Flugeldar

Allt að tíu stiga frost í dag
Í kvöld er útlit fyrir mjög hægan vind víðast hvar á landinu. Það hefur í för með sér að flugeldaryk safnast auðveldlega upp og loftgæði dvína hratt, að því er segir í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands um veðrið á gamlárskvöld.

Skotglaðir trufluðu í öllum hverfum
Mjög bar á tilkynningum um hávaða eða ónæði vegna flugeldasprenginga í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og í nótt, að því er segir í dagbók lögreglu. Hið sama var uppi á teningnum í fyrrinótt.

Hitahvörf gætu myndað pottlok yfir Reykjavík á gamlárskvöld
Búist er við talsverðri mengun á höfuðborgarsvæðinu ef veðurspár ganga eftir. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, ráðleggur þeim sem eru viðkvæmir fyrir að halda sig sem mest innandyra þar sem kjöraðstæður fyrir mengun gætu skapast.

Mengunin sérstaklega skaðleg fólki sem glímir við eftirköst COVID-19
Á gamlárskvöld er útlit fyrir talsverða svifryksmengun af völdum flugelda því hægviðri er spáð annað kvöld um land allt. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að mengunin sé skaðlegust þeim sem veikir eru fyrir líkt og fólk sem glímir við eftirköst COVID-19 sem er sjúkdómur sem herjar á öndunarfærin. Mengunin verður þó slík að flestir ættu að finna fyrir óþægindum.

„Við slíkar aðstæður á flugeldamengun sér enga undankomuleið“
Það er viðbúið að loftgæði verði léleg þar sem mikið af flugeldum verður skotið upp annað kvöld þar sem vindur verður afar hægur víðast hvar auk þess sem loftið yfir landinu verður nokkuð stöðugt.

Hávaði og ónæði vegna flugelda um allt höfuðborgarsvæðið
Mikið var um tilkynningar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt vegna hávaða eða ónæði vegna flugelda sprenginga. Bárust tilkynningar úr öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins að því er segir í dagbók lögreglu.

Segjast fegin því að árið sé senn á enda: „Það er bara fínt að sprengja þetta burt“
Flugeldasala Landsbjargar fer vel af stað. Þeir sem fréttastofa ræddi við segjast dauðfegnir að árið sé að líða undir lok og hlakka til að sprengja það burt.

Beina því til almennings að sýna tillitssemi við dýr og eigendur þeirra í kringum áramót
Matvælastofnun (MAST) beinir því til almennings að sýna þá tillitssemi við dýr og eigendur þeirra að skjóta aðeins upp flugeldum, hvellvettusprengjum og nota ýlur á gamlsárskvöld eða á þrettándanum.

Sér ekki fyrir sér að fólk vilji kveðja þetta ár með mínútu þögn
Samdráttur hefur verið í sölu á flugeldum hjá björgunarsveitum en sala rótarskota hefur „aðeins mildað höggið“ að sögn formanns Landsbjargar. Undanfarin ár hefur umræða um neikvæð umhverfisáhrif flugelda farið vaxandi en flugeldasalan hefur jafnan verið mikilvægasti liðurinn í fjáröflun björgunarsveitanna.

Kveikt í ruslatunnu sem brann til kaldra kola
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um sex leytið í kvöld vegna elds í ruslatunnu við Einivelli í Hafnarfirði. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndbandi sem fréttastofu barst af atvikinu logaði töluverður eldur í tunnunni sem var farin að fjúka til. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var kveikt í tunnunni með vítissprengju eða skoteld.

Flugeldum fyrir þrjár milljónir stolið
Brotist var inn í flugeldagám fyrir utan Kiwanishúsið í Þorlákshöfn um hátíðirnar og flugeldum að andvirði þriggja milljóna króna var stolið. Frá þessu greinir björgunarsveitin Mannbjörg á Facebook.

Seyðfirðingar fleyta kertum í stað þess að skjóta upp flugeldum
Seyðfirðingar hyggjast koma saman við Lónið á áramótunum og fleyta þar kertum í stað þess að skjóta upp flugeldum. Margir eru hvekktir eftir drunurnar sem heyrðust í fjallinu eftir aurskriðurnar sem féllu á bæinn í síðustu viku og óttast að þeir muni endurupplifa áfallið.

Gekk fram á heimatilbúna sprengju
Sprengjan var samsett úr flugeldum.

Annar ósprunginn flugeldur reyndist vera á staðnum
Meðlimir sérsveitar ríkislögreglustjóra voru á meðal þeirra sem kallaðir voru út í Heiðmörk í gærkvöldi eftir að maður á sextugsaldri slasaðist alvarlega þegar þriggja tommu tívolíbomba sprakk.

Sprenging í Heiðmörk: „Vinstri handleggurinn hafði sprungið og horfið fyrir ofan olnboga“
Maðurinn sem slasaðist alvarlega eftir að þriggja tommu tívolíbomba sprakk í Heiðmörk í gær virðist hafa borið eld að henni.

Hinn slasaði hafði átt við ósprungna tívolíbombu
Mjög alvarlegt flugeldaslys varð í Heiðmörk í gærkvöldi þar sem maður fann og átti við ósprungna tívolíbombu sem sprakk svo í höndunum á honum.

Björgunarsveitir verða að henda partíbyssunum
Slysavarnarfélaginu Landsbjörg hefur verið gert að farga svokölluðum „partíbyssum“

Snar í snúningum þegar hann fékk flugeld inn um bréfalúguna
Nokkrir piltar köstuðu flugeldi inn um bréfalúgu á íbúðarhúsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um síðustu helgi.

Heimsins stærsti flugeldur lýsti upp nóttina
Heimsins stærsti flugeldur var skotið á loft yfir vinsælu skíðasvæði í Colorado í Bandaríkjunum í gær.

Leit að flugeldasérfræðingi í fullt starf stendur yfir
Slysavarnarfélagið Landsbjörg leitar að reynslumiklum einstaklingi til að sjá um innkaup, innflutning og sölu. Um fullt starf er að ræða samkvæmt því sem segir í auglýsingu frá félaginu.

Ekki tókst að kveikja Þrettándabrennu á Ægisíðu
Ekki tókst að kveikja upp í bálkesti niðri á Ægisíðu sem kveikja átti í í kvöld í tilefni af Þrettándanum. Það sé vegna þess að illa hafi gengið að bera eldivið á bálköstinn í dag vegna veðurs.

Þrettándabrennum víða um landið aflýst vegna veðurs
Fresta hefur þurft einhverjum Þrettándabrennum sem halda átti í dag en mikil lægð gengur nú yfir landið. Þrettándabrennum hefur verið frestað á Siglufirði, Djúpavogi og Eskifirði.

Köstuðu flugeldum inn í anddyri fjölbýlishúss
Nokkrar tilkynningar bárust lögreglunni á Suðurnesjum um áramótin vegna óæskilegrar meðferðar á flugeldum.

Fluttur á bráðadeild eftir flugeldaslys
16 ára drengur var fluttur á bráðamóttöku í gærkvöldi eftir að tilkynning barst lögreglu klukkan 22:40 um flugeldaslys í Laugarneshverfi í Reykjavík.

Telur fráleitt að banna flugelda hér á landi
Jón Gunnarsson þingmaður segir að herða þurfi reglugerð í kringum innflutning og sölu á flugeldum.

Drónamyndband yfir Reykjavík á gamlárskvöld
Þegar klukkan slær tólf á gamlárskvöld fara Íslendingar jafnan út í skjóta upp flugeldum og vekur það sérstaka athygli hjá ferðamönnum sem jafnan hafa aldrei áður séð annað eins.

Drónar komu í stað flugelda í Sjanghæ
Ríflega milljón manns söfnuðust saman á Times-torgi í New York á miðnætti og fylgdust með kristalskúlunni frægu falla. K

Fleiri á bráðamóttöku vegna líkamsárása en flugeldaslysa
Fleiri leituðu á bráðamóttöku vegna líkamsárása en vegna flugeldaslysa á nýársnótt. Bráðalæknir segir þurfa meiriháttar kerfisbreytingu í rekstri Landspítalans til að bæta úr því ástandi sem ríki á bráðamóttökunni.

Tuttugu útköll vegna elds og fimmtíu sjúkraflutningar í nótt
Lögregla og slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu höfðu í nógu að snúast á nýársnótt.

Tvísýnt um áramótabrennur en viðrar betur til sprenginga
Hvassviðri á Vesturlandi og á suð-austurhluta landsins gæti gert brennuhöldurum erfitt um vik.