

Þorgrímur Þráinsson segir að það sé neyðarástand í landinu. Líðan ungmenna, námsárangur og málskilningur kalli á aðgerðir. Hann segir foreldra vera að bregðast og segir kennara og skóla ekki geta meir.
Trans kona segir ömurlegt að þurfa að stíga fram og ræða kynfæri sín til að stoppa slúðursögur. Rætin saga um að grunnskólastúlkum í skólasundi hafi verið brugðið vegna karlmanns í sturtuklefanum, sé lygasaga byggð á hatri.
Rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason var hætt kominn er gat kom á vélinda hans eftir magaspeglun. Hann segist ekki hafa verið í lífshættu þrátt fyrir að atvikið hafi verið alvarlegt.
Íslenskur stjarneðlisfræðingur sem hlaut meira en tvö hundruð milljóna króna evrópskan styrk fyrir rannsóknir sínar segir að gullöld sé runnin upp í stjarneðlisfræði. Rannsóknirnar eiga að varpa ljósi á uppruna Vetrarbrautarinnar okkar og hvernig frumefnin urðu til.
Engin herferð er í gangi gegn fólki á ADHD-lyfjum af hálfu lögreglu. Þetta segir formaður Landssambands lögreglumanna sem bendir á að ef aksturslag vekur grunsemdir hjá lögreglumanni geti hann ekki tekið fólk á orðinu þegar það framvísi lyfseðli því lyfseðillinn einn og sér útiloki ekki notkun annarra lyfja. Það sé sígilt vandamál innan lögreglunnar þegar fólk stígur fram og segir frá samskiptum sínum við lögreglu að lögreglan geti ekki varið sig því hún sé bundin trúnaði.
Hjónin Valdimar og Hanna María Randrup, íbúar í Hveragerði, voru handtekin í fyrrakvöld þar sem amfetamín fannst í blóði þeirra vegna ADHD lyfsins Elvanse sem þau eru á. Fjórtán ára sonur þeirra varð eftir heima. Formaður ADHD samtakanna segir málið það ljótasta sem hann hafi heyrt um, þar beri innviðaráðherra og dómsmálaráðherra ábyrgð. Hjónin sögðu sögu sína í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar, segir að búið sé flækja allt sem við kemur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og að nauðsynlegt sé að finna lausnir til að hægt sé að koma framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu af stað sem fyrst. „Við höfum gert þetta svo erfitt og of flókið að þetta er orðinn of stór fíll til að borða í einum bita.“
Prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands segir íkveikju í bíl lögreglumanns sem rannsökuð er sem hefndaraðgerð vera viðvörunarmerki fyrir löggæsluyfirvöld og íslenskt samfélag. Hann segir ofbeldisbrotum gegn lögreglu þó ekki fara fjölgandi.
Samkvæmt nýjum reglum viðskiptabankanna þriggja þurfa viðskiptavinir nú að vera búnir að svara áreiðanleikakönnun og vera í viðskiptum við bankanna áður en þeir skipta gjaldeyri hjá bönkunum. Viðskiptavinir sem hafa fært sig annað, til að mynda til sparisjóðsins Indó hafa lent í vandræðum vegna þessa. Framkvæmdastjóri Indó segir vert að athugað sé hvort nýjar reglur samrýmist sátt bankanna við Samkeppniseftirlitið frá 2017.
Fyrrverandi oddviti Skorradalshrepps og eigandi jarðarinnar Horns segir umræðu um landakaup erlendra ríkisborgara oft vera öfgakennda og jafnvel einkennast af fordómum. Útlendingarnir sjái yfirleitt betur um sínar jarðir en ríkið sem láti allt drabbast niður.
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur býst við Öskjugosi innan næstu tólf mánaða. Bæði hraungos og sprengigos koma til greina.
Fjölmiðlamaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, áttaði sig á því að hann hafði lent í kulnun þegar hann stóð sig að því að finnast allt leiðinlegt, allt erfitt og allir í kringum hann vitlausir. Í Íslandi í dag spjallaði Sindri við Gulla sem er hættur í Bítinu eftir tíu ár og vinnur nú bæði í sér en einnig í nýjum þætti af Gulla sem byggir.
Öryggis- og löggæslufræðingur segir að mikilvægt að fólk gangi hringinn í kringum heimili sín og setji upp „innbrotsgleraugun“ vegna þeirrar innbrotahrinu sem nú gengur yfir höfuðborgarsvæðið.
Formaður Einhverfusamtakanna segir börn þurfa að bíða í allt að fjögur ár eftir einhverfugreiningu og stjórnvöld hafi lengi vitað af vandanum. Það skipti miklu máli fyrir börn að fá nauðsynlega þjónustu sem fyrst og barningur foreldra endi sjaldan við greiningu. Langvarandi barátta þeirra við kerfið geti jafnvel leitt til þunglyndis og örorku.
Ása Skúladóttir, frænka Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra, skorar á hann að mæta sér í sjónvarpssal til að ræða um ættardeiluna á Lambeyrum. Hún og systur hennar byrjuðu nýlega með hlaðvarp þar sem þær fjalla um málið.
Sjóböðin við Hvammsvík eru eins árs og verður boðið upp á dagskrá um helgina í tilefni af því. Eigandi þeirra Skúli Mogensen segist mæla með útivist og líkamlegri vinnu fyrir alla sem upplifi hverskyns áföll en sjálfur segist hann nánast þekkja hvern stein í Hvammsvíkinni eftir framkvæmdir þar.
Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir að mikill aldursmunur geti valdið vandamálum. Honum finnst mikill aldursmunur í parasamböndum alveg dásamlegur því slíkt gefur honum svo mikla atvinnu.
Í annað sinn á innan við ári gætu eldsumbrot truflað sumaráform samskiptastjóra almannavarna sem var á leið í sumarfrí á morgun. Tveir tímar liðu frá því að hún stimplaði sig út fyrir sumarleyfi í ágúst þegar eldgos hófst í Meradölum.
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, segir fyrirtækið hafa veitt smálánafyrirtækinu eCommerce 2020 ApS of mikið traust. Þá segir hún átján þúsund Íslendinga skráða á vanskilaskrá og að líkur séu á því að sú tala hækki með hækkandi vöxtum og verðbólgu.
Magnús Tumi Guðmundsson jarðfræðingur var viðmælandi í Bítínu á Bylgjunni í morgun og sagði atburðarásina síðustu klukkustundir áþekka hrinunni fyrir gosið í ágúst í fyrra.
Innviðir hér á landi eru ekki að springa vegna flóttafólks líkt og haldið hefur verið fram í umræðunni. Þetta segir deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins sem var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Útvarps -og sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Gulli Helga vann sína síðstu vakt í dag. Síðastliðin tíu ár hefur hann vaknað snemma og vakið þjóðina ásamt félögum sínum í Bítinu. Hann segist þakklátur fyrir tímann en framundan séu jafnframt spennandi verkefni.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki vilja taka ríkisstjórnina af lífi í beinni útsendingu í morgun. Hann sagði þó að þau deilumál sem hafa komið upp að undanförnu væru að hafa verulega alvarleg áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, eru sammála að um alvarlegt mál sé að ræða. Þau eru þó ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að ábyrgð fjármálaráðherra í því.
Félagsmálaráðherra segir sögur af því að ríkið hafi yfirboðið leiguhúsnæði, sem hafi orðið til þess að íbúar hafi neyðst til að leita annað, eigi ekki við rök að styðjast. Fleiri sögur, svo sem af miklu áreiti hælisleitenda, geti stafað af hræðslu við hið óþekkta.
Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ segir bæinn kominn langt yfir þolmörk í móttöku flóttafólks. Töluverður órói er í bænum vegna ástandsins.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segist eiga stærsta buffsafn Íslands, svo mörg hefur hann fengið í gjöf síðastliðin ár. Forsetinn mætti í Bítið á Bylgjunni í morgun í tilefni af því að hann hyggst bjóða almenningi í heimsókn á Bessastaði á sunnudag milli 13 og 16. Hlusta má á viðtalið neðar í fréttinni.
Dómsmálaráðherra segir Ísland í svo „stórkostlegum vandræðum“ í útlendingamálum að það gangi ekki lengur. Hann segir „öfgafulla“ umræðu og ráðherra Vinstri grænna meðal annars standa í vegi þess að hægt sé að taka upp harðari stefnu í málaflokknum.
Theodor Francis Birgisson, fjölskyldu og hjónaráðgjafi segir það oft valda streitu innan ástarsambanda þegar annar aðillinn missir aukakíló.
Upp á síðkastið hafa nokkrar flugferðir Icelandair verið með óhefðbundnu sniði en félagið leigir nú flota frá búlgarska flugfélaginu Fly2Sky auk þess sem Dash8 Q400 vél úr innanlandsflugi var bætt við flotann. Flugvélarnar sem um ræðir eru að sögn ósáttra farþega minni, háværari og ekki er boðið upp á skemmtikerfi á sætisbökum, sem er eitt aðaleinkenni Icelandair flugvéla.