Skagafjörður

Hólmfríði sagt upp hjá IceProtein og Protis
Hólmfríði Sveinsdóttur hefur verið sagt upp sem framkvæmdastjóra IceProtein og Protis á Sauðárkróki.

Eignaðist tvö börn á einu ári
Sveitastúlkan Lovísa Heiðrún Hlynsdóttir eignaðist tvo syni í fyrra, með ellefu mánaða millibili. Hún segir börnin það besta í lífinu og að ekki þurfi að skammast sín fyrir að stutt sé á milli þeirra.

Riðuveiki greindist á búi í Skagafirði
Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði.

Vígahnöttur yfir Íslandi: „Líkt og eldflaugaárás frá Sauðárkróki“
Loftsteinn sást yfir Íslandi í gærkvöldi. Steinninn skildi eftir sig bjarta slóð á á leið sinni suður eftir himninum og sprakk. Hann kann að vera úr Kvaðrantíta loftsteinadrífunni sem sást um allan heim í gær.

Framkvæmdastjóri FISK Seafood hættir
Friðbjörn Ásbjörnsson aðstoðarframkvæmdastjóri Fisk Seafood hefur tekið við sem framkvæmdastjóri félagsins og er honum óskað velfarnaðar í nýju starfi.

Byggðastofnun geti ekki rækt hlutverk sitt vegna upplýsingaskorts
Byggðastofnun getur ekki sinnt sínum lagalegu skyldum vegna skorts á upplýsingum í fjárlögum.

Innkalla lambakjöt vegna óviðurkenndrar slátrunar
Kjötvinnslan Birkihlíð í Skagafirði hefur ráðist í innköllun á lambakjöti sem fyrirtækið seldi á bændamarkaði á Hofsósi í lok síðastliðins mánaðar.

Tvíburar frá Hofsósi fá milljón krónur á mann í styrk
Ester María Eiríksdóttir og Jón Örn Eiríksson, sautján ára tvíburar frá Hofsósi, eru á meðal ungs fólks sem hlaut í dag styrk úr Hvatningarsjóði Kviku.

Stór flutningabíll valt í Skagafirði
Ekki er vitað um tildrög, en snjóþekja og hálkublettir voru á veginum þegar slysið varð.

Alelda á skömmum tíma
Grunaður brennuvargur látinn laus að lokinni yfirheyrslu hjá lögreglunni.

Grunaður um að hafa kveikt í eyðibýli
Lögreglan á Norðurlandi Vestra hefur handtekið karlmann á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa kveikt í eyðibýlinu Illugastaðir við Þverárfjall.

Riða greinist aftur í Skagafirði
Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2016 á bæjunum Brautarholti og Stóru-Gröf ytri.

Vankaður smyrill gisti á lúxushóteli í viku
Staðarhaldarar Deplar Farm í Skagafirði hlúðu að slösuðum smyrli í tæpa viku eftir að hann flaug á glugga í hótelinu. Matardagbók fuglsins breyttist lítið í bataferlinu.

Skutlað á þyrlu yfir í Málmey þar sem hann verður fastur næstu fjóra daga án vatns og matar
Brimbrettakappinn Heiðar Logi Elíasson ætlar að bjarga sér einn næstu fjóra daga í Málmey í Skagafirði og það án vatns og matar.

Fallegt sveitabrúðkaup Margrétar og Teits í Skagafirði
Byrjaði sem rómantík í Stjórnarráðinu.

Fólk áttar sig á að það geti minnkað vistsporið sitt
Matar- og blómamarkaði verður slegið upp í Svaðastaðahöll á Sauðárkróki um helgina, með afurðir úr auðlindum nærumhverfisins, bæði til sjávar og sveita.

Tugir þúsunda heyrúlla til Noregs
Að minnsta kosti tvö hundruð bændur víðs vegar um landið hafa áhuga á að selja hey til Noregs. Bóndinn sem heldur utan um útflutning í Skagafirði segir símann ekki stoppa. Fyrsta skipið fer um mánaðarmótin til Noregs.

Þennan dag: Stephan G. Stephansson féll frá
Þennan dag árið 1927 lést Stephan G. Stephansson skáld, 73 ára að aldri.

Hveragerði þurfi mögulega að fjárfesta í eða hafa aðgang að varaafli
Atvinnu- og mannlíf í Hveragerði hófst með eðlilegum hætti í morgun eftir að bærinn lamaðist klukkan þrjú í gær þegar hann varð skyndilega rafmagnslaus.

Þrjár díselrafstöðvar tryggja rafmagn í Hveragerði
Talið er líklegt að skurðgrafa hafi rofið raflínu í jörðu í Hveragerði um klukkan þrjú í gærdag.

Á verkstæðinu á Sauðárkróki segjast þeir geta gert við allt
Skagfirðingar eiga sennilegasta fjölhæfasta verkstæði landsins, sem um leið er stærsta bílaverkstæði landsbyggðarinnar. Þar er gert við nánast alla hluti undir sama þaki.

Vísindamenn í fiskvinnslu þróa heilsuvörur úr roði og beinum
Fimmtíu manna samfélag háskólamanna hefur myndast í vísindagörðum á Sauðárkróki þar sem líftækni er notuð til að vinna fæðubótarefni úr fiskafurðum.

Hér sjá róbótar um að gefa kúnum, mjólka þær og hreinsa undan þeim
Nýjasta fjós Skagafjarðar kostaði yfir tvöhundruð milljónir króna og gæti verið það fullkomnasta á landinu. Róbótar sjá um að gefa kúnum, mjólka þær og moka flórinn.

Áburðarflutningar boða vorkomuna í Skagafirði
Bændur eru farnir að huga að vorverkunum. Einn af vorboðunum til sveita eru áburðarflutningar til bænda, sem nú eru hafnir.

Nýtt riðusmit í Svarfaðardal reiðarslag fyrir íbúa í sveitinni
Riðutilfelli hefur verið staðfest á bænum Urðum í Svarfaðardal en sveitin hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum vegna riðu síðustu áratugina. Áfall fyrir bændur sem þurfa að skera fé sitt í annað sinn á 15 árum.

Skagafjörður og Skagabyggð hefja formlegar viðræður um sameiningu
Málið hefur verið rætt á óformlegum nótum hingað til en á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir helgi hófust viðræður formlega.

Sögur gæða landið lífi
Smáforritið Lifandi landslag leiðir notendur um Skagafjörð með hjálp þjóðsagna og fornsagna og fræðir þá um nútímann í leiðinni. Sóley Björk Guðmundsdóttir er höfundurinn.

Með sérleyfi á fjöllin fyrir þyrluskíðaferðir
Þrjú fyrirtæki hafa nú haslað sér völl í þyrluskíðaferðum á Tröllaskaga og hefur elsta fyrirtækið gripið til þess ráðs að semja við landeigendur og sveitarfélög um sérleyfi.

Þyrluskíðaferðir skapa grunn að þyrlurekstri á Norðurlandi
Ásókn í þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga er orðin slík að fyrirtækið Bergmenn þarf orðið tvær til þrjár þyrlur yfir vertíðina til að anna eftirspurn.

Skagfirðingar gera fiskroð að verðmætri hátískuvöru
Slorið úr íslenskum fiskvinnslum er orðið að verðmætri útflutningsvöru til frægustu hátískufyrirækja heimsins. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, en þar var fyrirtækið Sjávarleður á Sauðárkróki heimsótt. Gestastofa sútarans er andlit fyrirtækisins og það hefur í raun farið furðu hljótt miðað við þann árangur sem það hefur náð á alþjóðavettvangi.