

Breskir og írakskir hermenn handtóku í dag fjórtán háttsetta lögreglumenn í borginni Basra. Þeir eru taldir eiga þátt í mikilli fjölgun hryðjuverka í borginni undanfarnar vikur.
Úrslit þingkosninganna í Írak, sem fóru fram þann 15. desember síðastliðinn, voru tilkynnt í dag. Bandalag sjía-múslíma vann flest sæti, 128 sæti af 275.
Dómstjórinn í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein hyggst láta af embætti sínu og mun greina frá ákvörðun sinni þess efnis næst þegar réttað verður í málinu, 24. janúar.
Uppreisnarmenn í Írak skutu niður bandaríska herþyrlu nærri Mosul í norðurhluta landsins í dag. Tveir voru í áhöfn hennar og eru báðir taldir af. Þetta er önnur bandaríska herþyrlan sem er skotin niður á viku, tólf fórust með þyrlu sem var skotin niður síðasta laugardag.
Danskur herforingi og fjórir danskir hermenn voru í dag fundnir sekir um að hafa brotið mannréttindi við yfirheyrslur á föngum í Írak í fyrra. Refsingu yfir þeim var hins vegar frestað, þar sem þeir höfðu ekki fengið nægilega skýr fyrirmæli um hvað væri leyfilegt við yfirheyrslur.
Á annað hundrað manns hafa farist og meira en 200 særst í ofbeldisverkum í Írak það sem af er degi. 225 hafa látist af völdum árása frá áramótum og nær 300 slasast. Vikan sem nú er að líða er því orðin ein sú blóðugasta frá því innrásin í Írak hófst í mars 2003.
Í það minnsta 31 fórst og 30 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Ramadi í Írak í morgun. Karlmaður sprengdi sig og viðstadda þá í loft upp fyrir framan ráðningarstöð hers og lögreglu. Þetta er önnur mannskæða árásin í Írak í morgun.
49 hið minnsta létu lífið í sprengjuárás í borginni Kerbala í sunnanverðu Írak í morgun og tala látinna gæti enn átt eftir að hækka. 58 eru særðir. Maður með sprengiefni bundin um sig sprengdi sig í loft upp í mannþröng nærri einu af helstu helgiskrínum sjíamúslima.
Ellefu létust og átján særðust í sprengingu í Kerbala í Írak fyrir fáeinum mínútum. Þetta er önnur sprengjuárásin í borginni á jafnmörgum dögum en í gær særðust þrír í bílsprengjuárás en hún var sú fyrsta sinnar tegundar í borginni síðan í desember 2004.
Al-Kaída hefur lýst ábyrgð á þaulskipulagðri árás á varðstöð lögreglu rétt fyrir utan Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Í það minnsta fimm íraskir lögreglumenn létu lífið í árásinni og fjórir særðust. Vopnaðir menn stukku út úr lítilli rútu þegar þeir nálguðust varðstöðina og skutu á lögreglumennina sem vöktuðu hana.
Að minnsta kosti fimm manns létust í fimm bílsprengjum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Hryðjuverkum hefur fjölgað í landinu og segja Al Qaida-liðar að þannig verði það þar til samtökin hafi náð fullum völdum í landinu.
Kjörsókn í þingkosningunum í Írak í síðustu viku var sjötíu prósent. Um hádegið í dag tilkynnti kjörstjórn í Írak að nærri ellefu milljónir manna hefðu kosið í þingkosningunum.
Al Jazeera sjónvarpsstöðin sýndi í dag myndband sem stöðin segir að sýni fjóra gísla sem mannræningjar í Írak tóku nýlega. Talið er að um sé að ræða kristna friðarsinna sem hafa verið í Írak undanfarið. Einn mannanna er Norman Kember, aldraður Breti.
Það verður ekki þörf á öllum þeim hersveitum sem eru í Írak miklu lengur að mati Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
George W. Bush Bandaríkjaforseti íhugaði að fyrirskipa sprengjuárás á höfuðstöðvar Al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar í Katar í fyrra en Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, talaði hann ofan af því á fundi þeirra í Washington í fyrra. Þessu er haldið fram í breska blaðinu Daily Mirror í dag.
Mowaffaq al-Rubaie, öryggisráðgjafi Írakstjórnar, hefur beðið Írani um að nýta það góða samband sem þeir hafa við Sýrlendinga til að koma í veg fyrir að erlendir uppreisnarmenn streymi yfir sýrlensku landamærin til Írak.
Hátt settur stjórnmálamaður úr röðum Súnníta slasaðist alvarlega í dag, þegar vopnaðir menn réðust að bifreið hans og hófu skothríð. Maðurinn varð fyrir fimm skotum í handleggi og brjóstkassann og er enn í lífshættu.
Bandarísk þingnefnd hefur sakað breska þingmanninn George Galloway um að hafa logið að sér þegar hann staðhæfði eiðsvarinn fyrr á þessu ári að hann hefði engar greiðslur fengið í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak.
Að minnsta kosti tuttugu manns létu lífið og fjölmargir særðust í Bagdad í dag þegar þrjár bílsprengjur voru sprengdar við hótel sem erlendir fréttamenn dveljast einkum á.
Ánægja ríkir með kosningarnar í Írak í gær. Það þykir næsta víst að stjórnarskráin sem kosið var um hafi verið samþykkt, en þar með eru þó ekki allir erfiðleikar yfirstignir.
Milljónir Íraka greiddu atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá landsins í dag í kosningum sem fóru nánast fram með friði og spekt. Árásir og byssubardagar settu að vísu mark sitt á daginn, en yfirvöld eru mjög ánægð með framganginn.
Bandarískar hersveitir hafa handsamað hundrað og tíu uppreisnarmenn í borginni Haklanía í Írak undanfarna tvo daga. Vel á þriðja þúsund hermanna hafa gengið í hvert hús í borginni sem er eitt helsta vígi uppreisnarmanna við landamæri Sýrlands.
Uppreisnarmenn í Írak eru nú sagðir eiga í samningaviðræðum við Bandaríkjamenn um að hætta árásum í skiptum fyrir líf Saddams Husseins. Þessu heldur Jalal Talabani, forseti Íraks, fram.
Umdeildum kosningalögum í Írak verður breytt vegna gagnrýni Sameinuðu þjóðanna og mótmæla stjórnmálaleiðtoga. Kosið verður um nýja stjórnarskrá Íraks í þjóðaratkvæðagreiðslu þann fimmtánda október næstkomandi og voru taldar þónokkrar líkur á að stjórnarskráin yrði felld.
Minnst fimmtíu og sjö uppreisnarmenn hafa fallið í árásum bandaríska hersins í norðvesturhluta Íraks undanfarna þrjá daga. Áhlaup hersins á vígi uppreisnarmanna hófst í borginni Sadah á laugardaginn en hefur síðan færst yfir til borganna Karabíla og Rúmana.
Olíumálaráðherra Íraks slapp naumlega undan morðtilræði í morgun. Nokkrir menn hófu skothríð á bifreið ráðherrans þegar hann var á leið til vinnu. Þrír lífverðir hans særðust alvarlega.
Að minnsta kosti tíu menn féllu og um tugur særðist þegar bandarískar og írakskar hersveitir gerðu árás á bæi í vesturhluta Íraks, skammt frá landamærum Sýrlands, í morgun.
Að minnsta kosti 50 manns eru sagðar látnir og 100 særðir eftir að röð bílsprengna sprakk norður af Bagdad fyrir stundu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um ódæðið að svo stöddu.
George Bush Bandaríkjaforseti varaði í dag við auknu ofbeldi í Írak á næstunni, eða þar til kosið yrði um nýja stjórnarskrá landsins. Sex fórust og þrjátíu særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við skráningarstöð írakska hersins við landamæri Sýrlands í dag.
<font size="2"> Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð við nýliðaskráningu í bænum Tal Afar í Írak rétt í þessu. Árásarmaðurinn lést sjálfur í árásinni og að minnsta kosti sautján manns særðust í árásinni. Engar fréttir hafa enn borist af því að aðrir en árásarmaðurinn hafi farist í árásinni. </font>