Jafnréttismál

Markvörður Evrópumeistaranna virkilega sár út í Nike
Knattspyrnuaðdáendur geta ekki fest kaup á búningi eins af lykilmönnum Evrópumeistara kvenna í knattspyrnu. Hún er sár og svekkt með stöðuna.

„Svo allt í einu vakna ég upp á Hólmsheiði og enginn segir neitt“
Tinna Hilmarsdóttir Konudóttir afplánaði dóm á meðan heimsfaraldri stóð. Fyrst á Hólmsheiði og svo að Sogni. Hún segir eitt stærsta vandamálið sem hún upplifði innan fangelsisins hafa verið skort á upplýsingagjöf.

Söfnuðu milljón krónum á einni viku fyrir bók um þriðju vaktina
Söfnun fyrir útgáfu bókar um þriðju vaktarina lauk á rúmri viku. Höfundur segir markmiðið vera að veita pörum aðgengilegt samansafn af upplýsingum um fyrirbærið. Þegar hafa á fimmta tug frásagna borist og segist höfundur trúa því að hægt og rólega muni hinar verstu karlrembur vakna úr dvala, karlar muni ekki lengur geta skýlt sér á bakvið skilningsleysi þegar komin er út heil bók um viðfangsefnið. Þriðja vaktin geti rústað hjónaböndum.

Mikil áskorun að fá túlkaþjónustu í fangelsin
Fangelsismálastjóri, Páll Winkel, segir það mikla áskorun að fá túlkaþjónustu í fangelsin en síðustu ár hefur verið mikið fjölgun meðal erlendra fanga í íslenskum fangelsum.

„Kvenfangar eiga aldrei að afplána með karlföngum“
Formaður Afstöðu, félags fanga, telur áríðandi að brugðist sé við lélegum aðstæðum kvenna í fangelsum á Íslandi.

Staða kvenna í fangelsum verri en karla
Fyrirkomulag við afplánun kvenna hér á landi er almennt til þess fallið að gera stöðu þeirra lakari samanborið við karlfanga. Þetta kemur fram í ítarlegri skýrslu umboðsmanns Alþingis um stöðu kvenna í fangelsum landsins.

Fær ekki vinnu vegna fötlunar sinnar
Hreyfihömluð kona á fertugsaldri sem hefur verið atvinnulaus í tæpt ár segir atvinnurekendur ítrekað hafa hafnað henni um starf á grundvelli fötlunar hennar. Hún segir málið skammarlegt og skrítið.

Ók óléttri konu heim og rak hana í leiðinni
Fyrirtækið Dýralæknar Sandhólaferju er talið hafa brotið lög þegar framkvæmdastjóri þess sagði þungaðri konu upp störfum á meðan hann ók henni heim úr vinnu. Konan segir framkvæmdastjórann hafa ausið yfir hana fúkyrðum á leiðinni.

Dæmdu vefsíðuhönnuði sem vildi ekki vinna fyrir hinsegin hjón í hag
Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að kristinn grafískur hönnuður sem vill hanna brúðkaupsvefsíður mætti neita því að vinna fyrir hinsegin hjón. Dómurinn er talinn mikið bakslag fyrir hinsegin réttindi og hann gefi fyrirtækjum leyfi til að mismuna fólki á grundvelli trúarbragða.

Móðir segir starfsbrautina mæta afgangi og illa sé staðið að innritunarferli
Móðir drengs sem var gert að bíða til dagsins í dag eftir boði um skólavist á starfsbraut segir illa að inntökuferlinu staðið. Hún gagnrýnir Menntamálastofnun fyrir að hafa haldið fjölskyldunni í óvissu fram að síðasta degi fyrir sumarfrí framhaldsskólastarfsmanna.

Dregist úr hófi að tryggja nemendum pláss á starfsbrautum
Mikil fjölgun hefur orðið á umsóknum á starfsbrautir framhaldsskóla. Í ár hafi vinna við að tryggja þeim nemendum pláss dregist úr hófi en unnið sé að því að allir fái skólavist við hæfi. Endurskoðun á starfsbrautum framhaldsskóla stendur yfir í mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Íslendingar í afneitun um þriðju vaktina
Meistaranemi í kynjafræði segir að það sé dulin misskipting á íslenskum heimilum þegar kemur að skipulagningu og verkstjórnun þriðju vaktarinnar. Hún segir hugræna vinnu vanmetna á meðan líkamleg vinna, sérstaklega karla, sé gjarnan ofmetin.

Barátta kvenna
Því er ekki náð margumræddu jafnréttinu þó mörg hafi barist fyrir því svo áratugum skiptir. Í dag 19. júní minnumst við þess að konur fengu kosningarétt fyrir 108 árum. Kosningarétt sem kostaði blóð, svita og tár. Svo sjálfsagður þykir þessi réttur í dag að hann er jafnvel ekki nýttur, sem er öllu verr.

Jöfn - Tæknilega séð
Ísland er eftirbátur annarra Evrópuþjóða þegar kemur að fjölda þeirra sem starfa við upplýsingatækni, samkvæmt nýlegum tölum frá Eurostat. Frá því byrjað var að kenna tölvunarfræði á Íslandi hafa stelpur verið í minnihluta þeirra sem útskrifast úr greininni.

Það er ekkert gefið í þessum heimi
Í dag heiðrum við minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og annarra baráttukvenna fyrir kvenfrelsi, á sjálfan kvennréttindadaginn 19. júní. Þennan dag árið 1915, fengu konur á Íslandi í fyrsta sinn kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Æ síðan hefur baráttufólk fyrir kvenréttindum og jafnrétti haldið daginn hátíðlegan og hefur Reykjavíkurborg heiðrað Bríeti og stöllur hennar sérstaklega með því að leggja blómsveig á leiði hennar frá árinu 2011.

Segir sveitarfélögin jafnvel í hættu á að missa jafnlaunavottunina
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir ákvörðun sveitarfélaganna að greiða ekki sömu laun fyrir sömu störf heldur mismuna fólki eftir því hvaða stéttarfélagi það tilheyrir brjóta gegn jafnréttislögum og jafnlaunavottun.

Sjálfbærniskýrslan 2023: Verðlaunin staðfesta hvað Marel er að gera í sjálfbærnimálum
„Við erum mjög hreykin af þessum verðlaunum sem staðfesta hvað við erum að gera í sjálfbærnimálum. Það hefur líka sýnt sig að það er leitni á milli þess að standa sig vel í sjálfbærnimálum og góðs reksturs,“ segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel og formaður Nordic CEOs for a Sustainable Future, en rétt í þessu var tilkynnt að Marel er verðlaunahafi Sjálfbærniskýrslu ársins 2023.

Kínverjar þurfi að leiðrétta kynjahalla
Sameinuðu þjóðirnar leggja til að Kína setji á kynjakvóta fyrir þingmenn og æðstu embættismenn landsins. Alvarlegur kynjahalli sé á stjórn landsins.

Til hamingju Austurland!
Til hamingju með stofnun FKA Austurland. Takk nýkjörin stjórn og forsvarskonur FKA Austurland fyrir hugrekkið og kraftinn. Við höfum lengi beðið eftir þessari stund og ekki að ástæðulausu því hér á Austurlandi er verk að vinna.

Við höfum lagt 23 ár í púkkið
Fimmta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna snýr að jafnrétti kynja – þ.e. að jafna tækifæri og réttindi kynja á öllum sviðum samfélagsins. Hluti af því er að jafna kaup og kjör, þannig að fólk í sömu og jafn verðmætum störfum sé að fá greitt með sama hætti. Það þýðir líka að auka fjölbreytileika í ákveðnum tegundum af störfum, þannig að karllæg störf og kvenlæg störf heyri sögunni til.

Fékk afsökunarbeiðni frá KR eftir að hafa misst af verðlaunaafhendingu
Hulda Ósk Bergsteinsdóttir leikmaður KR í körfubolta var valin í lið ársins í 1. deild kvenna en missti af verðlaunaafhendingunni þar sem stjórn KR gleymdi að láta hana vita.

Skipulag vinnumarkaðar - steinn í götu jafnréttis
Skipulag vinnumarkaðarins stendur jafnrétti á vinnumarkaði fyrir þrifum. Samtök atvinnulífsins (SA) hafa lengi bent á að launamunur kynja undanfarin ár hefur einna helst birst í mun á heildarlaunum karla og kvenna.

Enginn friður án kvenna, ekkert kvenfrelsi án fjölbreytni
Árið 2000 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðirnar ályktun nr. 1325 sem viðurkenndi í fyrsta sinn sérstöðu kvenna á átakasvæðum og mikilvægi framlags kvenna til friðar. Í ályktuninni er lögð áhersla á aðkomu kvenna að öllum ákvarðanatökum til að koma á friði.

„Átti að hafa borðað elskhuga í morgunmat því hún var komin með leið á honum“
„Grýla hefur oft verið nefnd fyrsti femínisti Íslands. Hún var rosalega kraftmikil og lifandi og átti fullt af elskhugum. Þá byrjuðu þessar sögusagnir um hana,“ segir listakonan og ljósmyndarinn Berglind Rögnvalds, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind hefur meðal annars unnið listrænt verkefni um Grýlu, þar sem hún velti fyrir sér hvernig Grýla hefði verið ef hún hefði fengið að blómstra.

Sameining yrði móðgun við kvenréttindabaráttu Íslands
Hugmyndir um sameiningu Kvennaskólans og Menntaskólans við Sund mælast ekki aðeins illa fyrir hjá fjölmörgum núverandi kennurum og nemendum heldur einnig þeim sem námu við skólann á sínum tíma. Fyrrverandi nemandi segir að sameining yrði vitnisburður um hugsunarleysi og tómlæti gagnvart sögu skólahalds og ekki síst kvenréttindabaráttu Íslands.

„Mig langaði bara að leyfa geirvörtunni að njóta sín“
„Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt.

Ráku konu í fæðingarorlofi og réðu aðra yngri
Pólsk kona kærði í mars síðasta árs ákvörðun verslunarkeðjunnar Mini Market ehf. um að segja henni upp störfum í fæðingarorlofi og í kjölfarið rifta ráðningarsamningi á uppsagnarfresti. Verslunin bar fyrir sig samdrátt í rekstri en konan benti á að engum öðrum starfsmanni hefði verið sagt upp og að yngri kona hefði verið ráðin í hennar stað. Kærunefnd jafnréttismála telur verslunina hafa brotið gegn lögum um jafna stöðu kynjanna með uppsögninni.

Frans páfi veitir konum kosningarétt
Frans páfi hefur ákveðið að veita konum kosningarétt á komandi biskupafundi. Þetta verður í fyrsta sinn í sögunni sem konur mega leggja fram atkvæði á Kirkjuþingi Biskupa. Á Kirkjuþinginu funda biskupar alls staðar að úr heiminum og stendur viðburðurinn yfir í nokkrar vikur í senn.

Arfleifð skaðlegrar karlmennsku virðist lifa góðu lífi í steggjunum
Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur, fyrirlesari og hlaðvarpsstjórnandi Karlmennskunar, gagnrýnir þá hefð sem hefur myndast hér á landi í steggjunum. Hann segir tilvonandi brúðguma oftar en ekki vera niðurlægða.

Ekki ólíklegt að gervigreindin mismuni konum og körlum
Það kann að koma á óvart hversu mikil skekkja er enn í gögnum sem þó hafa veruleg áhrif á það hvernig vörur, þjónusta, stofnanir, vöruhönnun og fleira kemur við karla annars vegar og konur hins vegar.