Ástralía

Fjölmiðlamógúll mildar loftslagsafneitun
Fjölmiðlar Ruperts Murdoch í heimalandinu Ástralíu er nú sagðir leggja drög að ritstjórnargreinum sem tala fyrir kolefnishlutleysi. Þeir hafa fram að þessu verið þekktir fyrir afneitun og að þyrla upp moðreyk um loftslagsmál.

Björguðu týndum þriggja ára dreng eftir fjóra daga í skóginum
Þriggja ára drengur sem týndist í skógi í Ástralíu fyrir fjórum dögum fannst heill á húfi í morgun eftir umfangsmikla leit.

Innflutningur á ivermectin tífaldast í Ástralíu og fleiri neita að svara um notkun þess
Sífellt fleiri viðskiptavinir neita að upplýsa lyfjafræðinga um það við hverju þeir fengu ávísað lyfjum sem innihalda ivermectin. Þetta segja samtök ástralskra lyfjafræðinga, sem hafa ráðlagt félögum sínum að fylgjast grannt með sölu ivermectin.

Skutu fjölda hunda á leið í athvarf
Eftirlitsstofnun sveitarfélaga í Ástralíu rannsakar nú lítið sveitarfélag þar í landi, eftir að ákvörðun var tekin um að skjóta fjölda hunda sem biðu þess að komast í dýraathvarf. Ástæðan virðist vera hræðsla embættismanna sveitarfélagsins við útbreiðslu Covid-19.

Yfirvöld í Nýja Suður-Wales framlengja sóttvarnaaðgerðir
Strangar sóttvarnaaðgerðir í Sydney í Ástralíu hafa verið framlengdar út septembermánuð eftir mikla fjölgun smitaðra að undanförnu.

42 stig Mills tryggðu Áströlum fyrstu verðlaunin á ÓL
Ástralir hlutu verðlaun í körfubolta karla á Ólympíuleikum í fyrsta sinn eftir 107-93 sigur á Slóveníu í bronsleiknum í dag. Frakkar hlutu brons kvennamegin eftir sigur á Serbíu.

Rannsaka slagsmál í flugvélinni á leiðinni heim frá Ólympíuleikunum
Knattspyrnusamband Ástralíu og Rúgbýsamband Ástralíu eru komin af stað með rannsókn eftir að fréttir bárust af slagsmálum á milli liðsmanna tveggja landsliða þjóðarinnar á leið heim frá Ólympíuleikunum í Tókýó.

Senda hermenn til að framfylgja útgöngubanni í Sydney
Áströlsk stjórnvöld hafa ákveðið að senda hundruð hermanna til Sydneyborgar til að aðstoða lögreglu við að framfylgja útgöngubanni í borginni vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Úrræðagóður Ólympíumeistari notaði smokk til laga kajakann sinn
Jessica Fox varð í nótt Ólympíumeistari í fyrsta sinn á ferlinum þegar hún tryggði sér sigur í svigkeppni á kanó. Hún hefur þar með unnið öll möguleg verðlaun á Ólympíuleikum, gull, silfur og brons.

Útlit fyrir áframhaldandi aðgerðir í Sydney næstu vikurnar
Þrátt fyrir fjögurra vikna harðar samkomutakmarkanir í Nýja Suður Wales í Ástralíu greindist metfjöldi smitaðra í ríkinu í morgun, eða rúmlega 170 tilfelli og um 60 voru utan sóttkvíar.

Þúsundir langþreyttra Ástrala mótmæltu skertu frelsi
Þúsundir flykktust út á götur Sydney og annarra borga í Ástralíu í dag til að mótmæla takmörkunum á frelsi sínu vegna kórónuveirufaraldursins. Nokkrir tugir fólks voru handteknir eftir að hafa brotist í gegnum lokanir lögreglu og hent plastflöskum og plöntum í átt að lögregluþjónum.

Halda 2032 Ólympíuleikana án mótframboðs
Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, staðfesti í dag, að Ólympíuleikarnir 2032 sem og Ólympíuleikar fatlaðra myndu fara fram í Brisbane í Ástralíu.

Útgöngubann sett á aftur í Ástralíu
Delta afbrigði kórónuveirunnar virðist nú á mikilli siglingu í Ástralíu og nú er svo komið að þrjú fjölmennustu ríki landsins hafa hert sóttvarnalögin á ný.

Auglýsing fyrir bólusetningu vekur hörð viðbrögð
Áströlsk auglýsing sem ætlað var að hvetja fólk til þess að skrá sig í bólusetningu hefur vakið hörð viðbrögð í áströlsku samfélagi. Mörgum hefur þótt auglýsingin vera sett fram sem hræðsluáróður og þá hefur tímasetning hennar verið gagnrýnd, með tilliti til framgangs bólusetningarátaksins í landinu, sem gengur hægt.

Tilfellum fjölgar enn þrátt fyrir útgöngubann
Þrátt fyrir að útgöngubann hafi verið í gildi í Sydney í Ástralíu í tvær vikur vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar halda tilfellinn áfram að hrannast upp og í gær voru fleiri greindir smitaðir á einum sólarhring en í fjórtán mánuði þar á undan.

Framlengja útgöngubann í Sydney
Yfirvöld í Nýju-Suður Wales í Ástralíu hafa ákveðið að framlengja útgöngubann í stórborginni Sydney um viku til viðbótar, eða til 16. júlí. Útgöngubanninu var komið á fyrir rúmum tveimur vikum í tilraun til að hefta útbreiðslu delta-afbrigðis kórónuveirunnar.

Takmarka verulega komur til landsins vegna stöðu faraldursins
Yfirvöld í Ástralíu ætla að setja takmarkanir á fjölda þess fólks sem fær að koma inn í landið eftir aukinn fjölda kórónuveirutilfella.

Óvissa eftir að forsætisráðherrann segir 40 ára og yngri geta fengið AstraZeneca
Ástralir eru nú sagðir óþreyjufullir gagnvart stjórnvöldum sem hafa komið á útgöngubanni í fjórum stórborgum í kjölfar fjölgunar Covid-smita síðustu daga. Bólusetningar ganga hægt og misvísandi skilaboð berast frá yfirvöldum.

Boða til neyðarfundar til að ræða útbreiðslu Delta-afbrigðisins
Yfirvöld í Ástralíu hittast á neyðarfundi í dag til að ræða aukna útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu en undanfarið hefur Delta-afbrigðið svokallaða verið að sækja verulega í sig veðrið.

Enn gripið til sóttvarnaaðgerða í Sydney
Nokkrum hverfum stórborgarinnar Sidney í Ástralíu hefur nú verið lokað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Neita yfirvöldum um heimild til að nota brómódíólón gegn músaplágunni
Ástralska stofnunin sem hefur eftirlit með notkun dýralyfja og meindýraeiturs hefur hafnað umsókn yfirvalda í Nýju Suður Wales um að fá að nota brómadíólón til að vernda uppskeru frá músaplágu í ríkinu.

Vilja setja Kóralrifið mikla á hættulista
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og áströlsk stjórnvöld deila enn um stöðu Kóralrifsins mikla sem er að finna norðaustur af meginlandi Ástralíu.

800 handteknir og hald lagt á mörg tonn af eiturlyfjum
Fyrirtækið ANOM, sem rekið var af bandarísku alríkislögreglunni og lögregluyfirvöldum í Ástralíu, þjónustaði um það bil 12 þúsund síma sem lögregla kom í dreifingu meðal glæpamanna til að hlera samskipti þeirra.

Lögregluyfirvöld léku á glæpahópa með njósnaforriti
Lögregluyfirvöld víða um heim hafa handtekið hundruð glæpamanna þökk sé smáforriti sem starfrækt var af bandarísku alríkislögreglunni. Um var að ræða spjallforrit sem komið var í dreifingu meðal glæpahópa og gat lögregla þannig njósnað um öll samtöl sem fóru fram í forritinu.

Delta-afbrigðið greinist í Ástralíu
Yfirvöld í Viktoríu í Ástralíu tilkynntu í dag að Delta-afbrigði kórónuveirunnar hafi greinst í fyrsta skipti í landinu í Melbourne. Kórónuveirutilfellum hefur farið fjölgandi í Ástralíu undanfarna viku og hafa yfirvöld áhyggjur af nýjustu vendingum.

Grafa upp líkamsleifar í von um að leysa 70 ára ráðgátu
Áströlsk lögregluyfirvöld vinna nú að því að grafa upp líkamsleifar manns sem fannst á strönd fyrir meira en 70 árum. Markmiðið er að bera kennsl á manninn en málið er eitt þekktustu óleystu sakamála landsins.

Áætla að fuglar heims séu um 50 milljarðar
Ástralskir vísindamenn áætla að fuglar heims séu nú um 50 milljarðar talsins, eða um sex sinnum fleiri en menn. Algengustu tegundirnar séu gráspörvar og evrópskir starrar.

Drengur í ruslagámi látinn eftir tæmingu
Þrettán ára drengur kramdist til bana í öskubíl í Ástralíu eftir að hafa sofnað ásamt tveimur félögum sínum í ruslagámi.

Sakfelld fyrir að drepa fjögur börn sín en óskar eftir náðun
Hin 53 ára gamla Kathleen Folbigg hefur óskað eftir því hjá ríkisstjóra Nýja-Suður Wales-fylki í Ástralía að hún verði náðuð eftir árangurslausan málarekstur fyrir áfrýjunardómstólum. Folbigg afplánar nú þrjátíu ára fangelsisdóm eftir að hafa verið sakfelld fyrir að drepa fjögur börn sín á tíunda áratug síðustu aldar.

Eiga yfir höfði sér fimm ára fangelsi fyrir að snúa heim frá Indlandi
Yfirvöld í Ástralíu hafa boðað algert bann við ferðum frá Indlandi til Ástralíu frá og með deginum í dag. Allir Ástralar sem hyggjast ferðast heim frá Indlandi geta átt yfir höfði sér háar fjársektir og allt að fimm ár í fangelsi. Gagnrýnendur segja ferðabannið rasískt og mannréttindabrot.