

Íslensk kona á Nýja-Sjálandi segir að lífið þar í landi sé orðið eins og það var fyrir Covid. Myndir af stærðarinnar tónleikum hafa vakið heimsathygli og efnahagslífið nær viðspyrnu þrátt fyrir lokun landamæranna.
Þrír Nýsjálendingar hafa greinst smitaðir af Covid-19 og er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í marga mánuði. Ein kona greindist smituð í síðustu viku og tveir í dag. Öll þrjú luku nýverið sóttkví í sama farsóttahúsinu í borginni Auckland.
Maðurinn sem myrti breska bakpokaferðalanginn Grace Millane á Nýja-Sjálandi hefur verið sakfelldur fyrir tvær árásir til viðbótar gegn konum.
Að minnsta kosti 250 þúsund börn, ungmenni og fullorðnir sem dvöldu á stofnunum á vegum nýsjálenska ríkisins á árunum 1950 til 1999 sættu einhvers konar misnotkun, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar.
Þrátt fyrir að nefnd sem rannsakað hefur hina mannskæðu hryðjuverkaárás í Christchurch í Nýja-Sjálandi, hafi fundið galla á reglugerðum og áherslu, komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hið opinbera hefði ekki getað komið í veg fyrir árásina ef þessir gallar og önnur mistök hefðu ekki verið til staðar.
Nýsjálensk heilbrigðis- og öryggismálayfirvöld hafa ákært þrettán aðila vegna manntjónsins sem varð vegna eldgossins á ferðamannaeyjunni Hvítu eyju á síðasta ári.
Íbúar aðildarríkja RCEP nemur hátt í þriðjungi heimsbyggðarinnar og hagkerfin bera samanlagt uppi um 29% af þjóðarframleiðslu í heiminum og er hin nýja viðskiptablokk þar með stærri en bæði fríverslunarsamningur Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó og Evrópusambandið.
Tvær þjóðaratkvæðagreiðslur voru haldnar á Nýja Sjálandi á dögunum samhliða þingkosningum þar í landi og voru bráðabirgðaúrslit úr þeim kunngjörð í morgun.
Nú þegar stór hluti atkvæða hefur verið talinn hlýtur flokkur Ardern um 49% atkvæða. Það tryggir flokknum 64 þingsæti sem ætti að duga til að mynda hreinan meirihluta í nýsjálenska þinginu.
Þingkosningar fara fram á Nýja-Sjálandi á morgun þar sem reiknað er með harðri baráttu milli Verkamannaflokks Jacindu Ardern forsætisráðherra og Íhaldsmannanna í Þjóðarflokknum.
Nokkur lönd sem náðu svipuðum árangri og Ísland í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins virðast hafa náð að halda honum í skefjum á meðan þriðja bylgjan virðist ætla að verða stærri en sú fyrsta hér á landi.
Íbúar Auckland, stærstu borgar Nýja-Sjálands, þurfa ekki lengur að huga að fjarlægðarreglum á börum og veitingastöðum þegar slakað verður á sóttvarnaraðgerðum þar í vikunni.
Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að innan tíðar verði Nýsjálendingum heimilt að heimsækja Ástralíu en löndin tvö hafa svo gott sem lokað landamærum sínum í kórónuveirufaraldrinum.
Stjórnmálaflokkur nýsjálenskra frumbyggja (e. Maori Party) vill að nafni landsins verði breytt þannig að það endurspegli betur arfleifð landsins. Hefur flokkurinn lagt til að nafnið Aotearoa.
Heilbrigðisyfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa staðfest að maður hafi látist af völdum Covid-19.
Brenton Tarrant, sem játaði að hafa myrt 51 í tveimur skotárásum í Christchurch á Nýja-Sjálandi í mars í fyrra, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun, án reynslulausnar
Dómsuppkvaðning í máli hins ástralska Brenton Tarrant hófst í málinu í morgun. Þar kom fram að Tarrant ætlaði sér að brenna moskurnar og valda eins miklu manntjóni og mögulegt væri.
Maðurinn sem skaut 51 múslima til bana í fjöldamorðum í tveimur moskum í Nýja Sjálandi í fyrra mun mæta eftirlifendum árásar sinnar í dómsal á næstu dögum.
Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja Sjálands hefur svarað Donald Trump Bandaríkjaforseta fullum hálsi en hann tók Nýja Sjáland sem dæmi um land þar sem nýja kórónuveiran væri að fara úr böndunum á nýjan leik.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur tilkynnt að þingkosningum í ríkinu verði frestað um tæpan mánuð vegna kórónuveirufaraldursins.
Forsætisráðherra Nýja-Sjálands hefur framlengt reglur um takmarkanir vegna faraldurs kórónuveirunnar um tólf daga eftir að smittilfellum fjölgaði í 29.
Heilbrigðisyfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa skráð fjórtán ný tilfelli kórónuveirunnar í landinu, degi eftir að hertar aðgerðir tóku gildi í í Auckland, stærstu borg landsins.
Nýtt kórónuveirusmit hefur greinst á Nýja-Sjálandi, en um er að ræða fyrsta smitið í landinu í 102 daga.
Nýja-Sjálandi hefur tekist vel til í baráttunni gegn kórónuveirufaraldrinum en í dag eru hundrað dagar liðnir frá því að síðast greindist smit þar í landi.
Jacinda Arden, forsætisráðherra Nýja Sjálands, kynnti í dag viðbragðsáætlun stjórnvalda til að koma í veg fyrir að kórónuveiran nái útbreiðslu í landinu, en enginn hefur smitast af veirunni innanlands á Nýja Sjálandi í tvo og hálfan mánuð.
Heilbrigðisráðherra Nýja-Sjálands hefur sagt af sér eftir að hafa sætt gagnrýni vegna framgöngu sinnar og ríkisstjórnar hans í kórónuveirufaraldrinum.
Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu.
Stór jarðskjálfti sem fyrstu tölur gefa til kynna að hafi verið 7,4 stig að stærð skall á undan ströndum Nýja-Sjálands fyrir skömmu
Tvö tilfelli nýju kórónuveirunnar greindust í dag á Nýja-Sjálandi í fyrsta sinn í 24 daga.
Svo virðist sem heilbrigðisyfirvöldum á Nýja-Sjálandi hafi svo gott sem tekist að vinna bug á kórónuveirufaraldrinum í landinu, en engin virk smit eru í landinu, svo vitað sé.