til stuðnings Palestínu
Nemendur í Hagaskóla hafa boðað til skólaverkfalls þann 6. febrúar næstkomandi til stuðnings Palestínu. Nemendurnir hyggjast yfirgefa tíma til að mæta á Austurvöll.

Kársnesskóla skipt upp í tvo skóla
Kársnesskóla verður skipt upp í tvo sjálfstæða skóla á skólaárinu 2024 til 2025 samkvæmt tillögu menntasviðs Kópavogsbæjar sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Kópavogs. Meginástæðan er fjölgun nemenda.

Börn geti ekki leikið sér nógu mikið úti
Börn og ungmenni í Bretlandi verða fyrir mikilli heilsufarsskerðingu þar sem þeim stendur ekki til boða að leika sér úti í sama mæli og áður í landinu. Hagsmunasamtök segja bresk stjórnvöld ekki horfa til mikilvægi þessa þegar kemur að skipulagsmálum.

Að vera mjúkur kennari í hörðum heimi
Að starfa í skóla með börnum eru forréttindi. Því miður eru margir sem álíta það fremur lítilfjörleg hlutskipti. Það þykir meira töff að vinna í öðrum geirum og höndla peninga og völd heldur en að vinna með fólki. Oft hefur verið talað um að kennarastarfið tilheyri „mjúku störfunum“ þ.e. störfum þar sem kvenlægir eiginleikar eins og færni í samskiptum, umhyggja og umönnun eru veigamestir.

„Leiðinlegasti maður Íslandssögunnar“ unir sér vel
Árni Guðmundsson, forvarnarsérfræðingur, segist ánægður með að hafa verið uppnefndur leiðinlegasti maður Íslandssögunnar í kjölfar þess að hafa kært eigin áfengiskaup til lögreglu.

Fá hvergi inni fyrir barnið og ekki krónu með gati frá borginni
Foreldrar sem hafa orðið fyrir tekjumissi þar sem 21 mánaða gömul dóttir þeirra fær hvorki vistun hjá dagforeldrum né pláss í leikskóla segja stöðuna í leikskóla-og dagforeldramálum svo slæma að stór hópur muni ekki fá krónu frá borgarstjórn sem boðað hafi styrki handa foreldrum.

„Þegar þú færð þessar fréttir þá bara hrynur heimurinn“
„Í gegnum allt þetta ferli var nákvæmlega ekkert sem greip okkur. Það var ekkert hugað neitt sérstaklega að andlegri líðan okkar, hvaða áhrif þetta hafði á okkur. Það var engin eftirfylgni. Það þykir eðlilegt að einstaklingar sem missa fóstur, sérstaklega á fyrri hluta meðgöngu, séu bara sendir heim og látnir gúgla framhaldið, hvað þeir eigi að gera eða ekki gera,“ segir Tinna Berg Rúnarsdóttir en árið 2022 gengu hún og eiginmaður hennar í gegnum erfiðan fósturmissi á 12.viku meðgöngu.

Ekkert barnabann í Háskóla Íslands
Ekki hafa komið upp nein vandamál hvað varðar viðveru barna í tímum við Háskóla Íslands eða brjóstagjöf. Það segir Kristinn Andersen sviðsstjóri kennslumála hjá Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu.

Börnin okkar allra
Börnin á Íslandi eru að mínu mati á ábyrgð okkar allra. Þau eru framtíðin og við þurfum sem foreldrar og samfélag, sveitarfélög og ríkið, að veita þeim sem allra bestan og frjóastan jarðveg til að þroskast svo þau njóti sín til fulls.

Norðlingaskóla breytt í Hogwarts: „Þau blómstra“
Norðlingaskóli er nánast óþekkjanlegur en honum hefur verið breytt í einn frægasta galdraskóla heims, Hogwarts þar sem nemendurnir keppa í þrautum og leysa námsverkefni á óhefðbundinn hátt. Kennararnir segja að það mætti gera meira af því að kenna börnum í gegnum leik enda blómstra börnin.

Frekari athugun verði gerð á meðferð vöggustofubarna
Þriggja manna nefnd óháðra sérfræðinga verður skipuð til að gera heildstæða athugun á starfsemi vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á tímabilinu 1974 til 1979 en skýrsla sem gerð var um starfsemi hennar auk vöggustofunnar á Hlíðarenda sýndi fram á að börn sem þar dvöldu hefðu orðið fyrir varanlegum skaða vegna vistunarinnar.

Hefði frestað barneign hefði hún vitað af barnabanni
Einstæð móðir með barn á brjósti þarf að velja á milli þess að segja sig úr áfanga í fjarnámi í leikskólafræði við Háskólann á Akureyri eða sætta sig við lægri einkunn. Ástæðan er sú að ekki er leyfilegt að vera með barn í kúrsinum. Forsvarsmenn HA segja reynt að koma til móts við foreldra en gæta þurfi hagsmuna annarra nemenda um leið.

Börnin villtu á sér heimildir og seldu kynferðislegar myndir
Skólastjórnendum Hagaskóla hefur borist upplýsingar um að nemendur í skólanum hafi á undanförnum vikum villt á sér heimildir á samfélagsmiðlum, átt í kynferðislegu spjalli við fullorðna einstaklinga og selt þeim kynferðislegar myndir sem þau sjálf hafi sótt á netið.

„Pabbi minn, þetta verður allt í lagi“
Þuríður Arna Óskarsdóttir var þriggja ára þegar læknar sögðu að hún ætti nokkra mánuði eftir ólifaða. Þvert á yfirlýsingar lækna lifði hún til rúmlega tvítugs. Foreldrar hennar komu í Ísland í dag til að segja frá baráttu Þuríðar og hvernig fjölskyldan tókst á við veikindi hennar.

Kærir sjálfan sig til lögreglu
Árni Guðmundsson hefur gefið sig fram við laganna verði og játar brot sitt gagnvart áfengislöggjöfinni undanbragðalaust. Hann segist sekur um að hafa keypt áfengi ólöglega.

„Ég er í hálfgerðu sjokki og átti ekki von á þessu“
Ákveðið hefur verið að loka sundlauginni í Skálatúni til frambúðar vegna ástands hennar. Hið vinsæla ungbarnasund Snorra er því í lausu lofti og segir Snorri ákvörðunina hafa komið sér í opna skjöldu. Hann tími samt ekki að hætta alveg strax.

Burðarvirki sundlaugarinnar ótraust: „Afar þungbær ákvörðun“
Framkvæmdastjóri Skálatúns, sjálfseignarstofnunar í þágu barna, ungmenna og fjölskyldna, sem tók við eignarhaldi fasteigna í landi Skálatúns í Mosfellsbæ, segir ákvörðun um að loka sundlaug svæðisins hafa verið afar þungbæra.

Sundlauginni lokað og ungbarnasund Snorra í lausu lofti
Ákveðið hefur verið að loka sundlauginni í Skálatúni í Mosfellsbæ til frambúðar vegna ástands hennar. Það þýðir að hið vinsæla ungbarnasund Snorra Magnússonar er í lausu lofti.

„Ótrúlega gott fyrir fólk að sjá að lífið heldur áfram“
„Sorgin er ótrúlega erfið tilfinning, en líka ótrúlega falleg. Af því að við syrgjum ekki nema við höfum elskað,“ segir Bjarney Hrafnberg ljósmóðir en hún hefur fylgt óteljandi foreldrum í gegnum andvana fæðingu og stutt þau fyrstu skrefin út í lífið á ný.

Allir drengirnir komnir út á flugvöll með föður sínum
Allir þrír synir Eddu Bjarkar Arnardóttur eru komnir í umsjá föður síns. Þeir eru nú á Keflavíkurflugvelli þaðan sem þeir fara með föður sínum til Noregs í kvöld.

Krefjast þess að Edda Björk verði dæmd í sautján mánaða fangelsi
Ákæruvaldið í Noregi krefst þess að Edda Björk Arnardóttir verði dæmd í sautján mánaða fangelsi fyrir að hafa numið börn sín á brott frá Noregi. Þeir segja málið hafa verið föður barnanna afar þungbært.

„Er ekki dýrt að eiga svona barn?“
„Ég fæ reglulega spurningar eins og „Er þetta ekki erfitt?“ eða „Hvernig farið þið að þessu?“ segir Guðný Erla Guðnadóttir, móðir hins sjö ára gamla Sigurðar Hjálmars. Sigurður Hjálmar er greindur með ódæmigerða einhverfu, þroskahömlun, ADHD, hegðunarerfiðleika, frávik í gróf og fínhreyfifærni og frávik í skynjun.

Áttu von á tvíburum en komu heim með eitt barn
Árið 2021 fengu Rúnar Örn Birgisson og Kolbrún Tómasdóttir að vita að þau ættu von á tvíburum. Ekkert gat búið þau undir áfallið sem þau áttu í vændum. Annar tvíburinn lést í móðurkviði og stuttu seinna kom í ljós að bróðir hans hafði orðið fyrir heilaskaða.

„Það er draumur okkar þriggja að sameinast á ný og vera fjölskylda“
Lögmaður seinfærrar móður tveggja drengja, sem settir voru í fóstur fyrir rúmum tveimur árum, segir óskiljanlegt að Reykjavíkurborg hafi ekki tekið tillit til fötlunar hennar við mat á stuðningsþörfum barnanna. Prófessor í fötlunarfræði segir allt of algengt að börn séu tekin of snemma frá foreldrum.

Dönsk börn: Undskyld!
Danski barna- og menntamálaráðherrann, Mattias Tesfaye (S), bað dönsk börn afsökunar í síðustu viku. Hann bað þau afsökunar á að þau hafi verið notuð sem stafræn tilraunadýr, digitale forsøgskaniner, í mörg ár og að þau hafi verið rænd hæfileikanum að kafa á dýptina, einbeita sér að námsefni án truflunar frá símum, spjaldtölvum og samfélagsöppum. Og ástæðan væri barnaleg tæknitrú og ákefð.

Ákall til dómsmálaráðherra um að halda tveggja daga ráðstefnu um stöðu ungra afbrotamanna hér á landi!
Þegar það liggur ljóst fyrir að 3000 ungmenni á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 16-24 ára eru hvorki í vinnu né í skóla, þá hlítur maður að spyrja sig, hvað skildu þau þá vera mörg á landsvísu!

Samþykktu breytingar á dagforeldrakerfinu
Borgarráð samþykkti tvær megin breytingar á dagforeldrakerfinu á fundi sínum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Hátíð síma og friðar – 8 atriði um skjátíma og jólin
Jólin eru handan við hornið og við sitjum föst í umferð á rauðu ljósi í símanum að svara skilaboðum og klára síðustu jólainnkaupin á netinu. Framundan er jólafríið langþráða í faðmi fjölskyldu, vina og þeirra sem okkur þykir vænt um.

Metfjöldi þarf jólaaðstoð og hjálparbeiðnum rignir inn
Metfjöldi hefur leitað jólaaðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar. Fjöldi sækir um á hverjum degi þrátt fyrir að úthlutun sé lokið og formaður segist ekki ná að sinna öllum eins og er. Mun fleiri barnafjölskyldur þurfi aðstoð.

Hvernig vilt þú hafa þjónustu við 0 - 6 ára börn í Reykjavík?
Ákall er um lausnir frá sveitarfélögum í dagvistunarmálum. Það er nauðsynlegt svo foreldrar geti lagt samfélaginu til vinnuframlag sitt og séð sér og sínum fyrir framfærslu um leið og þau ala upp yngstu kynslóðina. Sömuleiðis eru sjónarmið um að ríki og sveitarfélög auðveldi foreldrum að vera meira með börnum sínum á fyrstu æviárum þeirra.