

Alls voru 57 hótanir um ofbeldi gegn lögreglu skráðar í lögreglukerfið LÖKE í fyrra og 28 hótanir gegn öðrum opinberum starfsmönnum. Þá voru 121 ofbeldisbrot gegn lögreglu skráð í kerfið og 50 brot gegn öðrum opinberum starfsmönnum.
Aldrei hefur fleirum verið vísað frá Íslandi sem komið hafa á Keflavíkurflugvöll en það sem af er þessu ári eða rúmlega tvö hundruð manns. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir dæmi um að sama fólkinu sé vísað frá landinu oftar en einu sinni.
Þjálfun í forgangsakstri lögreglubíla er mjög mikilvægur í starfi lögreglunnar segir lögreglumaður á Suðurlandi en þar var verið að halda forgangsaksturs æfingu í þeim tilgangi að sjá hvað gekk vel og hvað þarf að laga og bæta úr.
Þolinmæði Árna Guðmundssonar er á þrotum en honum verður lítt ágengt í baráttu sinni gegn ólöglegum netverslunum sem höndla með áfengi.
Ríkislögreglustjóri segir að hryðjuverkaógn hér á landi stafi fyrst og fremst af einstaklingum sem aðhyllast öfgahyggju og bera hatur til samfélagsins.
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps gagnrýnir stöðu löggæslumála í sveitarfélaginu, sem hann segir allt of litla á sama tíma og þúsundir ferðamanna heimsækja þorpið í Vík á hverjum degi og þekkta ferðamannastaði í sveitarfélaginu eins og Reynisfjöru.
Embætti ríkislögreglustjóra þarf að greiða fjórum yfirlögregluþjónum laun í takti við samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri, Haraldur Johannessen, gerði við þá um endurskoðun launakjara árið 2019. Hæstiréttur telur Harald hafa skort heimild til að hækka laun lögregluþjónanna en þeir hafi tekið við hækkun í góðri trú og því mætti ekki lækka launin á ný.
Á heimili Ólafs Ólafssonar í Reykjanesbæ er líklega að finna eitt stærsta einkasafn landsins af merkjum og fatnaði sem tengjast starfsemi lögreglu, flugi, hersins og ýmissa annarra embættisaðila, bæði íslenskum og erlendum. Þar má meðal annars finna lögregluhúfu frá 1930, smellubindi frá Varnarmálastofnun Íslands, húfumerki yfirmanna Landhelgisgæslunnar frá tímum Þorskastríðsins því og svo mætti lengi telja.
„Það er auðvitað ekkert sérstaklega góð tilfinning að hafa ekki fullkomna stjórn á aðstæðum. En það er hlutverk lögreglu að koma inn í aðstæður þar sem ekki er stjórn á hlutunum, og reyna með einhverjum tiltækum ráðum að ná þeirri stjórn. Og við litum á það sem verkefnið, í öllum þessum tilvikum, að ná þessari stjórn.“
Afbrotavarnir eru eitt af mikilvægustu hlutverkum sem lögreglan gegnir. Heitið afbrotavarnir er fengið úr 1. grein lögreglulaga nr. 90/1996 þar sem hlutverk lögreglu eru skilgreind. Í b-lið segir svo [Hlutverk lögreglu er:] „að stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins.“
Fyrir fáeinum árum voru 5 ungmenni handtekin vegna mótmælasetu í anddyri dómsmálaráðuneytisins og í framhaldinu fylgdi kæra lögreglu og 5 samhljóða ákærur frá ákærusviði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, gefnar út með nokkurra vikna millibili, þannig að hver og einn sakborningur þurfti að útvega sér verjanda með tilheyrandi kostnaði, sem ætla má að hafi alls numið nærri 3 milljónum króna, eða um 600 þúsund á mann.
Kolbrún Benediktsdóttir hóf í dag störf sem fyrsti sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust í dag. Hún segir um að ræða mikilvægt skref fyrir Ísland.
Sveinn Andri Sveinsson og Einar Oddur Sigurðsson verjendur sakborninga í hryðjuverkamálinu segja niðurstöðuna áfellisdóm fyrir embætti ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara. Sakborningar voru sakfelldir fyrir vopnalagabrot en sýknaðir af þeim ákærulið sem sneri að hryðjuverkum.
Dómsmálaráðherra segist ekki geta tekið undir það að landamærin séu hriplek. Til skoðunar er að setja upp andlitsgreiningarbúnað í Leifsstöð eins og byrjað var að gera fyrir tuttugu árum síðan.
Í löggæsluáætlun segir að lögreglan eigi að vera í stakk búin til þess að gæta almannaöryggis, halda uppi lögum og reglu og tryggja réttaröryggi og stjórnarskrárvarin réttindi borgaranna í takt við samfélagslega og tæknilega þróun.
Tilkynnt var um 521 kynferðisbrot til lögreglunnar á síðasta ári og voru tilkynningar 15 prósent færri en að meðaltali samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan. Fara þarf aftur til 2017 til að sjá færri tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mætti á fund blaðamanna í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands og var hart að honum sótt á stundum.
Þegar lögum um útlendinga var breytt vorið 2023 var ákveðið að þau sem hefðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd myndu missa rétt á allri þjónustu 30 dögum síðar. Eftir það ætti fólk að yfirgefa landið. Fámennur hópur gerir það ekki og er heimilis- og réttindalaus á Íslandi.
Forstjóri Play segir fréttir heimsfjölmiðla af umbrotunum í Grindavík fyrr í vetur hafa valdið íslenskri ferðaþjónustu milljarðatjóni. Hann hvetur íslensk stjórnvöld til að líta í eigin barm um hvað megi gera betur.
Sérsveit ríkislögreglustjóra efndi til reglubundinnar æfingar við hafnarsvæðið á Granda í Reykjavík í dag. Viðfangsefni æfingarinnar var yfirtaka á skipum og öðrum sjóförum. Tökumaður Stöðvar 2 myndaði æfinguna í dag, þar sem notast var við sprengiefni og sprengjuvélmenni.
Heildarkostnaður stjórnvalda vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fór í Reykjavík í maí á síðasta ári nam alls tveimur milljörðum króna samkvæmt uppgjöri utanríkisráðuneytisins og upplýsingum frá ríkislögreglustjóra og innviðaráðuneyti.
Um síðustu áramót sagði Umhverfisstofnun upp samningi við Ríkislögreglustjóra sem varðar utanumhald og framkvæmd skotvopnanámskeiða. Ríkislögreglustjóri hyggst bjóða framkvæmdina út.
Embætti ríkislögreglustjóra berast nú aftur tilkynningar um tölvupóst þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er ranglega titluð sem sendandi og skilaboðin ranglega merkt lögreglu.
Umboðsmaður Alþingis hefur beint ábendingum til Ríkissaksóknara og dómsmálaráðherra vegna athugunar hans á máli þar sem lögmaður fékk aðgang að gögnum sakamáls, sem var honum alls óviðkomandi.
Þingmenn fimm þingflokka hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um meðferð sakamála. Þar er lagt til að rannsókn lögreglu á sakamálum megi ekki standa yfir í meira en ár.
Edda Björk Arnardóttir, sem bíður þess að afplána tuttugu mánaða dóm frá Noregi fyrir barnsrán, er einn sex grunaðra í rannsókn lögreglunnar í máli er varðar þrjá drengi hennar. Hún fékk dóm fyrir svipað brot í Noregi í janúar. Hún segir ömurlegt að börnin hennar lýði fyrir brot sem hún framdi.
Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna er kominn í veikindaleyfi. Þar til hann kemur aftur mun restin af Almannavarnateyminu skipta verkefnum hans á milli sín.
Verjandi manns sem grunaður er um tilraun til hryðjuverka segir það sem komið hefur fram í aðalmeðferð hryðjuverkamálsins í vikunni benda til þess að lögregla og ákæruvaldið hafi hlaupið upp til handa og fóta að ástæðulausu.
Uppfærsla á netöryggiskerfi Neyðarlínunnar olli því að hluti þeirra sem hringdu í 112 náðu ekki sambandi. Tölvukerfi Neyðarlínunnar lá einnig niðri um tíma en nú er öll starfsemi komin í lag.
Neyðarlínan er komin aftur í gagnið, í hið minnsta símleiðis en enn er unnið að því að koma netspjalli aftur á auk innri kerfa. Þetta segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunar.