
Alþingiskosningar 2021

Miðjan er komin langt til hægri við þjóðina
Það sorglegasta við íslensk stjórnmál er hvernig forysta flokkanna hefur fært umræðuna svo langt til hægri við afstöðu meginþorra fólks að það er á mörkunum að hægt sé að kalla Ísland lýðræðisríki.

Öruggt húsnæði fyrir alla
Öruggt húsnæði er hornsteinn jöfnuðar í samfélaginu enda er það mannréttindamál að eiga þak yfir höfuðið. Við Vinstri græn leggjum mikla áherslu á að á landinu öllu sé gott framboð af húsnæði bæði til leigu og til eignar á viðráðanlegu verði fyrir ungt fólk og tekjulægri.

Viðreisn atkvæða
Sá möguleiki er fyrir hendi að úrslit komandi kosninga til Alþingis munu ekki endurspegla að fullu vilja þjóðarinnar. Kannanir sýna að mögulega munu stjórnmálaflokkar fá fleiri þingmenn en þeir ættu rétt á samkvæmt öllum eðlilegum skilningi.

Mælum það sem skiptir máli
Formenn Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna héldu sitthvora ræðuna um helgina. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að komandi kosningar snúist um að láta hans stefnu ráða för í íslensku samfélagi - „ekki nýjar kenningar“ eins og hann orðaði það. Formaður Vinstri grænna var á allt öðrum nótum, „velsældarhagkerfið“ væri framtíðin.

Tommi á Búllunni og Kolbrún leiða lista Flokks fólksins í Reykjavík norður
Flokkur fólksins hefur kynnt framboðslista sinn í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir komandi Alþingiskosningar. Tómas A. Tómasson, eða Tommi kenndur við Búlluna, leiðir lista flokksins í kjördæminu. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi og sálfræðingur, skipar annað sæti á listanum.

Endurheimtum réttindin!
Þessi ríkistjórn hefur sett staðfest heimsmet í skerðingum á ellilífeyrisþega og öryrkja. Þetta hefur komið fram í rannsóknum prófessors Stefáns Ólafssonar fyrir stéttarfélagið Eflingu.

Enginn alvöru umhverfisverndarflokkur á Íslandi?
Ættingi minn, sem er mikill áhugamaður um umhverfisvernd og fylgist því náið með þeim málum, sagði við mig um daginn...

Oddvitaáskorunin: Pólitíkin byrjaði á tapi um embætti bekkjartengils
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Heimsmet í eymd
Á Vesturlöndum hefur fólk kosningarétt og getur valið skýrar línur til hægri eða vinstri. Í sósíalistaríkjum eru líka hreinar línur. Þar er ekki kosið, þess þarf ekki. Þar ráða sérhagsmunir og forréttindastéttir ríkjum.

Kvótakerfið og veiðigjaldið er sitt hvor hliðin á sama peningi
Kvótakerfið og veiðigjaldið er sitt hvor hliðin á sama peningi. Kvótakerfið er heimild útgerða til að veiða ákveðinn hluta leyfilegs afla og veiðigjaldið er árgjaldið sem greitt er, enda eðlilegt að greitt sé fyrir aðgang að takmarkaðri náttúruauðlind.

Ganga óbundin til kosninga en myndu skoða áframhaldandi samstarf fyrst
Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja, Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, segjast allir ganga óbundnir til kosninga. Þeir eru þó sammála um að eðlilegt væri að ræða möguleikann á áframhaldandi stjórnarsamstarfi, fari svo að ríkisstjórnin haldi velli í komandi þingkosningum.

Oddvitaáskorunin: Fæddur sósíalisti
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Kristrún gaf lítið fyrir Bubbatal Bjarna og Gunnars Smára
Bjarni Benediktsson, Gunnar Smári Egilsson og Kristrún Frostadóttir tókust hressilega á við Pallborðið.

„Ef ekki á illa fara þá þurfum við aðgerðir, núna“
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir að lýðræði sé ekki bara kosningar, prófkjör og þjóðaratkvæðagreiðslur heldur líka nálgun á stjórnmál. „Áhersla á fólk - hugmyndir þess, velferð og valdeflingu - og það er algjört grundvallaratriði ef við ætlum að takast á við margar af stærstu áskorunum samtímans,“ segir Þórhildur Sunna.

Papparör og pólitík
Eftir að hafa heyrt mikið talað um kolsvarta loftslagsskýrslu síðustu daga skynjar maður alvarleika málsins. Hvert og eitt okkar þarf að leggja sitt af mörkum. Vissulega er hver einstaklingur bara dropi í hafið, en margt smátt gerir eitt stórt og betur má ef duga skal.

Oddvitaáskorunin: Vill athuga hvort einhver veira sé á þingi
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Bein útsending: Píratar kynna kosningastefnu sína
Oddvitar Píratar munu kynna stefnu flokksins fyrir komandi alþingiskosningar á fundi sem hefst klukkan 15.

Sáttmáli við hin óbornu
Fyrir þessar kosningar leggur Samfylkingin áherslu á málefni fjölskyldunnar – hvernig svo sem hún er í laginu.

Ógeðfelldar árásir á starfsmenn Útlendingastofnunar
Undanfarið höfum við séð ógeðfeldar árásir á starfsmenn Útlendingastofnunar. Að baki þeim stendur fólk sem býður sig fram til ábyrgðastarfa í stjórnmálum og það hlýtur að teljast viðvörun til kjósenda um að það er ekki hægt að treysta öllum fyrir ábyrgð í þessum málaflokki.

Bjarni, Gunnar Smári og Kristrún mættust í Kosningapallborðinu
Innan við fjórar vikur eru til Alþingiskosninga og í dag fer Kosningapallborðið á Vísi í loftið. Fulltrúar allra flokka sem mælst hafa með meira en 4% fylgi undanfarnar vikur koma í settið og takast um á mál sem brenna á fólki í aðdraganda kosninga.

Já, hvert ertu að fara Brynjar?
Brynjar Níelsson gerir stefnu Viðreisnar að umtalefni í grein hér á Vísi. Stefnunni finnur hann flest til foráttu. Mér er þó ekki alveg ljóst hvert Brynjar er að fara. Gott væri að fá skýringar á eftirfarandi atriðum.

Píratar til sigurs
Píratar hafa einstakt tækifæri til árangurs í næstu alþingiskosningum. Á meðan núverandi ríkisstjórn gerist ítrekað sek um lítt hugsaðar geðþóttaákvarðanir verður ákallið um heiðarleika og gagnsæi sterkara með hverjum deginum sem líður.

Hafa birt lista Flokks fólksins í Kraganum
Flokkur fólksins hefur birt framboðslista sinn í Suðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninganna sem fram fara eftir tæpan mánuð. Guðmundur Ingi Kristinsson er þingmaður og varaformaður Flokks fólksins og skipar efsta sæti listans.

Lýðræði fyrir alla! Stefnum að aukinni kosningaþátttöku meðal nýrra íslenska ríkisborgara
Nú er aðeins um mánuður til kjördags og er því er mjög mikilvægt að upplýsingar um kosningar til Alþingis séu vel aðgengilegar fyrir fólk af erlendum uppruna. Um 13,5% íbúa landsins eru af erlendum uppruna og vissulega hefur fjöldi þeirra ekki öðlast kosningarétt þó sumir hafi búið hér á landi lengi.

37 ára tilraun sem mistókst
Langafi minn kom til Eyja í upphafi síðustu aldar og gerðist útgerðamaður. Þá var allt með öðrum brag en í dag og lífsbaráttan hörð en ef maður ber saman fiskveiðar fyrir 100 árum síðan og svo aftur fiskveiðar í dag og sömuleiðis kvótakerfið, þá var veiðifyrirkomulagið mjög einfalt í gamla daga þó aðbúnaður sjómanna hafi verið skelfilegur.

Svona bætum við kjör barnafólks
Millitekjufjölskyldur fá umtalsverðan stuðning í formi barnabóta alls staðar á Norðurlöndunum nema á Íslandi.

Spennið beltin!
Það hefur auðvitað ekki farið fram hjá neinum að Seðlabankinn hækkaði vexti á dögunum. Ekki er langt í að hækkunin skili sér í afborganir af húsnæðislánum. Afleiðingin verður sú að þeir sem eru með óvertryggð lán á breytilegum vöxtum finna fyrir hressilegri hækkun.

Stærsta U-beygjan um helgina
Stjórnmálaflokkar landsins kynna nú hver af öðrum áherslur sínar fyrir næsta kjörtímabil. Fæst af þessum áherslumálum koma á óvart, a.m.k. þeim sem fylgjast vel með stjórnmálum, þó alltaf megi auðvitað búast við einhverju bitastæðu.

Fjárhagslegt sjálfstæði eldri borgara
Lífeyrissjóðirnir eru eitt stærsta samfélagslega framlag þeirrar kynslóðar sem hafa lokið góðri starfsævi. Sjóðirnir tryggja afkomu og lífskjör þeirra sem byggt hafa upp lífeyrissparnaðinn. En fram hjá því verður ekki litið að margir áttu þess ekki kost að ávinna sér viðunandi réttindi í lífeyrissjóði.

Brauðgerðarkenningin
Við þekkjum brauðmolakenninguna – um að því ríkari sem auðmennirnir verða því betra sé það fyrir samfélagið í heild því að brauðmolar hrjóti af allsnægtarborðum hinna ríku niður til hinna.