
Spænski körfuboltinn

Jón Axel til Alicante
Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, er genginn í raðir Alicante sem spilar í spænsku B-deildinni.

Lengsta sumarfríið sem Tryggvi hefur fengið í atvinnumennskunni
Tryggvi Snær Hlinason er spenntur fyrir nýju verkefni í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en hann færði sig um set á Spáni í sumar.

Richotti hættur og Tenerife hengir upp treyjuna hans
Hinn 36 ára gamli Nicolas Richotti hefur lagt skóna á hilluna eftir langan feril. Richotti lék síðustu tvö tímabilin sem leikstjórnandi Njarðvíkur.

„Ég var með einhverja Súperman-stæla“
Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson sleit krossband í hné í fyrra og hefur eytt síðasta árinu í endurhæfingu. Hann segir allt vera á réttri leið, hefur lagt blóð, svita, tár og eigin peninga í endurhæfinguna og vonast til að taka þátt í komandi landsliðsverkefni Íslands.

Evrópureisa Söru Rúnar heldur áfram: England, Rúmenía, Ítalía og núna Spánn
Íslenska landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir er búin að finna sér nýtt lið til að spila fyrir á næstu leiktíð.

Tryggvi orðinn leikmaður Bilbao
Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var í dag kynntur sem nýjasti liðsmaður Surne Bilbao Basket. Hann mun því spila áfram í efstu deild spænska körfuboltans.

Barca spænskur meistari í körfubolta
Barca er spænskur meistari í körfuknattleik eftir sigur í þriðja leik liðsins gegn Real Madrid í kvöld. Barca vann alla leiki einvígisins og tryggði sér titilinn örugglega.

Barça í bílstjórasætinu eftir fyrsta leik í úrslitum ACB deildarinnar
Barça og Real Madrid mættust í fyrsta leik úrslitaviðureignar ACB deildarinnar í kvöld, en Real Madrid eru ríkjandi meistarar. Barça gerðu sér lítið fyrir og unnu fyrsta leikinn, 97-88.

Martin á leið í sumarfrí
Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Valcenia sáu aldrei til sólar í 25 stiga tapi gegn Barcelona, 64-87.

Ægir Þór og félagar úr leik
Ægir Þór Steinarsson og félagar í HLA Alicante eru úr leik í úrslitakeppni Leb Oro deildarinnar á Spáni, eftir 60-63 tap gegn Zunder Palencia í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum.

Tap hjá Martin og félögum gegn einu af neðstu liðunum
Valencia tapaði í dag fyrir Baxi Manresa í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í dag. Martin Hermannsson lék í rúmar þrettán mínútur fyrir Valencia.

Tryggvi Snær drjúgur í sigri Zaragoza
Tryggvi Snær Hlinason átti fínan leik fyrir Zaragoza sem vann góðan sigur á Joventut Badalona í spænska körfuboltanum í dag. Lið Zaragoza siglir nokkuð lygnan sjó í ACB-deildinni.

Martin og félagar komnir langleiðina inn í úrslitakeppnina
Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia unnu góðan níu stiga sigur er liðið tók á móti Obradoiro í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöldm 87-78.

Elvar skoraði níu í stórsigri | Naumt tap Tryggva og félaga
Elvar Már Friðriksson skoraði níu stig fyrir Rytas Vilnius er liðið vann öruggan 25 stiga sigur gegn Jonava í litháísku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 81-106. Á sama tíma máttu Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza þola naumt fjögurra stiga tap gegn Unicaja í spænsku deildinni, 70-74.

Martin með tólf stig í sigri Valencia
Íslenski atvinnu- og landsliðsmaðurinn í körfubolta, Martin Hermannsson skoraði 12 stig fyrir lið sitt Valencia á Spáni er það bar sigurorðið af Bilbao í ACB deildinni.

Tap hjá Zaragoza gegn Murcia
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza biðu lægri hlut gegn Murcia þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.

Martin spilaði í tapi
Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson var á sínum stað í liði Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Tryggvi Snær drjúgur í sigri Zaragoza
Tryggvi Snær Hlinason lagði sín lóð á vogarskálina í 76-73 sigri Zaragoza gegn Gran Canaria í spænsku efstu deildinni í körfubolta í kvöld.

Tryggvi Snær og félagar höfðu betur í Íslendingaslagnum
Íslensku landsliðsmennirnir í körfubolta, Tryggvi Snær Hlinason og Martin Hermannsson, voru í eldlínunni í einum af leikjum kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni.

Martin kom við sögu í sigri
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson kom við sögu í sigri Valencia á CB Granada í efstu deild spænska körfuboltans í dag. Martin er hægt og rólega að ná fyrri styrk eftir krossbandaslit.

Tryggvi skoraði sjö er Zaragoza komst aftur á sigurbraut
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza unnu mikilvægan 16 stiga sigur er liðið heimsótti Breogan í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 71-87.

Martin með góða innkomu er Valencia komst aftur á sigurbraut
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson er loksins farinn að spila körfubolta á ný eftir löng og erfið meiðsli. Hann skoraði sjö stig fyrir Valencia er liðið vann nauman tveggja stiga sigur gegn Fenerbache í Evrópudeildinni í kvöld, 82-80.

Martin spilaði í fyrsta sinn í tæpt ár í sigri Valencia
Martin Hermannsson lék sinn fyrsta leik fyrir Valencia síðan í maí á síðasta ári þegar liðið vann sigur á Girona í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.

Grátlegt tap hjá Tryggva og félögum
Tryggvi Snær Hlinason og leikmenn Zaragoza máttu þola grátlegt tap gegn Monbus Obra í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.

Martin í fyrsta skipti í leikmannahópi Valencia sem tapaði fyrir Real Madrid
Martin Hermannsson var í kvöld í fyrsta skipti í leikmannahópi Valencia síðan hann sleit krossband í maí á síðasta ári. Valencia beið lægri hlut gegn Real Madrid í leiknum.

Martin snýr aftur í stórleik í kvöld
Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson spilar í kvöld sinn fyrsta leik fyrir Valencia eftir krossbandsslit.

Tryggvi og félagar unnu óvæntan sigur gegn Barcelona
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza gerðu sér lítið fyrir og unnu afar óvæntan tveggja stiga sigur er liðið tók á móti Barcelona í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld, 85-83.

„Virkilega kærkomið og söknuðurinn var orðinn mikill“
Besti körfuknattleiksmaður þjóðarinnar, Martin Hermannsson, er loksins farinn að æfa á nýjan leik en hann sleit krossband í hné fyrir átta mánuðum síðan.

Tap hjá Tryggva og félögum
Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Zaragoza biðu lægri hlut gegn Baskonia á útivelli í spænska körfuboltanum í dag. Hræðilegur annar leikhluti varð Zaragoza dýrkeyptur.

Martin byrjaður að æfa með Valencia eftir krossbandsslitin
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, fór í dag á sína fyrstu liðsæfingu í átta mánuði. Hann greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni.